Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.04.1986, Side 15

Víkurfréttir - 10.04.1986, Side 15
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 10. apríl 1986 15 LESENDASIÐAN - LESENDASIÐAN - LESENDASIÐAN - LESENDASIÐAN - LESENDASIÐAN Víkurbæjarhúsið tilvalið fyrir bæjarskrifstofur Látum það ekki verða draugakastala Skrifið eða hringið til Víkur-frétta Víkur-fréttir hvetja lesendurtil aðskrifaeða hringja til blaðsins um hvaðeina sem hug- ur þeirra stendur til. Meðal efnis sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrir- spurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins í hinum ýmsu byggð- um Suðurnesja utan Keflavíkur, að þeirláti sinn hlut ekki eftir liggja hér á síðum blaðsins. Talsverðar umræður hafa að undanförnu verið um hvert fara eigi með bæj- arskrifstofur Keflavíkur, og er þá rætt um að sam- eina allt ,,apparatið“ undir einn hatt. Hótelið sem nú er í byggingu hefur verið nefnt, að bærinn muni taka þar eina hæð fyrir sig, þá að sjálfsögðu til leigu. En á bærinn að leigja húsnæði undir starfsemi sína? Ég geri ráð fyrir því að leiga í hótelinu verði ekki á topp- verði, enda kannski óþarfi, þar sem það er byggt fyrir hermangsgróða. Mér finnst samt að bæjaryfirvöld megi ekki hugsa svona. Annað í þessu er stað- setning hótelsins. Ég tel ekki rétt að bæjarskrifstof- urnar séu langt frá miðbæj- arkjarna, sem á að færast nær gamla bænum, ekki upp eftir Hafnargötunni. í þriðja lagi er kjörið hús á góðum stað fyrir bæinn. Það er Vikurbæjarhúsið. En það er ekki heppilegt fyrir aldraða, um það eru flestir sammála. Bæjar- skrifstofurnar myndu hins vegar sóma sér ágætlega í því. Afgreiðsla á jarðhæð, þrjár hæðir undir ýmsa starfsemi og kjallari undir skjalageymslu. Það væri tilvalið að fá umræðu um þetta mál. Gerum bara ekki Víkur- bæjarhúsið að draugakast- ala. Bæjarbúi Fyrirspurn til Heilbrigðiseftir- lits Suðurnesja Nú um all langt skeið hafa óinnpökkuð brauð legið í hillum í Sparkaup, þar sem ætlast er til að fólk geti sjálft valið og sett í bréfpoka sem eru þar við hliðina. Því spyr ég: Samrýmist það reglum Heilbrigðis- eftirlitsins, að fjöldi fólks geti kraflað á sömu brauð- unum, er það er að kanna hvort þau séu ný eða ekki, eins og ég hef marg sinnis orðið vitni að? Ef svo er ekki, ætlar Heil- brigðiseftirlitið að sjá svo um, að tekið verði fyrir þennan ósóma? Svar óskast. Viðskiptavinur Sparkaups SÍMI VÍKUR-FRÉTTA ER 4717 Víkurbæjarhúsið GARÐUR LEITAÐ EFTIR HUGMYNDA- RÍKUM ATHAFNAMÖNNUM Ágæti losandil - ---- -.........-..= Atvinnumálanefnd Gerðahrepps er um þessar mundir að leita eftir aðilum sem áhuga hafa eða getu til að setja í gang nýja framleiðslu ásviði fiskiðnaðareða iðnaðar. Til þess aðfinna heppilegustu framleiðsluhugmyndirnar hefur atvinnumálanefndin leitað til Iðnþróunarfélags Suðurnesja og í samvinnu við það ákveðið að stofna til þróunarverkefnis með þátttöku Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins, matvæladeildar, Iðntæknistofnunar íslands, Iðnþró- unarfélags Suðurnesja og væntanlegum áhugaaðilum verkefnisins. Þróunarverkefnið spannar yfir allt frá leit að hugmynd og þróun hugmyndaraðframleiðslu- vöru. Leitað verður til sjóðakerfisins um styrkveitingu vegna þessa verkefnis en gera má ráð fyrir að hluta kostnaðar þurfi væntanlegir framleiðendur að bera. Svipuð þróunarverkefni hafa verið til staðar út um landið og hefur gefist vel. Atvinnumálanefndin telur að aðstæður hér í Gerðahreppi séu nýjum fyrirtækjum eða nýrri framleiðslu um margt ákjósanlegar. Hér er gott vinnuafl, næg lóðaframboð og húsnæði til staðar. Lesandi góður, teljir þú málið áhugavert, vinsamlega hafðu samband við formann atvinnu- málanefndar Gerðahrepps, Einvarð Albertsson, h.s. 7110, eða Iðnþróunarfélag Suðurnesja, sími 4027. Atvlnnumálanefnd Gerðahrepps

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.