Morgunblaðið - 23.11.2015, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Golli
Grafískir hönnuðir F.v. Hildur Sigurðardóttir, Hrund Guðmundsdóttir, Oscar Bjarnason, sem var í 1. sæti, og Ólöf
Birna Garðarsdóttir. Dagný Reykjalín, sem deildi 2. og 3. sætinu með Hrund, var fjarverandi á Akureyri.
skýrir Ólöf Birna. Trúlega finnst
mörgum nafnspjöld að mörgu leyti
úrelt fyrirbæri nema í undantekn-
ingartilvikum eins og á sýningum
þar sem starfsmenn margra fyrir-
tækja koma saman og álíka sam-
kundum. Ólöf Birna fullyrðir hins
vegar að tími nafnspjaldanna sé
runninn upp á nýjan leik, núna séu
bara gerðar meiri kröfur til þess að
þau standi upp úr.
„Nafnspjaldamenningin hefur
verið víkjandi síðustu fimm til tíu ár-
in, enda allir á bólakafi í sínum raf-
ræna heimi þar sem þeir senda hvers
kyns boð og upplýsingar sín á milli.
Þótt fólk dæli kannski ekki nafn-
spjöldum út og suður eins og áður,
virðist það kunna æ betur að meta að
fá áþreifanlegan og fallegan prent-
grip í hendurnar. Nafnspjöld fanga
meiri athygli heldur en rafræn boð.
Tengingin og nálgunin er öðruvísi,
jafnvel tilfinningaleg,“ segir Ólöf
Birna og bætir við að nafnspjald geti
verið margra auglýsinga virði. Sjálf
á hún nokkur í skrifborðinu sínu sem
hún tímir ómögulega að henda.
Þótt Hildur og Ólöf Birna hafi
hugsað nafnspjaldasamkeppnina
sem skemmtilegan leik, var allt á
faglegum nótum. Þátttakendur
fengu skýr fyrirmæli og þurftu að
uppfylla ákveðnar kröfur varðandi
liti, pappír og þess háttar. Um
„tæknistöffið“ sögðu þær í bréfi til
þeirra tólf sem skráðu sig til leiks:
„Við viljum halda öllu opnu hvað
varðar tæknilausnir sem við getum
græjað, t.d. litlaust þrykk, upphleyp-
ing, stönsun, fólía, litaðir kantar
(edge painting)“. Í leiðbeiningum um
pappír koma fyrir orð eins og Mun-
ken Rough og Kvist-papp. Leikurinn
var augljóslega ekki ætlaður leik-
mönnum.
Áskorun og flækjustig
Enda skráðu sig eingöngu fag-
menn til leiks; grafískir hönnuðir og
miðlarar og arkitekt. „Hönnuðir
þurfa stundum að sletta úr hönn-
unarklaufum sínum og finna frelsið
til að hanna eitthvað áhugavert á
eigin forsendum. Markmið okkar
með leiknum var að gefa þeim tæki-
færi til að vinna tillögur að prent-
gripum þar sem allt væri opið tækni-
lega. Og hvetja þá jafnframt til að
nýta sér möguleika letterpress-
prenttækninnar án þess að þurfa að
horfa í kostnaðinn. Við vorum reiðu-
búnar til að taka áskorunum í prent-
uninni og hvöttum þátttakendur í
rauninni til búa til svolítið flækjustig
– að ýta okkur fram að brúninni,“
segja þær.
Sigurvegararnir þrír eru graf-
ískir hönnuðir. Að sögn Ólafar Birnu
valdi dómnefndin, sem samanstóð af
fagfólki í grafískri hönnun og hug-
myndasmíð, nafnspjöld þeirra vegna
skemmtilegrar og óhefðbundinnar
nálgunar á viðfangsefninu. Í fyrsta
sæti var Oscar Bjarnason með nafn-
spjald með eigin nafni.
„Oscar notar naumhyggjulega
fídusa. Við fyrstu sýn virðist nafn-
spjaldið einfalt, en við nánari skoðun
sést flókin útfærsla. Oscar blandar
saman fólíuprentun og þrykki á hug-
vitssamlegan hátt. Þrykkið á bak-
hliðinni kemur fram í mynstri á
framhliðinni og úr verður skemmti-
legur skuggaleikur. Kantarnir eru
handlitaðir og þegar spjaldinu er
snúið sést blái tónninn á jöðrunum
greinilega.“
Blek og feiti kötturinn Gosi
Hrund Guðmundsdóttir og
Dagný Reykjalín deildu saman 2. og
3. sæti. Dómnefndin gat ekki gert
upp á milli nafnspjalds sem Hrund
hannaði handa kettinum sínum eða
þess sem Dagný hannaði fyrir Blek,
auglýsingastofu sína á Akureyri.
„Gosi, kötturinn hennar Hrund-
ar, er ógeðslega feitur, um 10 kíló.
Hann er með instagram síðuna
#gosifeiti þar sem hægt er að fylgj-
ast með honum í dagsins önn, meðal
annars þegar hann er hann er settur
í megrun. Hrund hannaði fyrir hann
kattarspjald, sem er útklippt eins og
kattarhöfuð með eyrun upp – við
köllum það stönsun – með þrykktum,
litlausum loppuförum þvert yfir.
Dagný nýtir sér óvenjulega blöndun
í prenttækni, annars vegar er graf-
íkin á framhliðinni þrykkt og hins
vegar upphleypt og skapar þannig
mörg skuggalög í pappírnum. Svarti
liturinn myndar svo dropa sem fellur
í vatn,“ segir Ólöf Birna.
Ekki fyrsta Fimman
Þótt leikurinn hafi verið til gam-
ans gerður fengu sigurvegararnir
veglega prentgripi í verðlaun; eitt
hundrað stykki nafnspjöld, sem þeir
geta nýtt að vild sem kynningarefni
eða sent í innlendar sem erlendar
hönnunarkeppnir.
Fimman í ár er bara sú fyrsta.
Hildur og Ólöf Birna hyggjast halda
fimmur að minnsta kosti einu sinni á
ári og skapa með framtakinu til-
breytingu í íslenska hönnun. Næst
verður kannski keppt í hönnun boðs-
korta, glasamotta eða póstkorta.
Þær eru rétt að byrja.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015
Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek
Sérstaða Reykjavík Letterpress
er eins og nafnið bendir til let-
terpress-prentun, sem byggist
á aldagamalli aðferð. Þegar Gu-
tenberg fann upp prentlistina á
15. öld var lausu letri raðað
saman staf fyrir staf, letter-
press var aðferðin nefnd.
Í nútíma letterpress-prentun
eru að mestu notaðar prent-
klisjur úr plasti og tæknileg
undirbúningsvinna fer að mestu
fram í tölvu. Grafíkin er keyrð út
á filmu sem framkölluð er á
plastefnið og eftir situr það
sem á að þrykkjast.
Aldagömul
prentaðferð
REYKJAVÍK LETTERPRESS