Víkurfréttir - 10.04.1986, Blaðsíða 17
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 10. apríl 1986 17
Níu titlar ti i
u IMFI Sí ogíl 3K
Nýlokið er vertíð körfu-
knattleiksmanna og
kvenna. Arangur Suður-
nesjaliðanna varð mjög
góður, því alls fengu
UMFN og ÍBK samanlagt
8 Islands- og bikarmeist-
ara.
Stúlkurnar í 2. fl. hafa
verið mjög sigursælar í
vetur og urðu þær íslands-
og bikarmeistarar, en þær
sigruðu alla andstæðinga
sína með miklum yfirburð-
um.
Njarðvíkingar urðu Is-
landsmeistarar í 4. fl. karla
eftir mikinn baráttuleik við
piltana í IBK, sem lentu í
2.-3. sæti, en Bikarmeistar-
ar í þeim flokki varð
UMFN. Sem sagt tvöfald-
ur sigur á þeim bæ. Á Hi-Ci
mótinu lenti 4. fl. UMFN í
2. sæti en ÍBK í 3. sæti.
Sigurvegarar í H-Ci-
mótinu í 5. fl. urðu dreng-
irnir í ÍBK, en á íslands-
mótinu lentu þeir í 2. sæti.
í 3. fl. var það ÍBK sem
fór með sigur af hólmi á Is-
landsmótinu. Þess má geta
að sá hópur, árgangar ’68
og ’69, hafa orðið íslands-
meistarar samfellt frá því
að þeir voru í 5. fl., eða sam-
tals 5 sinnum.
ÍBK varð Bikarmeistari í
2. fl. eftir hörku úrslitaleik
við UMFK, eins og greinir
frá annars staðar á síðunni.
í 1. fl. urðu Njarðvíking-
ar Islandsmeistarar, en þeir
sigruðu IBK naumlega í úr-
slitaleik.
Þetta_gerir 9 titla saman-
lagt til IBK og UMFN, að
meðtöldum íslandsmeist-
aratitli UMFN í m.fl. karla
og sigri 5. fl. ÍBK á Hi-Ci-
mótinu. Sem sagt prýðis ár-
angur liðanna í vetur. gjó.
l.jósm.: mail.
2. fl. ÍBK - Bikarmeistarar.
Golfkennsla Þorvaldar:
Tveir sunnudagar enn
Þorvaldur Ásgeirsson golfkennari, er með golf-
kennslu í Iþróttahúsi Myllubakkaskóla í Keflavík.
Hann hefur verið með kennslu sl. tvo sunnudaga og
verður einnig næstu tvo. Þeir sem áhuga hafa á að fá
leiðsögn í þessari skemmtilegu íþrótt hjá vönum
kennara, ættu að skrá sig hið fyrsta hjá Ástu Pals í
síma 1142. Nokkrir tímar eru lausir.
ÍBK Bikarmeistari KKÍ í 2. flokki karla:
r
Urslit ekki fyrr en eftir
þrjár framlengingar
Úrslitaleikur í Bikar- | keppni KKÍ í 2. fl. karla fór
fram í Keflavík sl. fimmtu-
dag. Þar áttust við ÍBK og
Körfuknattleikshátíð í íþróttahúsi Keflavíkur annað kvöld:
SÍÐASTI STÓRLEIKURINN
A- og B-landsIið leika - Troðslukeppni Víkur-frétta -
3ja stiga keppni - Minnibolti og fleira
■
\
Verður Valur Ingimundarson
sem hér treður glæsilega,
„Troðkóngur Víkur-frétta?“
Annað kvöld verður ó-
svikin körfuboltastemn-
ing í íþróttahúsi Keflavík-
ur. Þá eigast við landslið Is-
lands A- og B-lið, auk þess
sem fleira skemmtilegt
verður á boðstólum.
Hátíðin hefst kl. 20 með
Ieik UMFN og ÍBK í minni
bolta. Dómarar í þeim leik
verða engir aðrir en Valur
Ingimundarson og Torfi
Magnússon. Eftir þann
leik verður 3ja stiga keppni
og taka þátt í henni þeir
Valur Ingimundar, Pálmar
Sigurðsson, Ólafur Rafns-
son, báðir í Haukum, Karl
Guðlaugsson ÍR og loks
gömlu kempurnar úr
UMFN, þeir Stefán
Bjarkason og Brynjar Sig-
mundsson. Verður eflaust
fróðlegt að sjá þá „görnlu"
kljást við núverandi stjörn-
ur. Að því loknu hlaupa lið
Islands inn á völlinn og eig-
ast við í fullan leiktíma.
Þess má geta að B-liðinu
stjórnar enginn annar en
Þorsteinn Bjarnason, Kefl-
víkingur. I hálfleik verður
krýndur „Troðkóngur Vík-
ur-frétta“. Þá munu valin-
kunnir „troðarar" skora á
Val Ingimundarson, sem
vann síðustu troðslukeppni.
Þeir Ivar Webster
Haukum, Jón Kr. Gísla-
son ÍBK, Torfi Magnús-
son Val og síðast en ekki
síst gamla brýnið Jónas Jó-
hannesson úr Njarðvík.
Það verður gaman að fylgj-
ast með tilþrifum þessara
leikmanna. Víkur-frétta-
menn munu að sjálfsögðu
festa þetta á filmu og krýna
svo Troðkóng blaðsins.
Við hvetjum Suðurnesja-
menn til að fjölmenna á
þennan síðasta stórleik
vetrarins hér á Suðurnesj-
um. Körfuboltamannanna
bíður ærið verkefni:
Evrópukeppni landsliða,
sem hefst 15. apríl í Laug-
ardagshöllinni. - pket.
Jonni „gamli seigur“ mætir á
staðinn og ætiar að
troða fyrir okkur.
Treður Webster 2 eða kannski 3
boltum í körfuna?
Jón Kr„ einn skemmtilegasti
troðari landsins.
UMFN.
Leikurinn var jafn allan
tímann og staðan eftir
venjulegan leiktíma var
jöfn, 79:79. Framlengja
þurfti því leikinn. í fram-
lengingunni skiptust liðin
jafnt á að skora og endaði
framlengingin á því að
Kristni Einarssyni tókst að
jafna fyrir UMFN örfáum
sek. fyrir leikslok, 87:87.
Sama var uppi á teningn-
um í annarri f'ramlenging-
unni, liðin skildu enn einu
sinni jöfn, eða í þriðja sinn.
Þar sem þetta var bikarleik-
ur varð að framlengja í
þriðja sinn. Þá tókst Kefl-
víkingum að knýja fram
sigur. Lokatölur í ótrúleg-
um leik II 1:106.
Vendipunktur leiksins
var líklega í lok annarrar
framlengingar er Kristinn
Einarsson fékk sína fimmtu
villu og varð að yfirgefa
völlinn. Þetta var mjög
vafasamur dómur að
margra áliti. En samt ekki
næg ástæða til að ganga í
skrokk dómarans, það er
óafsakanleg framkoma
íþróttamanns. En hvað um
það, Keflvíkingar fögnuðu
sigri og eru Bikarmeistarar
1986.
Stig ÍBK: Guðjón 36, Sig-
urður I. 33, Magnús 20,
Matti 8, Skarphéðinn 6,
Ólafur G. 6, Einvarður 2.
Stig UMFN: Kristinn 33,
Teitur 31, Hreiðar 18,
Einar 11, Alexander 4, Haf-
steinn 4, Haukur 3, Friðrik
2. - gjó.