Morgunblaðið - 23.11.2015, Side 10

Morgunblaðið - 23.11.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015 Eigum á lager Ford F350 Lariat 2016 og Dodge Ram 3500 Ford F350 2016 Lariat Dodge Ram 3500 Longhorn 2016 • Varahlutir • Sérpantanir • Aukahlutir • Bílasala • Verkstæði Umboðsaðilar BL á Selfossi IB ehf • Fossnes A • 800 Selfoss • ib.is Sími 4 80 80 80 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Flott og vandað nafnspjalder sýnileg framlenging afþér og þínu fyrirtæki ogþví mikilvægt að vanda til verksins,“ segir á vefsíðu Reykjavík Letterpress, hönnunarstofu, sem grafísku hönnuðirnir Hildur Sigurð- ardóttir og Ólöf Birna Garðarsdóttir stofnuðu haustið 2010. Fyrstu tvö ár- in voru þær einu starfsmennirnir, þá réðu þær reynslumikinn og mennt- aðan prentara og síðan prentnema og sölumann. Í tilefni af fimm ára afmæli stof- unnar efndu eigendurnir til leiks sem fékk nafnið Fimman og var þema fyrsta leiksins nafnspjalda- samkeppni og blésu aukinheldur til hófs á fimmtudaginn. „Við leikum okkur með fyrirbærið „gefðu mér fimmu“ eða „give me five“ sem flest- ir kannast við og felur í sér alls kon- ar jákvæðar tilfinningar, hvatningu, gleði, þakklæti og hrós svo eitthvað sé nefnt. Hugmyndin að nafngiftinni á samkeppninni kviknaði þegar við vorum að hanna afmælisboðskortið með yfirskriftinni „High five“,“ út- Tími nafnspjaldanna runninn upp að nýju Úrslit í hönnunarleiknum Fimman sem Reykjavík Letterpress efndi til á dögunum voru kunngerð á fimmtudaginn. Keppt var um hönnun nafnspjalda og fóru þrír grafískir hönnuðir með sigur af hólmi; tveir fyrir nafnspjöld fyrirtækja sinna og einn fyrir nafnspjald handa kettinum Gosa sem á við offituvandamál að stríða. Morgunblaðið/Golli Vinningsspjöldin Þrjú nafnspjöld sem dómnefndinni þótti af öðrum bera. Heimildarmyndin Á Æðruleysinu, sem Forlagið gefur út um tónlistar- manninn KK, Kristján Kristjánsson, verður sýnd kl. 17 á morgun, þriðju- dag 24. nóvember, í Bíó Paradís. Unnið hefur verið að gerð mynd- arinnar síðastliðin fimm ár og hefur útgefandi Forlagsins látið hafa eftir sér að myndin sé gæluverkefni hans. KK og félögum er fylgt eftir á tónleikum, farið með honum í róður á trillunni Æðruleysinu þar sem hann segir frá sjálfum sér og deilir sýn sinni á lífið og tilveruna. Með myndinni fylgir geisladiskur með átján perlum úr lagasafni KK, þar á meðal tvö lög sem ekki hafa verið gefin út áður. Í mynd- skreyttum bæklingi segir KK sög- urnar á bak við hvert lag. Tónlist- armaðurinn er af mörgum talinn þjóðargersemi, en hann stökk inn í íslenskt tónlistarlíf með sína fyrstu plötu fyrir hálfum þriðja áratug. Síðan hefur hann gefið út fjölmarg- ar sólóplötur og einnig plötur með Magnúsi Eiríkssyni og öðrum. Auk þess hefur KK leikið á ótal tón- leikum og komið fram í leikritum eins og Þrúgum reiðinnar. Þetta er eina sýningin sem haldin verður á heimildarmyndinni og að- gangur er ókeypis. KK leikur nokkur lög, léttar veitingar í boði og allir velkomnir. Útgáfuboð og sýning á nýrri heimildarmynd Morgunblaðið/Ómar KK Í heimildarmyndinni segir KK frá sjálfum sér og deilir sýn sinni á lífð. Á Æðruleysinu í Bíó Paradís frysta sæðið fyrir kynleiðréttingar- aðgerðina. Flyckt kveðst hafa átt von á fyrirspurnum frá trans- samfélaginu um legígræðslu, en eins Er nokkuð því til fyrirstöðu aðlæknar græði leg í karl svohann geti orðið barnshaf- andi?“ spurði ónafngreindur lesandi The New York Times fyrir nokkrum dögum. Tilefnið var umfjöllun blaðs- ins skömmu áður um skurðlækna- teymi við Cleveland-sjúkrahúsið sem hyggst á næstu mánuðum græða leg í konu sem ekki var með leg. Markmiðið er að gera henni kleift að verða barnshafandi og fæða barn. Sérfræðingur í vísindaskrifum blaðsins sendi fyrirspurnina til eins úr teyminu, dr. Rebeccu Flyckt, fæðingar- og kvensjúkdómalæknis og sérfræðings í frjósemis- og horm- ónameðferðum, sem brást skjótt við. Þyrfti að skapa leggöng Fræðilega sagði hún mögulegt að karl gæti orðið þungaður, en til þess að svo mætti verða þyrfti hann að gangast undir gríðarlegar skurð- aðgerðir og hormónameðferðir. Ekki aðeins þyrfti að skapa leggöng heldur þyrfti að byggja allt grind- arholið upp á nýtt og slíkt væri ein- ungis á valdi færs skurðlæknis í kyn- leiðréttingaraðgerðum. Að þeim aðgerðum loknum og jafnframt eftir að búið væri að græða leg frá líffæragjafa í karlinn, þyrfti að fara eftir afar flóknum reglum varðandi hormónagjöf til að styðja við meðgönguna bæði fyrir og eftir að fósturvísinum væri komið fyrir. Flyckt taldi hormónagjöfina sem slíka ekki vera vandamál, enda fengju konur á breytingaskeiði áþekka meðferð til að hjálpa þeim að verða þungaðar. Hún sagði áhugavert að í hugs- anlegri aðgerð af þessu tagi á karli væri sæði hans notað til að búa til fósturvísana og egg maka hans eða gjafaegg. Augljóslega þyrfti þá að og málum væri háttað takmörkuðust aðgerðir þar sem leg væri grætt í manneskju við konur sem ekki eru með starfhæft leg eða án legs. Geta karlar orðið þungaðir með legígræðslu? Getty Images/Creatas RF Kominn á steypirinn? Trúlega kæra fáir karla sig um að ganga með barn. Fræðilega er mögulegt að karl geti orðið þungaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.