Morgunblaðið - 23.11.2015, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 23.11.2015, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015 Glamox Luxo er leiðandi framleiðandi LED lýsingarbúnaðar og býður heildarlausnir fyrir skóla og bókasöfn Leitaðu upplýsinga hjá löggiltum rafverktökum, lýsingahönnuðum og arkitektum Fáðu fagmann í verkið til að tryggja rétta meðhöndlun, endingu og ábyrgð. Það er þitt öryggi. www.reykjafell.is nágrennis í Kópavogi er nú til kynningar á vef Kópavogsbæjar. Verkefnalýsingin var samþykkt á fundi skipulagsnefndar Kópavogs 5. október sl. og á fundi bæj- arstjórnar 13. október sl. Opinn kynningarfundur var haldinn í Hörðuvallaskóla fimmtudaginn 29. október. Frestur til að gera at- hugasemdir er til kl. 15 mánudag- inn 30. nóvember næstkomandi. Kynningin á lýsingu skipulags- verkefnisins og matslýsing er sam- kvæmt tímaáætlun sem birt er í verkefnalýsingunni. Drög að deili- skipulagstillögu og umhverfis- skýrslu á svo að kynna fyrir al- menningi og umsagnaraðilum á heimasíðu Kópavogsbæjar í desem- ber næstkomandi. Síðan verða til- laga að deiliskipulagi og umhverf- isskýrsla auglýstar í sex vikur á heimasíðu Kópavogsbæjar í febr- úar til mars á næsta ári. Verði ekki tafir eða breytingar er stefnt að af- greiðslu og staðfestingu deiliskipu- lagsins í maí 2016. Framkvæmdir 2017? Björn sagði að deiliskipulag væri aðeins eitt af mörgu sem þyrfti að ljúka áður en framkvæmdir gætu hafist. „Það þarf til dæmis að fá leyfi Heilbrigðiseftirlits Kópavogs og Hafnarfjarðar og leyfi Umhverfis- stofnunar,“ sagði Björn. Hann Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ferðamenn sem hafa farið niður í Þríhnúkagíg eru orðnir á annan tug þúsunda. Síðastliðið sumar var það fjórða sem boðið var upp á ferðir niður í gíginn. Fyrsta sum- arið voru farnar fáar ferðir en síðan hefur þeim fjölgað ár frá ári, að sögn Björns Ólafssonar, framkvæmda- stjóra Þríhnúka ehf. „Upphaflega var farið í þetta til þess að fá til- finningu fyrir því hvernig gestir tækju þessu,“ sagði Björn. Hann sagði að ferðirnar hefðu spurst vel út og fengið góðar umsagnir í fjöl- miðlum og víðar. „Gestir þurfa að ganga frá Blá- fjöllum að og frá gígnum, þrjá kíló- metra hvora leið. Það er heilmikil upplifun fólgin í því. Bláfjöllin eru í 500 metra hæð yfir sjó og þar er allra veðra von. Við erum því mjög háð veðri. Við höfum boðið upp á ferðir frá miðjum maí og fram í september. Þegar líður á tímabilið hefur oft þurft að fella niður ferðir vegna veðurs,“ segir hann. Fólk sem farið hefur niður í gíg- inn er á öllum aldri. Fyrsta daginn sem boðið var upp á ferð fyrir al- menna ferðamenn kom 89 ára gam- all breskur herramaður til að heim- sækja iður jarðar. „Hann hafði séð fjallað um þetta í einhverju blaði heima hjá sér og ætlaði ekki að missa af þessu,“ sagði Björn. „Mað- urinn var klæddur vaxbornum jakka og gekk að gígnum kvikur og flottur. Ég hrósaði honum fyrir gönguna og hann sagði að hún væri ekkert mál. Ef hann myndi drepast hér þá væri frábært að fara þann- ig!“ Íslendingar eru í minnihluta þeirra sem fara niður í gíginn. Þeim hefur þó fjölgað hlutfallslega, sérstaklega á haustin og vorin. Björn taldi að það ætti við um fleiri greinar ferðaþjónustu hér á landi að flestir sem kæmu í ferðir væru útlendingar. Deiliskipulag undirbúið Verkefnalýsing vegna undirbún- ings deiliskipulags Þríhnúkagígs og kvaðst telja að það yrði í fyrsta lagi árið 2017 sem framkvæmdir gætu mögulega hafist, fengjust öll leyfi. Tólf ár eru síðan farið var að vinna að því að opna aðgengi að Þríhnúkagíg og vernda um leið þessa ótrúlegu náttúrusmíð. Verk- efnið hefur þegar farið í gegnum mat á umhverfisáhrifum og í því fólust margir þættir sem koma til álita í deiliskipulagi. Allir gátu gert athugasemdir í því ferli þannig að verkefnið hefur nú þegar fengið mikla kynningu. „Þetta er inni í aðalskipulagi Kópavogsbæjar og svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins,“ sagði Björn. Hann sagði það á forræði Kópavogsbæjar að vinna deiliskipu- lagið. Verkefnið er byggt á hug- myndum sem Árni B. Stefánsson, augnlæknir og hellakönnuður, setti fram fyrir 12-13 árum. Björn sagði að unnið hefði verið út frá þeirri frumhönnun á verkefninu sem þar kom fram. Sjálf verkhönnunin og verkfræðivinnan vegna fyrirhug- aðra framkvæmda er eftir. Morgunblaðið/Golli Fegurð „Upphaflega var farið í þetta til þess að fá tilfinningu fyrir því hvernig gestir tækju þessu,“ sagði Björn. Á annan tug þúsunda niður í gíginn  Þríhnúkagígur eftirsóttur hjá ferða- mönnum  Verkefnalýsing til undir- búnings deiliskipulagi í kynningu Þríhnúkagígur Fólk sem farið hefur niður í gíginn er á öllum aldri. Björn Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.