Morgunblaðið - 23.11.2015, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015
Keilulegur Flans- og búkkalegur Hjólalegusett Nála- og línulegur
LEGUR
Í BÍLA OG TÆKI
Það borgar sig að nota það besta!
TRAUSTAR VÖRUR
...sem þola álagið
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is
Kúlu- og
rúllulegur
SVIÐSLJÓS
Bjarni Steinar Ottósson
bso@mbl.is
Mikill viðbúnaður verður áfram í
Brussel í dag. Skólahald og almenn-
ingssamgöngur liggja niðri og fólk er
hvatt til þess að halda sig innan dyra.
Síðustu daga hafa yfirvöld leitað
hryðjuverkamanna í borginni. „Það
sem við óttumst eru svipaðar árásir
[og í París], framdar af nokkrum ein-
staklingum á nokkrum stöðum,“
sagði Charles Michel, forsætisráð-
herra Belgíu, eftir fund þjóðarör-
yggisráðsins í gærkvöldi þar sem
ákveðið var að borgin yrði áfram á
efsta hættustigi vegna „alvarlegra
og yfirvofandi“ hryðjuverkaárása.
„Ástandið er mjög erfitt,“ sagði
Michel, en götur borgarinnar hafa
verið nær auðar um helgina og vopn-
aðir her- og lögreglumenn hvarvetna
sjáanlegir. „Við erum að gera allt
sem í okkar valdi stendur til þess að
koma lífinu aftur í eðlilegt horf.“
Hættustigið verður endurskoðað í
dag en núverandi viðbúnaði fylgir
mikil truflun á efnahagslífi borgar-
innar.
Leita hryðjuverkamanna áfram
Michel gaf ekkert upp um fram-
vindu leitarinnar að þeim hryðju-
verkamönnum sem hættan er talin
stafa af en staðfesti að um væri að
ræða nokkra. Þá var í gærkvöldi enn
leitað að Saleh Abdeslam, síðasta
eftirlifandi árásarmanninum sem tók
þátt í árásunum í París.
Bróðir hans, Brahim, var einnig
meðal árásarmanna en þriðji bróð-
irinn, Mohamed, hefur biðlað til Sa-
lah um að gefa sig fram svo fjöl-
skyldur þeirra og fórnarlambanna
geti fengið þau svör sem þau eigi
skilið.
Efna- og sýklaárás möguleg
Varnarmálaráðherra Frakklands,
Jean-Yves Le Drian, sagði árás með
efna- eða sýklavopnum meðal þeirra
möguleika sem hætta væri á. Allt
hefði þó verið gert sem mögulegt
væri til þess að koma í veg fyrir slíkt.
Lyfjadreifingarstöðvar hersins
veittu á laugardag almennum við-
bragðsaðilum aðgang að birgðum
sínum af mótefnum gegn efnavopn-
um. Meðal þess sem horft er til í
Frakklandi með auknum öryggis-
ráðstöfunum nú er loftslagsráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna sem fer
fram í París frá 30. nóvember þar
sem helstu leiðtogar heimsins munu
koma saman.
Vitorðsmaður handtekinn
Tyrkir tilkynntu á laugardag að
þeir hefðu handtekið belgískan rík-
isborgara af marokkóskum ættum,
Ahmad Dahmani, grunaðan um aðild
að hryðjuverkunum í París. Hann
var handtekinn í suðurhluta landsins
ásamt tveimur Sýrlendingum sem
voru sagðir ætla að hjálpa honum að
komast yfir landamærin til Sýrlands.
„Öryggisstofnanir halda því fram
að Dahmani sé liðsmaður Íslamska
ríkisins. Okkar mat er að hann hafi
verið í sambandi við hryðjuverka-
mennina sem framkvæmdu árásirn-
ar í París,“ var haft eftir heimildar-
manni innan tyrknesku
ríkisstjórnarinnar. Dogan fréttastof-
an sagði Dahmani hafa kannað
mögulega staði til þess að ráðast á í
París en sá grunur hefur ekki fengist
staðfestur af yfirvöldum.
Alþjóðleg sátt um aðgerðir
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti á föstudag ályktun þar
sem þjóðum var heimilað að beita
„öllum nauðsynlegum ráðum“ til
þess að stöðva árásir herskárra
múslima.
Ályktunin var birt sama dag og
hryðjuverkamenn réðust inn á Rad-
isson Blu hótel í Malí og myrtu tugi
manns. Vladimír Pútín sagði árásina,
sem sex Rússar féllu í, sýna að
hryðjuverkastarfsemi væri landa-
mæralaus og breðgast þyrfti við
henni með breiðri alþjóðlegri sam-
vinnu. Samdægurs var einnig til-
kynnt að ellefu vígamenn tengdir
Íslamska ríkinu hefðu verið felldir á
Kákasus-svæðinu.
Óttast eins árásir og í París
Skólahald og almenningssamgöngur liggja áfram niðri í Brussel af ótta við sambærilegar árásir og í
París Óþekkts fjölda hryðjuverkamanna leitað í borginni Frakkar búa sig undir efna- og sýklaárás
AFP
Syrgt Mohamed Abdeslam kveikir á
kertum við heimili fjölskyldunnar.
AFP
Á verði Gríðarleg öryggisgæsla er í Brussel og her- og lögreglumenn á flestum fjölförnum stöðum á meðan örygg-
issveitir leita hryðjuverkamanna í borginni. Hæsta hættustig verður í gildi í borginni í dag.
Salah Abdeslam er ákaft leitað í Brussel, þangað sem
hann slapp í bíl sem ekið var af tveimur vinum hans sem
sóttu hann til Parísar eftir árásirnar. Þeir menn eru í
haldi lögreglu. Lögmaður þeirra hefur greint frá því að
Abdeslam hafi verið í stórum frakka, hugsanlega yfir
sprengjuvesti, og hann hafi verið í miklu uppnámi. Hann
komst þó í þrígang í gegnum vegatálma lögreglu á leið-
inni þar sem lögreglumenn þekktu hann ekki.
Aðrir vinir Abdeslam sögðu ABC News að þeir hefðu
rætt við hann á Skype í vikunni. Hann væri í felum í
Brussel og í örvæntingarfullri leit að leið til þess að komast til Sýrlands.
Þeir segja hann þó áhyggjufullan yfir reiði liðsmanna Íslamska ríkisins
vegna þess að hann hafi ekki sprengt sprengjuvesti sitt í árásinni.
Sagður milli steins og sleggju
EINI EFTIRLIFANDI ÁRÁSARMAÐURINN LEITAR FLÓTTALEIÐAR
Salah Abdeslam
Gríðarstór
skriða féll í
Kachin-héraði í
norðanverðu
Myanmar á laug-
ardag. Yfirvöld
hafa sagt 97 hið
minnsta hafa
fundist látna en
margra er enn
saknað. Enginn
hafði fundist á
lífi í skriðunni gær en hún reið
snöggt yfir og gróf fjölda kofa þar
sem fólk svaf. Skriðan féll á svæði
þar sem óþekktur fjöldi fólks, flest
farandverkamenn, býr í kofum og
lifir á því að tína jaði, græna steina,
úr fjallshlíðum og malarhrúgum
sem stórtækari námavinnsla skilur
eftir sig. Jaðiiðnaðurinn er um-
fangsmikill á þessu svæði en lýtur
lítilli stjórn og mannfall verður iðu-
lega í skriðum og öðrum slysum
sem hafa kostað tugi lífið í ár en
skriðan á laugardag er talin sú
mannskæðasta hingað til. Náma-
fyrirtæki tengd fyrrverandi her-
yfirvöldum í landinu hafa sótt í
auknum mæli á svæðið, sem er sagt
afar illa farið, og hafa heimamenn
orðið illa úti vegna þess. bso@mbl.is
MANNSKÆÐ SKRIÐA Í MYANMAR
Aðeins lík komið upp úr grjótinu
Lík Um hundrað
hafa fundist látnir.
Ali Ahsan Mo-
hammad Mujahid
og Salahuddin
Quader Chowd-
hury voru
hengdir snemma
í gær í Dhaka,
höfuðborg
Bangladess. Þeir
voru dæmdir til
dauða fyrir þjóð-
armorð og
nauðganir í borgarastríðinu þegar
Austur-Pakistan klauf sig frá vest-
urhlutanum og Bangladess var
stofnað árið 1971. Þeim var m.a.
gefið að sök að hafa myrt fjölda
menntafólks og sjálfstæðissinna.
Mujahid og Chowdhury voru
báðir virkir stjórnarandstöðuleið-
togar og fyrrverandi ráðherrar.
Mujahid var næstráðandi Jamaat-e-
Islami, stærsta íslamistaflokks
landsins, og Chowdhury áhrifamik-
ill innan BNP-flokksins.
Báðir héldu fram sakleysi sínu og
sögðu dóminn yfir þeim pólitísk
klækjabrögð. Þeir voru dæmdir
fyrir sérstökum dómstól sem hafði
það hlutverk að gera upp við þann
tíma þegar landið var stofnað en
róstusamt hefur verið í Bangladess
síðan hann tók til starfa
Pakistönsk yfirvöld hörmuðu af-
tökurnar og kölluðu eftir sátt í til-
kynningu í gær. bso@mbl.is
STRÍÐSGLÆPIR Í BANGLADESS
Stjórnarandstöðuleiðtogar hengdir
Aftaka Mujahid í
júlí á þessu ári.