Morgunblaðið - 23.11.2015, Page 14

Morgunblaðið - 23.11.2015, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015 Þú gerir ekki *samkvæmt dekkjaprófun haustið 2014 Ipike W419Winter i'cept Korna- dekk – Síðan 1941 – Smiðjuvegi 68-72, Kóp Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Austurvegi 52, Selfossi Skútuvogi 2, Rvk Sími 568 3080 betri kaup! Áberandi gott skv. FÍB* Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Umsvifin hafa aukist hratt hjá ráð- gjafar- og þjálfunarfyrirtækinu Profectus. Þótt Profectus sé aðeins á þriðja starfsári starfar þar í dag teymi markþjálfa og hefur starf- semin teygt úr sér alla leið til Kan- ada, Suður-Afríku og nú síðast Ír- lands. Ingvar Jónsson er stofnandi og framkvæmdastjóri Profectus, sem hann segir sérhæfa sig í mjúku mál- unum; þróun mannauðs á sviði per- sónufærni þar sem rík áhersla er á þá nálgun sem kallast „heildar- hugsun“. Gaf Profectus á dögunum út nýja bók fyrir fagfólk og stjórn- endur, The Whole Brain Leader , sem Ingvar lýsir sem sjálfshjálpar- bók fyrir stjórnendur. „Bókin á að hjálpa stjórnandan- um að komast af í síkvikri við- skiptaveröld með því að beita heild- arhugsun á viðfangsefni fyrirtækis- ins og nýta markþjálfun sem stjórnunarstíl. Með útgáfu bókar- innar erum við að færa út kvíarnar, og þá einkum með augastað á Skandinavíu,“ útskýrir Ingvar. Fjórar manngerðir Í sinni einföldustu mynd má lýsa heildarhugsunarnálgun (e. whole brain thinking) þannig að samskipti og samstarf taki tillit til ólíkra „hughneigða“ starfsmanna. Upp- hafsmaður heildarhugsunar kom auga á að skipta mátti fólki í fjóra meginflokka sem allir hafa sínar veiku og sterku hliðar sem þarfnast ólíkrar nálgunar af hálfu stjórnand- ans. „Fyrsti hópurinn er sá blái, sem er raunsæja fólkið. Undir græna flokkinn falla þeir hefð- bundnu og skipulögðu. Þeir sem hafa sterka tilfinningavitund, fé- lagsverurnar ef svo má að orði komast, tilheyra rauða fjórðungn- um, og loks er gula manngerðin sem er hinn ráðsnjalli hugmynda- smiður,“ segir Ingvar. „Hver hópur sér heiminn með sínum hætti, og geta sömu skilaboðin innan fyrir- tækis bæði skilist og misskilist eftir því hvaða fjórðungi viðtakandinn tilheyrir mest.“ Bendir Ingvar á að lykillinn að árangri hvers fyrirtækis sé ekki að stjórnandinn viti og geti allt, heldur að hann geti dregið fram þá þekk- ingu og hæfni sem býr í starfsfólk- inu. Þar leiki góð mannleg sam- skipti lykilhlutverk. „Enda kemur það í ljós á ráðstefnum og vinnu- stofum Profectus að þegar fólk er beðið að lýsa einkennum þess stjórnanda sem það hefur kynnst og lítur mest upp til nefnir fólk í 99% tilvika stjórnendur sem standa vel að vígi í því sem við köllum mjúku málin. Þessir stjórnendur búa yfir persónulegum þolgæðum og kunna að sýna starfsfólki sínu traust og hlýju. Þetta eru atriði sem mætti segja að væru „fluffy“ og tengjast ekki beinhörðum tölum í rekstrinum en reynast skipta mestu máli þegar upp er staðið,“ útskýrir Ingvar. „Bestu stjórnendurnir temja sér líka að skoða málin frá öllum hliðum, beita heildarhugsun og tileinka sér hæfnisþætti mark- þjálfans til að tengjast fólkinu sínu betur.“ Fastir á flugbrautinni Það sem Ingvar lýsir gæti virst vera almenn skynsemi. Auðvitað þarf að nálgast ólíkt fólk með ólík- um hætti, og reyna að skoða krefj- andi ákvarðanir frá mörgum hlið- um. Hann segir að margir stjórnendur lendi samt í þeim spor- um að gleyma almennu skynsem- inni. „Hraðinn í rekstrinum er svo mikill, gegndarlaus krafa um árang- ur og oft líka mikill ótti við verk- og valddreifngu. Þetta gefur stjórn- andanum hvorki tíma né svigrúm til að fara með athyglina upp í þá hæð að sjá þessa hluti. Vélarnar eru ræstar en flugvélin situr föst á flug- brautinni. Oft er það sem skapa þarf ró og rými og taka stjórnand- ann um stund út úr hringiðu rekstr- arins svo hann sjái hlutina í nýju ljósi.“ Segir Ingvar að íslensk fyrirtæki séu þarna engin undantekning. „Ég finn að allir eru að gera sitt besta, og vinna af heilindum, en álagið er mikið og grátlegt hversu litla at- hygli þróun mannauðsins fær, og þá sérstaklega mýkri málin.“ Leggi rækt við mjúku málin  Hraðinn í rekstrinum og ótti við verk- og valddreifingu kemur í veg fyrir að stjórnendur komi auga á augljós atriði sem bæta samskipti og ákvarðanatöku Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson Ábati Ingvar Jónsson segir að þegar að er gáð komi í ljós að bestu stjórn- endurnir reynist oft þeir sem kunna að sýna starfsfólkinu traust og hlýju. Hlutabréf í skyndibitakeðjunni Chipotle lækkuðu um 9% eftir að í ljós kom að E. coli-smit hefur verið rakið til Chipotle-veitingastaða víða í Bandaríkjunum. Komu fyrstu smitin í ljós í Oregon og Wash- ington en síðan þá hafa Kalifornía, New York, Ohio og Minnesota bæst á listann. Hafa 45 manns greinst með til- tekið afbrigði af E. coli en af þeim höfðu 43 snætt á Chipotle. Enginn hefur látist vegna smitsins en 36 voru lagðir inn á spítala. Ekki hefur enn tekist að greina hvaða hráefni á matseðlinum olli smitinu. Í yfirlýsingu frá Chipotle segir að svo virðist sem tekist hafi að kom- ast fyrir vandann seint í október. Að sögn Financial Times heitir keðjan því að grípa til umfangsmik- illa aðgerða til að efla matvæla- öryggi. Málið getur þó dregið dilk á eftir sér enda sýnir reynslan að uppákomur af þessum toga geta haft áhrif á sölutölur veitingastaða löngu eftir að tekist hefur að hefta frekari útbreiðslu. ai@mbl.is AFP Biti Chipotle hefur verið á miklu flugi en gæti núna lent í vanda. Chipotle í vanda vegna E. coli smits Greinendur Goldman Sachs Group segja að eftir þriggja ára erfið- leikatímabil sé útlit fyrir umskipti hjá mörgum nýmarkaðslöndum. Hagvöxtur gæti tekið við sér og veikari gjaldmiðlar hjálpað efna- hagslífi margra nýmarkaðslanda að spyrna sér frá botninum. Gætu aðstæðurnar verið svo hagfelldar á næstu árum að kynni að jafnast á við vöxtinn sem varð á fyrsta ára- tug þessarar aldar. Goldman spáir því að hagvöxtur í nýmarkaðslöndum aukist úr 4,4% á þessu ári upp í 4,9%. Lönd á borð við Kólumbíu, Suður-Afríku, Tyrk- land og Malasíu eiga enn eftir, að mati Goldman, að leysa úr því ójafnvægi sem er á viðskiptajöfnuði en á meðan lenda Rússland, Indland og Pólland í hópi þeirra þjóða sem eru komin á þann stað að geta hafið sig aftur til flugs. Hvað gerir Kína? Bloomberg greinir frá að helsti áhættuþátturinn í spá Goldman sé sá möguleiki að kínverski gjaldmið- illinn lækki mikið í verði. Ef Banda- ríkjadalur myndi styrkjast og ef hægir enn frekar á hagvexti í Kína gætu stjórnvöld þar í landi gripið til aðgerða sem myndu veikja gjald- miðilinn og hefði það keðjuverk- andi áhrif sem næðu til margra ný- markaðslanda. Mælir Goldman Sachs með því að fjárfestar veðji á mexíkóska pesó- inn og rússnesku rúbluna en gegn suðurafríska randinu og síleska pesóinum. Stöðugra heimsmark- aðsverð olíu gæti hjálpað rúblunni og mexíkóska pesóinum en hætt er við að lækkandi verð á málmum komi sér illa fyrir Suður-Afríku og Síle. ai@mbl.is Spá uppgangi í nýmarkaðslöndum AFP Lægð Lönd á borð við Rússland gætu farið að spyrna sér frá botn- inum. Maður að störfum í rúss- neskri sementsverksmiðju.  Goldman veðjar gegn S-Afríku og Síle

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.