Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.07.1986, Qupperneq 17

Víkurfréttir - 03.07.1986, Qupperneq 17
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 3. júlí 1986 17 Einar Asbjörn, lengst til vinstri á myndinni, skallar glæsilega í markið, - óverjandi fyrir markvörð Þórs. Einar Ásbjörn fagnar markinu. ÍBK hafði jafnað 1:1. Ljósm.: pket. íslandsmótið 1. deild:. ÞOR ATTI SIGUR SKILIÐ - sagði Hólmbert Friðjóiisson, þjálfari ÍBK Það var minnsti vandi að pakka saman í vörn eftir að hafa jafnað 2:2, en svoleiðis leikum við bara ekki á heimavelli“, sagði Hólm- bert Friðjónsson, þjálfari IBK eftir leik þeirra við Þór sl. föstudag. Þórsarar knúðu fram sigur á næst síðustu mínútu leiksins og fóru því með öll stigin þrjú norður í sólina. „Þetta var sanngjarn sigur. Við áttum hættulegri tækifæri og vorum betri aðil- inn í leiknum, sagði Þorsteinn Olafsson, fyrrum markvörður IBK og núver- andi aðstoðarþjálfari Þórs. Keflvíkingar náðu ekki að sýna sama leik og í und- anförnum leikjum. Þórsar- ar virtust ákveðnir að fara ekki tómhentir heim og það tókst þeim. IBK byrjaði leikinn þó betur og sóttu meira fyrsta hálftímann en tókst ekki að skapa sér af- gerandi færi. Völlurinn var blautur og leikmenn beggja liða áttu oft í erfiðleikum með að fóta sig. Á marka- mínútunni í fyrri hálfléik skoruðu Þórsarar óvænt og höfðu mark yfir í hálfleik, 1:0. Keflvíkingar komu grimmir til leiks í seinni hálfleik og jöfnuðu leikinn á 57. mín. Skúli vann bolt- ann á hægri kantinum og IBK - ÞOR 2:3 (0:1) gaf frábæra sendingu fyrir og þar kom Einar svíper Ás- björn og skallaði glæsilega í netið. Frábært mark. En Adam var ekki lengi í Para- dís. Þór komst aftur yfir 5. mín seinna þrátt fyrir að ÍBK hafði sótt þungt, náðu skyndisókn og skoruðu, vörn ÍBK var illa á verði. Heimamenn hófu þunga sókn á nýjan leik en fengu ekki afgerandi færi. Þeir jöfnuðu þó á 73. mín. Var þar að verki Rúnar Georgs- son, sem skoraði með löngu skoti sem virtist eiga að vera fyrirgjöf. Keflvíkingar höfðu jafnað á nýjan leik og áhorfendur, 600 tæplega, öskruðu af gleði. Siðustu mínúturnar sóttu liðin á víxl og allt leit út fyrir sann- gjarnt jafntefli. Nói Björns- son, Þórsari, var þó ekki á því og skoraði með góðu skoti frá vítateig eftir að boltinn hafði borist til hans frá hægra kanti framhjá sofandi vörn IBK. Algjört rothögg tveimur mínútum fyrir leikslok. „Nói fékk boltann úr langri sendingu og við vor- um einfaldlega of seinir, því við spiluðum maður á mann í vöminni. Við lékum upp á sigur, hugsuðum ekki um jafntefli. En það var mjög súrt að tapa svona. Þeir voru frískari í sókninni og nýttu vel sín færi“, sagði Valþór Sigþórsson fyrirliði ÍBK, eftir Ieikinn. „Ef annað liðið átti skilið sigur, þá var það Þór“, sagði Hólmbert þjálfari ÍBK. Sigi Held, landsliðsþjálf- ari Islands, var á leik IBK og Þórs og fylgdist með honum ásamt Guðna Kjartanssyni aðstoðarþjálf- ara landsliðsins. „Þetta var ekki góður lcikur. Leikmenn náðu ekki að sýna góða knattspyrnu. Eg held að jafntefli hefði verið sann- gjörn úrslit“, sagði lands- liðsþjálfarinn og vildi ekki kenna aðstæðum eða veðri hvernig leikurinn var. Bestu menn IBK voru þeir Skúli Rósantsson, Oli Þór Magnússon og Sigur- jón Sveinsson. Texti: Páll Ketilsson AFHROÐ UMFN Njarðvíkingar fóru ekki frægðarför til Akureyrar er þeir heimsóttu KA sl. föstudag. Norðanmenn unnu yfirburðarsigur og skoruðu fjögur mörk gegn engu. Sævar markvörður Njarðvíkinga bjargaði liði sínu frá enn stærra tapi með góðri markvörslu. -pket. Góður sigur UMFG Grindvíkingar gerðu góða ferð í Garðabæ um sl. helgi og sigruðu Stjörnuna með tveimur mörkum gegn einu. Mörk UMFG skor- uðu þeir Ragnar Eðvalds- son og Olafur Ingólfsson. pket. Bikarkeppni KSÍ 2. flokkur Sigur gegn Selfossi Keflvíkingar unnu góðan sigur á Selfyssingum í fyrstu umferð bikarkeppn- innar sl. fimmtudag. Leikið var á Selfossi og sigruðu Keflvíkingar með fjórum mörkum gegn engu. Freyr Bragason gerði fyrsta markið úr vítaspyrnu og Árni Vilhjálms skoraði annað markið eftir mikil mistök markvarðar Selfyss- inga. Þannig var staðan í hálfleik. í síðari hálfleik bættu Keflvíkingar tveim- ur mörkum við. Það voru þeir Einvarður Jóhannsson sem skoraði nteð skoti utan af miðjum velli, og Helgi Kárason sem skallaði glæsi- lega í netið. Keflvíkingar eru því komnir í aðra um- ferð bikarkeppninnar. gæi. Yngri flokkar: VÍÐIR-GRÖTTA: 6:5 (2:3) Litlu pollarnir í Víði léku leik við Gróttu frá Reykja- vík á Garðsvelli sl. fimmtu- dagskvöld, í leiðinda rign- ingu og kulda. Víðispollarnir skoruðu mark strax á 3. mín. leiks- ins, og var það Ólafur ívar sem þar var að verki. Grótta Iét ekki þar við sitja og bætti um betur og skoraði tvö mörk svo til í röð, eða á 10. og 14. mín. Var þar að verki besti maður leiksins, Hannes Guðmundsson. Staðan var síðan 3:2 fyrir Gróttu í hálfleik. Markasúpa í síðari hálfleik komust Gróttu-pollarnir upp í 5:3 og var það Hannes sem skoraði bæði mörkin, þaraf annað úr vítaspyrnu. Víðis- pollarnir létu ekki þar við sitja og jöfnuðu leikinn 5:5 þegar 5 mín. voru tiHeiks- loka. Það var síðan Ólafur Ivar sem skoraði sigur- markið fyrir Víði þegar tvær mínútur voru til leiks- loka. Sem samt 11 mörk í Gijrðijium, Víðir 6, Grótta 5. bangsi Úr leik Víðis og Gróttu. Víðismaður sækir að markinu, en markmaðurinn bjargar.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.