Morgunblaðið - 23.11.2015, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015
Steinar Valdimar Pálsson, viðmótshönnuður hjá CCP Games, erfertugur í dag. „Ég er að vinna í leiknum EVE Online við við-mótshönnun, það snýr að því hvernig leikmaðurinn stjórnar og
fær upplýsingar úr leiknum.
Ég er búinn að vinna hérna í sjö ár, en er ekki tölvufræðingur, var í
Listaháskólanum en kláraði hann ekki. Ég er gamall graffiti-málari
og það þróaðist út í grafíska hönnun sem ég hóf störf við um tvítugt
og svo fór ég þaðan í viðmótshönnun.“
Það er nóg um að vera hjá CCP þessa dagana, erlendur framtaks-
sjóður leiddi nýlega nýja fjárfestingu í fyrirtækinu fyrir fjóra millj-
arða króna og síðastliðinn föstudag kom út leikurinn Gunjack sem var
þróaður hjá CCP í Shanghæ í Kína. Á næsta ári kemur síðan út leik-
urinn Valkyrie sem er í þróun hjá CCP í Newcastle á Englandi. Báðir
leikirnir eru sýndarveruleikaleikir sem gerast í EVE-heiminum.
„Þetta er mjög fjölskylduvænt fyrirtæki og ég get því verið mikið
með fjölskyldunni. Miklu af mínum tíma er svo varið við að dytta að
heimili okkar í vesturbæ Kópavogs. Svo erum við með hund sem þarf
að sinna. Ekki fyrir löngu fékk ég mér mótorhjól og er stundum að
stússast í því. En á sumrin fer ég á völlinn og styð mína menn í Breiða-
bliki.“
Eiginkona Steinars er Sæunn Huld Þórðardóttir, fatahönnuður hjá
66° norður. Börn þeirra eru Steinar Dreki 8 ára og Úlfur Páll 7 ára.
Hvað á að gera í tilefni afmælisins? „Ég fæ mér pottþétt köku en ég
bauð vinum í veislu um helgina.“
Ljósmynd/Siggeir Hafsteinsson
Graffiti-málarinn „Við sem máluðum Hlíðagöngin fyrir 20 árum tók-
um aftur upp þráðinn í sumar í tengslum við Menningarnótt.“
Sinnir viðmóts-
hönnun hjá CCP
Steinar Valdimar Pálsson er fertugur í dag
S
turla fæddist á Borg í Ólafs-
vík 23.11. 1945 og ólst þar
upp. Hann lauk gagnfræða-
prófi frá Skógaskóla 1961,
sveinsprófi í húsasmíði hjá
föður sínum og við Iðnskólann í
Reykjavík 1966, raungreinaprófum frá
Tækniskóla Íslands 1970 og BSc-prófi í
byggingatæknifræði 1973.
Með námi starfaði Sturla við hús-
byggingar hjá föður sínum, vann á
verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen í
Reykjavík og Borgarnesi 1971-74 og
var sveitarstjóri og síðar bæjarstjóri í
Stykkishólmi 1974-91.
Sturla var bæjarfulltrúi í Stykkis-
hólmi 1990-94, alþingismaður Vestur-
landskjördæmis fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn frá 1991 og Norðvestur-
kjördæmis 2003-2009, samgöngu-
ráðherra 1999-2007 og forseti Alþingis
2007-2009.
Sturla var annar tveggja ritstjóra
ritsins Ísland – atvinnuhættir og
menning 2010, framkvæmdastjóri
Þróunarfélags Snæfellinga 2011-2013
og er bæjarfulltrúi og bæjarstjóri
Stykkishólms frá 2014.
Sturla sat í stjórn sjúkrahúss St.
Franciskusreglunnar og heilsugæslu-
stöðvar í Stykkishólmi 1975-91, var
formaður byggingarnefndar elliheim-
ilis og grunnskóla- og íþróttahúss í
Stykkishólmi 1975-91, í fulltrúaráði
Sambands íslenskra sveitarfélaga
1978-83, formaður Samtaka sveitar-
félaga á Vesturlandi 1981-82, í stjórn
Hótels Stykkishólms 1980-95, for-
maður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna á Snæfellsnesi 1981-83, í
byggingarnefnd sjúkrahúss St.
Franciskusreglunnar 1981-91, for-
maður stjórnar landshafnar í Rifi
1984-90, í Hafnarráði ríkisins 1986-
94, í stjórn flóabátsins Baldurs hf.
1987-90, í Húsfriðunarnefnd ríkisins
1987-95, formaður stjórnar Hafna-
sambands sveitarfélaga 1988-94, for-
maður Héraðsnefndar Snæfellinga
1989-91, í stjórn Íslenska járnblendi-
félagsins 1992-98, formaður Þjóð-
minjaráðs 1994-98, formaður
byggingarnefndar Þjóðminjasafnsins
1994-98, formaður undirbúnings-
nefndar um stofnun þjóðgarðs undir
Jökli og í stjórn Landsvirkjunar
1995-97 og RARIK 1997-99. Hann
var varaforseti og sat í ýmsum fasta-
nefndum Alþingis sem og opinberum
nefndum, sat á allsherjarþingi SÞ
1998, í stjórn gjafar Jóns Sigurðs-
sonar 2011-15 og í framkvæmdaráði
Svæðisgarðs og Héraðsnefndar Snæ-
fellinga frá 2014.
Sturla var sæmdur stórriddara-
krossi fyrir opinber störf 2007.
Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar – 70 ára
Fjölskyldan Sturla og Hallgerður ásamt börnum sínum. Myndin var tekin er Sigríður Erla lauk stúdentsprófunum.
Pólitískur frumkvöðull
í friðun gamalla húsa
Kópavogur Árni Dagur Gísla-
son fæddist á Landspít-
alanum í Reykjavík 20. nóv-
ember 2014. Hann vó 3.736 g
og var 51 cm langur. Foreldrar
hans eru Sigríður Kristín Dav-
íðsdóttir og Gísli Hróar
Guðlaugarson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is
MÁLAÐ GLER
Málað gler er falleg klæðning á veggi, innréttingar, skápa
og margt fleira innandyra.
ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA
SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI