Morgunblaðið - 23.11.2015, Side 17
Við í Framsókn og flugvallar-
vinum fögnum því að innanrík-
isráðherra ætlar ekki að loka
flugbraut 06/24 án fullvissu um
að það komi ekki niður á öryggi
flugvallarins.
Til að unnt sé að taka ákvörð-
un um lokun flugbrautar þarf
að liggja fyrir að lokunin komi
ekki niður á flugöryggi. Er það
fyrst þegar búið er að kanna,
hvort og þá hvaða afleiðingar
og áhrif slík lokun hefur eða
gæti haft, að hægt væri að taka upplýsta
ákvörðun. Er því órökrétt og óábyrgt að
taka flugbraut út af skipulagi, gera ráð fyrir
byggingum sem teppa aðflug að flugbraut-
inni og loka henni, áður en slíkar upplýs-
ingar liggja fyrir.
Byrjað á öfugum enda
Í þessu máli eins og svo mörgum öðrum
málum þessa meirihluta í borginni er byrjað
á öfugum enda. Má í því sambandi vísa til
vinnubragða vegna ferðaþjónustu fatlaðra
og í Ísraelsmálinu.
Ekki liggja fyrir nauðsynleg gögn til að
taka upplýsta ákvörðun og afstöðu til lok-
unar flugbrautarinnar en í niðurstöðu Sam-
göngustofu frá því í sumar um áhættumatið
kemur fram að áhættumat Isavia nái hvorki
til áhrifa á flugvallakerfi landsins í heild
sinni, neyðarskipulags Almannavarna, áhrifa
á sjúkraflutninga né fjárhagslegra áhrifa á
flugrekstur og þurfi að gera
sérstakt áhættumat um fram-
kvæmd breytingarinnar komi
til þess að ákveðið verði að loka
flugbraut 06/24.
Málsmeðferðin í faglegu
ferli hjá ráðherra
Innanríkisráðherra hefur yf-
irumsjón með flugmálum og ber
ábyrgð á því að fyllsta flug-
öryggis sé gætt, meðal annars á
grundvelli alþjóðlegra reglna.
Til að unnt sé að taka ákvörðun
um lokun flugbrautar 06/24 er
ekki nóg að taka brautina út af
skipulagi eins og meirihlutinn gerði heldur
verður það að liggja fyrir að lokun flug-
brautarinnar komi ekki niður á öryggi flug-
vallarins og að viðhalda megi fullnægjandi
þjónustustigi fyrir alla landsmenn. Slíkt lá
hvorki fyrir þegar meirihlutinn ákvað að
taka flugbrautina út af skipulagi né liggur
það fyrir nú.
Eins og fram kemur í bréfi innanríkis-
ráðherra til Reykjavíkurborgar verður
ákvörðun um lokun flugbrautar 06/24 ekki
tekin án fullvissu um að lokun brautarinnar
komi ekki niður á öryggi flugvallarins og að
viðhalda megi fullnægjandi þjónustustigi
fyrir alla landsmenn. Því segir ráðherra að
ekki sé á þessu stigi unnt að lýsa því yfir
hver niðurstaðan verði, en ráðuneytið hafi
nú m.a. til skoðunar áhættumat Isavia og
niðurstöðu Samgöngustofu um áhrif lokunar
flugbrautarinnar.
Málið á að snúast um fagleg vinnubrögð
og flugöryggi. Það hefur enn ekki verið sýnt
fram á það að hægt sé að loka flugbrautinni
þannig að það komi ekki niður á flugöryggi.
Ákvörðun innanríkisráðherra er því rökrétt
og ábyrg.
Eftir Guðfinnu Jóhönnu
Guðmundsdóttur
» Það hefur enn ekki verið
sýnt fram á það að hægt sé
að loka flugbrautinni þannig að
það komi ekki niður á flug-
öryggi.
Guðfinna Jóhanna
Guðmundsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi Framsóknar
og flugvallarvina.
Neyðarbrautin
og flugöryggi
17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015
Tveir villtir Þessir tveir jólasveinar villtust til byggða fyrir skömmu. Jólasveinarnir eiga víst ekki að koma til byggða fyrr en eftir 19 daga þegar Stekkjarstaur birtist en mánuður er til jóla.
Golli
Á síðasta borgarstjórnarfundi
lögðum við sjálfstæðismenn til að
borgarstjórn samþykkti að beina
því til stjórnar Orkuveitu Reykja-
víkur að hún skoðaði hvernig og
hvenær lækka mætti orkugjöld á
heimili.
Reykjavíkurborg er stærsti eig-
andi Orkuveitunnar og ber ábyrgð
á að koma skýrum skilaboðum til
stjórnarinnar. Nauðsynlegt er að
borgarstjórn fyrir hönd íbúa ræði
hvaða stefnu skuli taka hvað fyrirtækið varði.
Þess vegna hefði verið gott ef meirihlutinn hefði
samþykkt þessa tillögu. Í stað þess fóru þau í
þann leiðinlega feluleik að vísa tillögunni inn í
borgarráð án þess að taka afstöðu til hennar.
Reyndar mátti meira greina í máli borgarstjóra
að honum fyndist jafnvel ekki ástæða til að
lækka orkugjöld og hann efaðist jafnvel um að
gjöldin hefðu hækkað.
Borgarsjóður fær að
njóta – heimilin bíða
Meirihlutinn í Reykjavík gerir ráð fyrir því að
árið 2018 verði arðgreiðslur Orkuveitunnar til
borgarsjóðs 1 milljarður að lágmarki. Nú virðist
því aftur vera komin sú staða að arðgreiðslur
Orkuveitunnar verði notaðar til að stoppa upp í
göt borgarsjóðs enda Planið svokallaða að
renna út. Sú ákvörðun að nota arðinn beinlínis í
þeim tilgangi er einhliða og órædd tillaga meiri-
hlutans í Reykjavík. Réttlátt og sanngjarnt er
hins vegar að vilja ræða málið út frá fleiri hlið-
um. Eðlilegt er að skoða hvernig heimilin sem
tóku á sig miklar hækkanir orku-
gjalda þegar illa áraði fái einnig
að njóta þegar vel gengur. Fyrir
þessu virtist því miður lítil sann-
færing hjá borgarstjóra.
Orkuverð er húsnæðismál
Orkuverð er húsnæðismál.
Lækkun orkugjalda lækkar hús-
næðiskostnað. Borgastjórn virðist
nokkuð sammála um að húsnæð-
ismál séu mikilvægasta mál borg-
arinnar og með yfirlýst markmið
að lækka húsnæðiskostnað. Hús-
næðiskostnaður er allt of hár og
oft hefur verið rætt um mikilvægi
þess að fólki bjóðist húsnæði á viðráðanlegu
verði. Þrátt fyrir að þreytast ekki á að tala um
vandann og meintar aðgerðir til að lækka hús-
næðiskostnað þá virðist meirihlutinn í Reykja-
vík ekki vilja standa við þau loforð, alla vega
ekki þegar greiðslur geta frekar runnið í borg-
arsjóð.
Vildi ekki taka ákvörðun
á opnum fundi
Meirihlutinn í Reykjavík vildi frekar en að
taka efnislega afstöðu með tillögunni vísa henni
inn til borgarráðs. Það er óskiljanlegt nema að
þau vilji ekki að almenningur viti hver afstaða
þeirra er. Í borgarstjórn hafa 15 kjörnir fulltrú-
ar aðgengi að málinu, fundir eru opnir borgar-
búum og efni þeirra aðgengilegt. Hins vegar er
borgarráð lokaður vettvangur, fundir eru lok-
aðir almenningi og aðeins fáir borgarfulltrúar
eiga aðgengi að fundum. Tillagan var ekki til
annars fallin en að senda skýr skilaboð og gefa
stjórn Orkuveitunnar mikið svigrúm til að vinna
greiningu.
En það var ekki hægt að samþykkja þá til-
lögu, sem líta má á sem staðfestingu á því að
forgangsröðun meirihlutans er skýr – hann er í
fyrsta sæti, heimilin mega bíða.
Eftir Áslaugu Maríu
Friðriksdóttur
» Forgangsröðun meirihlut-
ans er skýr – hann er í
fyrsta sæti, heimilin mega
bíða.
Áslaug María
Friðriksdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Borgarsjóður fær að
njóta en heimilin bíða