Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.07.1986, Qupperneq 20

Víkurfréttir - 03.07.1986, Qupperneq 20
viKun fréttit Fimmtudagur 3. júlí 1986 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Vallargötu 14, II. hæð. - Sími 4717. ERLING KE 45: Spurningin: Stækkar um 300 tonn Á laugardaginn var Erl- ing KE 45 dreginn í sundur upp í slippnum hjá Skipa- smíðastöð Njarðvíkur h.f. Var þetta gert svo hægt væri að setja tíu metra stórt stykki í skipið. Þar sem stykkið kemur í mitt skipið nýtist það að fullu til stækk- unar. Fyrir stækkun var skipið 246 tonn að stærð, en mun nú stækka um þrjú hundruð tonn og því hafa um sjö hundruð tonna burðargetu sem loðnuskip. Meðfylgjandi myndir voru teknar á laugardag þegar framendinn var dreg- inn frá afturendanum, sem nemur lengingu skipsins. epj. Erling KE 45 fyrir lengingu. ...skipið dregið frá í fulla stærð, hinum megin sést í stykki það sem kemur í skarðið. Þórir Maronsson: Skipaður yíirlögregluþjónn Sex sóttu um stöðu aðstoðaryflrlögregluþjóns Dómsmálaráðherra hef- ur skipað Þóri Maronsson í stöðu yfirlögregluþjóns við embætti lögreglustjórans í Keflavík, Njarðvík, Grind- avík og Gullbringusýslu frá og með 1. júlí sl. En Þórir var settur í stöðu þessa til eins árs á fyrra ári. Tuttugasta og fimmta júní rann út umsóknar- frestur um stöðu aðstoðar- yfirlögregluþjóns við sama embætti, en Herbert Árna- son var settur í þá stöðu á fyrra ári og losnaði það em- bætti 1. júlí sl. Alls sóttu sex um stöðuna og er endanleg ákvörðun um ráðningu í höndum dómsmálaráð- herra. Þeir sem sóttu um síðast töldu stöðuna voru: Her- bert Árnason, settur að- stoðaryfirlögregluþjónn; Karl Hermannsson, rann- sóknarlögreglumaður; Rúnar Lúðvíksson, settur aðalvarðstjóri; Pálmi Aðal- bergsson, settur ‘varðstjóri; Skarphéðinn Njálsson, að- stoðarvarðstjóri í lögreglu- liði Reykjavíkur og Oskar Þórmundsson, lögreglu- fulltrúi. Þegar ljóst var að fyrsti áfangi nýja flugstöðvarveg- arins muni aðeins ná frá Turnervegi að stöðinni, ótt- uðust margir að umferð að flugstöðinni yrði beint í gegnum Njarðvík og upp gamla flugvallarveginn. Myndi af þessu skapast veruleg slysahætta. Vegna þessa hafði blaðið samband við Sverri Hauk Gunnlaugsson, skrifstofu- stjóra Varnamáladeildar Utanríkisráðuneytisins. Allir þessir umsækjendur eru heimamenn og starfa þeir allir nema Skarphéð- inn við embætti lögreglu- Sagði hann að sú fram- kvæmd sem nú stæði yfir markaðist af fjárveitingu Bandaríkjamanna, en nú- verandi fjárhagsár stæði yfir til 1. sept. Ný fjárveit- ing væri hins vegar væntan- leg 1. okt. n.k. og þá yrði haldið áfram með veginn að Fitjum. Ef svo fer að vegalagn- ingu verði ekki lokið er flugstöðin verður tekin í notkun mun allri umferð stjórans í Keflavík, Njarð- vík, Grindavík og Gull- bringusýslu. -epj. verða beint um bráða- birgðaveg ofan byggðar, eða jafnvel innan vallar að Grænásnum en þar myndi umferðin tengjast nýja flug- stöðvarveginum. Þyrftu íbúar Njarðvíkur og Kefla- víkur því ekki að óttast að 'umferðinni yrði beint í gegnum bæinn, þann tíma sem liði þar til vegurinn yrði að fullu búinn, sagði Sverrir Haukur að lokum. epj. Umferðinni að nýju flugstöðinni: „Beint í gegnum flugvölliim - ef ofanbyggðarvegur verður ekki tilbúinn“, segir Sverrir Haukur Gunnlaugsson Fylgdist þú með heimsmeistara- keppninni? Oddný Ásmundsdóttir „Nei, ég fylgdist lítið með henni, en nóg til að vita að Argentína vann“. Axel Vilhjálmsson: „Nei, ég er búinn að vera á djúprækjuveiðum og hef því lítið fylgst með, nema í útvarpinu. - Argentína vann“. Jóhann Kristján Konráðsson: „Já, ég fylgdist mjög mikið með henni. Argen- tína vann, en mér fannst leikurinn Argentína-Belgía bestur“. Guðmundur Skúlason: „Já, ég fylgdist mikið með henni og fannst hún spennandi. Argentínu- menn unnu".

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.