Morgunblaðið - 23.11.2015, Side 16

Morgunblaðið - 23.11.2015, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Því fer fjarri aðstórborgir íEvrópu séu einu staðirnir þar sem allt er í hers höndum vegna íslamskra hryðju- verkamanna. Hryðjuverka- samtökin Boko Haram hafa færst nokkuð í aukana í Nígeríu að undanförnu, felldu til að mynda 32 og særðu upp undir 80 í skæðri sjálfsvígsárás í norð- austurhluta landsins í liðinni viku. Í annarri árás sprengu tvær stúlkur á táningsaldri sig í loft upp og felldu á annan tug manna. Þá felldu liðsmenn Boko Haram níu manns í norðurhluta Kamerún í sjálfsmorðsárás um helgina og særðu tugi annarra. Muhammadu Buhari, forseti Nígeríu, sem fyrr á þessu ári var kosinn með því loforði að hann myndi vera búinn að ganga milli bols og höfuðs á samtökunum fyrir áramót, stendur nú frammi fyrir því, að það mun taka lengri tíma að kveða niður þennan draug. Þá hefur enn ekki tekist að finna stúlkurnar sem Boko Haram hnepptu í þrældóm fyrir meira en ári. Mun lítil von vera til þess að það takist úr þessu. Boko Haram eru, líkt og Ríki íslams, öfgafull íslömsk samtök, sem hafa á liðnum árum sýnt mannslífum fullkomið virðingar- leysi. Þó að mannvonska þessara tvennra samtaka verði seint veg- in og metin er þó rétt að hafa í huga að Boko Haram eru ekki síður stórtæk í manndrápunum en Ríki íslams. Institute of Economics and Peace hefur til dæmis tekið saman tölur sem sýna að í fyrra hafi Boko Haram fellt 6.664 en Ríki íslams 6.073. Þá hefur Boko Haram, líkt og Ríki íslams, náð að sölsa undir sig nokkurt landsvæði og hefur gengið treglega að vinna það til baka. Nígeríuher þykir of fálið- aður, og reynist samtökunum auðvelt að hörfa og sækja fram á öðrum stað þegar þeim hentar. Þá hefur aðstoð nágrannaríkja Nígeríu, sem Boko Haram hefur einnig herjað á, ekki reynst jafn vel og vonast var til í fyrstu, þar sem innbyrðis ósætti á milli bandamannanna hefur aftrað að- gerðum. Þá bætir ekki stöðuna, að spilling virðist landlæg í Níger- íu. Í kjölfar árásarinnar í liðinni viku var Sambo Dasuki, ráðgjafi Jonathans Goodluck, forvera Buharis í forsetaembættinu, handtekinn fyrir að hafa dregið sér nærri því tvo milljarða Bandaríkjadala, sem eyrna- merktir voru baráttunni gegn Boko Haram. Sömuleiðis hafa komið upp nokkur stór mútumál innan raða Nígeríuhers, sem hafa dregið úr honum þrótt, og fælt önnur ríki frá því að selja honum vopn. Á þessu öllu þarf að taka, ætli Nígería sér að ráða niðurlögum öfgasamtakanna. Athygli hins vestræna heims hefur á síðustu dögum beinst mjög að Ríki íslams og því grett- istaki sem lyfta þarf til þess að binda enda á voðaverk samtak- anna. Þetta er eðlilegt, en má þó ekki verða til þess að hið skelfi- lega ástand í Nígeríu og ná- grannaríkjunum falli í gleymsk- unnar dá, nú þegar þörfin á aðgerðum gegn Boko Haram er brýnni en nokkru sinni fyrr. Boko Haram lætur enn á sér kræla}Ógnirnar eru víða Á vef vikuritsinsDer Spiegel segja tveir blaða- menn hans í fyrir- sögn greinar að Belgía „sé að breyt- ast í miðstöð hryðjuverkaógna Evrópu“. Það er mikið sagt. Í upphafi greinar sinnar vitna þeir í orð Charles Michel, for- sætisráðherra Belgíu: „Hryðju- verkaárásirnar voru afleiðingar af opnun landamæra á megin- landi Evrópu.“ Forsætisráð- herrann hafi bætt því við „að lög- regluyfirvöld í aðildarlöndum ESB deili of litlum upplýsingum sín á milli“. Michel forsætisráð- herra hafi einnig lýst efasemdum sínum um Schengen-samninginn og bætt því við að nú stæðu menn frammi fyrir mun alvarlegri ógn- um en áður. Greinarhöfundar benda á að þessi orð hafi raunar fallið í janúar sl. þegar m.a. var gerð morðárás á starfsmenn tímaritsins Charlie Hebdo. Sá óhugnaður má þó heita smár hjá morðæðinu sem skildi 132 mann- eskjur eftir í valnum og hundruð særðra, suma mjög alvarlega. Í greininni segir að helsti skipuleggjandi til- ræðisins fyrir rúmri viku hafi komið úr Molenbeek- borgarhverfinu í Brussel og að minnsta kosti einn annar úr hópi tilræðismanna komi einnig þaðan. Stór-Brusselsvæðið hafi lengi verið talið gróðrarstía róttækra íslamista. Vandræðahverfi á borð við „Molenbeek og Anderlecht séu þekkt sem einangruð sam- félög innflytjenda þar sem öfga- mennirnir eigi auðvelt með að halda sig neðanjarðar“. Loka- spurning greinarhöfunda er sú „hvort Belgía hafi breyst í hjarta hryðjuverkaógna í Evrópu og sé veikur blettur fyrir öryggi álf- unnar í heild“. Grein í Der Spiegel með frá- sögnum og hugleiðingum af þessu tagi sætir tíðindum. En ekki síður viðhorf forsætisráðherra Belgíu. Hér á landi hefur upplýsingaveita á Schengen-svæðinu þótt réttlæta veruna þar, þrátt fyrir augljósa annmarka. Mat forsætisráðherra Belgíu á gæðum og gagnsemi þeirra upplýsinga skera því í augu. Hulan hefur svipst af ástandinu á Schengen-svæðinu} Sláandi grein É g hef notið þeirra forréttinda að fá að lesa drjúgan hluta þeirra barnabóka sem íslenskir rithöf- undar senda frá sér nú fyrir jólin og leyfi mér að fullyrða að það stefnir í frábær barnabókajól. Ég vona að bæk- ur lendi í mörgum pökkum yngstu kynslóðanna og að um þær bókmenntir verði skrafað á öllum vígstöðvum, í fjölmiðlum og í heimahúsum. Yngstu lesendurnir eiga skiljanlega ekki sömu möguleika og við á að koma sínum áhuga og skoðunum á framfæri beint til höfunda og ef við eldra liðið hjálpum ekki þar til og gerum það í þeirra umboði er leiðinlegt til þess að hugsa að einhverjum barnabókahöfundum líði eins og þeir séu að skrifa út í tómið. Áður en ég settist við þessi pistilskrif rann ég inn í undarlegar hugleiðingar; að fjölskyldan kæmist í fáránlegar aðstæður (líklega aldrei nema í undarlegum draumi þó) þar sem einhver skúrk- urinn í bíómyndalegum söguþræði stillti henni upp við vegg og krefðist þess að annaðhvort legðum við eld að barnabókum heimilisins eða fullorðins. Úr þessari senu fór ég út í að illmennið næði heims- yfirráðum og léti sér ekki annað duga en að annaðhvort yrðu allar barnabækur heimsins eða allar skáldsögur full- orðinna brenndar á báli. Það lá fljótt í augum uppi að skáldsögum fyrir fullorðna fólkið yrði fórnað. Því þótt það sé mikilvægt að allir lesi er allra mikilvægast að börnin lesi. Að heilar kynslóðir missi af bóklestri í æsku er bæði hættulegt samfélaginu í heild og okkar agnar- smáa málsamfélagi eins og svo oft hefur verið komið inn á. Í ályktun sem Íslensk málnefnd sendi frá sér á dögunum og fjallað er um í Morgun- blaðinu um helgina er meðal annars komið inn á mikilvægi þess að halda íslensku lestrarefni að börnum. Netið er orðið eitt stærsta lestrar- horn þjóðarinnar og Ármann Jakobsson, vara- formaður Íslensku málnefndarinnar, segir í viðtali við blaðið að þar sé framboð af efni á ensku ofan á þar sem aðgengi að íslenskum orðabókum, alfræðiritum og bókmenntum sé lítið á vefnum. Æskan alist því í auknum mæli ekki upp við íslensku. En í ályktuninni eru fleiri vinklar sem eiga kannski hvað ríkast erindi við okkur eins og málin standa í dag og setja lestur, sem grund- vallarstoð í málkunnáttu, í enn stærra sam- hengi fyrir það sem við þráum öll; frið í heiminum. Á tímum erfiðra vandamála nágrannaþjóða okkar og þjóða á meginlandi Evrópu sem búa í mun flóknari og stærri fjölmenningarsamfélögum en við er ljóst að stór hluti árekstra innan samfélagsins á rætur í tungumálinu. Og líklega er sá þáttur vanmetinn þar sem oftar er ein- blínt á ólík trúarbrögð og lífsgildi í umræðunni. Þessi vandamál geta auðveldlega orðið okkar. Og því eru þetta ein mikilvægustu skilaboð ályktunar Íslensku málnefnd- arinnar: Góð íslenskukunnátta allra hindrar stéttskipt- ingu og mannamun. Júlía Margrét Alexanders- dóttir Pistill Til alls að lesa STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is Við myndum gjarnan viljasinna fleirum en við getumgert. Þörfin er greinilegamjög mikil,“ segir Birgir Gunnarsson, forstjóri Reykjalundar, þar sem fram fer alhliða endurhæf- ing einstaklinga sem ætlað er að auka lífsgæði, færni og sjálfsbjarg- argetu þeirra í kjölfar veikinda, slysa eða annars konar áfalla. Stofnunin fagnar nú 70 ára af- mæli sínu og verður af því tilefni blásið til veglegrar styrktar- og tón- listarveislu í Grafarvogskirkju annað kvöld kl. 20, eins og fram kemur hér til hliðar. Endurhæfingarmiðstöðin hefur eingöngu fjárhagslega getu til að taka á móti helmingi þeirra sem sækja um endurhæfingarmeðferð. „Ríkið fjármagnar alfarið rekst- urinn og við sinnum um 1.200 ein- staklingum en fáum helmingi fleiri beiðnir,“ segir Birgir. Reynt sé að vísa því fólki í önnur úrræði eftir þörfum en biðlistinn eftir meðferð sé langur, fjórar til átta vikur. Meðferð einstaklinga hjá Reykjalundi hefur sérstöðu umfram önnur úrræði hér á landi þar sem þverfagleg teymi vinna saman að öllum þáttum sem snúa að vandamálum einstaklingsins. Átta meðferðarteymi, sem innihalda með- al annars lækni, hjúkrunarfræðing, sjúkraþjálfara og sálfræðing, vinna með hverjum og einum. Endurhæfingarstarf stofnunar- innar hefur vakið mikla athygli í gegnum árin og hefur fjöldi fagfólks lagt leið sína til landsins víðsvegar að úr heiminum til að kynna sér starf- semina. Koma fólki af stað eftir áföll Skera þurfti niður um 300 millj- ónir í kjölfar efnahagshrunsins og starfsfólki var fækkað um 20-30 stöðugildi. „Ekkert af þessu höfum við fengið til baka,“ segir Birgir en fólkið sem til þeirra leiti hafi þegar farið í gegnum síu heilbrigðiskerfisins og þurfi raunverulega á endurhæfingu að halda. Meðalaldur sjúklinganna er um 48 ár og því um að ræða fólk á vinnu- aldri sem dettur tímabundið út af vinnumarkaðnum vegna veikinda, slysa eða annarra áfalla. Brýna nauð- syn beri til að koma þeim sem fyrst aftur á vinnumarkað og aftur í fyrra horf. „Rannsóknir sem gerðar hafa verið á gagnsemi endurhæfingar sýna að hver króna sem ríkið setur í að fjármagna endurhæfingarstarf- semi skilar átta eða níu krónum til baka,“ segir Birgir. „Margir af okkar skjólstæðingum væru annars á bóta- kerfinu sem óvinnufærir.“ Styrkur að hollvinunum Hollvinasamtök Reykjalundar voru stofnuð fyrir tveimur árum og hafa nú á að skipa 300-400 meðlimum sem greiða árgjald til styrktar end- urhæfingarmiðstöðinni. „Þau hafa skilað frábæru starfi,“ segir Birgir en samtökin stóðu að því að endurnýja allan tölvu- kost stofnunarinnar fyrir ári. „Það eru þó mörg verkefni framundan eins og að endurnýja tæki og búnað sem eru úr sér geng- in,“ segir Birgir, en stofnunin stól- ar mikið á frjáls félagasamtök og einstaklinga. „Við eigum sem betur fer mikið af vildar- vinum þarna úti.“ Hægt er að skrá sig í Hollvinasamtök Reykjalundar á vefsvæði stofnunarinnar, www.reykjalundur.is. Meginbakhjarl Reykjalundar er Happdrætti SÍBS. Vilja koma vinnu- færum aftur út í lífið Morgunblaðið/Sigurður Bogi Reykjalundur Endurhæfingarstarfið hefur skilað mörgum einstakling- um aftur út á vinnumarkaðinn eftir heilsubrest af ýmsum toga. Afmælis- og styrktartónleikar Hollvinasamtaka Reykjalundar fara fram í Grafarvogskirkju á morgun, 24. nóvember, kl. 20. Dagskráin er vegleg og þéttskipuð kunnum tónlistar- mönnum eins og Bubba, Páli Óskari, Diddú, Ragga Bjarna og fleirum. Grínistinn Þorsteinn Guð- mundsson mun kitla hlátur- taugarnar eins og honum ein- um er lagið en hann er kynnir. Miðinn kostar 4.000 krónur og hægt er að tryggja sér einn slíkan meðal annars á midi.is. „Allir listamennirnir gefa vinnu sína og við vonumst eftir húsfylli þarna,“ segir Birgir léttur í lund en Hollvinasamtökin standa að uppákomum sem þess- um til hjálpar Reykja- lundi að halda sínu góða starfi gangandi. Syngja fyrir Reykjalund STYRKTARTÓNLEIKAR Birgir Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.