Morgunblaðið - 23.11.2015, Síða 23
Friðun húsa er góð fjárfesting
Og hugðarefnin, Sturla?
„Já, ég hef lengi haft áhuga á
hestamennsku, er sjálfur mikill lestr-
arhestur, einkum um sagnfræðilegt
efni, og hef alltaf haft áhuga á pólitík.
Húsfriðun og byggingarlist hafa
lengi verið mitt hjartans mál. Faðir
minn var byggingarmeistari og frá
honum fékk ég ungur áhuga á bygg-
ingarlist og byggingasögu.
Þegar ég var ungur bæjarstjóri hér
í Hólminum stóð fyrir dyrum mikil
endurskoðun á gamla bænum, yfir-
bragði hans og gatnakerfi. Við feng-
um þá Hörð Ágústsson, sérfræðing í
íslenskri byggingarsögu, til að gera
úttekt á gömlu húsunum í hjarta bæj-
arins. Niðurstaðan varð þá sú að friða
og endurbæta þessi gömlu hús í stað
þess að rífa þau eða breyta.
Nú er löngu orðið ljóst, með vax-
andi ferðamennsku, að friðun þessara
gömlu húsa, saga þeirra og sérkenni,
er einn af máttarstólpum þessa bæjar,
því ferðamenn sækja alltaf í söguna og
sérkennin. Þetta gerum við sjálf þeg-
ar við ferðumst um heiminn. Borgar-
og bæjaryfirvöld, víða um land, hefðu
því mátt huga fyrr og betur að þessum
mikilvæga þætti umhverfismótunar.“
Fjölskylda
Eiginkona Sturlu er Hallgerður
Gunnarsdóttir, f. 13.12. 1948, lögfræð-
ingur hjá Sýslumanni Vesturlands í
Stykkishólmi. Foreldrar: Gunnar
Guðbjartsson, f. 6.6. 1917, d. 17.3.
1991, bóndi á Hjarðarfelli og formaður
Stéttarsambands bænda, og k.h., Ást-
hildur Teitsdóttir, f. 9.4. 1921, d. 4.8.
2006, húsfreyja.
Börn Sturlu og Hallgerðar eru
Gunnar, f. 17.7. 1967, hrl. og hrossa-
bóndi í Hrísdal og er dóttir hans Borg-
hildur, f. 1998, en kona Gunnars er
Nadia Katrín Banine flugfreyja og
dætur hennar eru Nína Katrín, f. 1999,
og Alexandra Sól, f. 2001; Elínborg, f.
21.12. 1968, sóknarprestur í Stafholti í
Borgarfirði, maður hennar er Jón Ás-
geir Sigurvinsson, guðfræðingur,
kennari og skjalaþýðandi, og börn
þeirra Hallgerður Kolbrún, f. 1997,
Sturla, f. 2003, og Kolbeinn Högni, f.
2007; Ásthildur, f. 10.6. 1974, bæjar-
stjóri í Vesturbyggð, maður hennar er
Hafþór Jónsson útgerðarmaður og
sonur hans Daníel Jón, f. 2002; Böðvar,
f. 12.6. 1983, framkvæmdastjóri, kona
hans er Guðrún Tinna Ólafsdóttir,
mannauðs- og fjármálastjóri, og sonur
þeirra Sturla, f. 2008; Sigríður Erla, f.
8.7. 1992, laganemi við HÍ og flug-
freyja.
Systkini Sturlu eru Auður, f. 16.3.
1941, fyrrv. kennari í Ólafsvík, og
Snorri, f. 17.6. 1947, stöðvarstjóri RA-
RIK í Ólafsvík.
Foreldrar Sturlu: Böðvar Bjarna-
son, f. 30.3. 1911, d. 15.5. 1986, bygg-
ingameistari og byggingafulltrúi í
Ólafsvík, og k.h., Elínborg Ágústs-
dóttir, f. 17.9. 1922, d. 6.3. 2002, hús-
móðir, starfsmaður við barnaheimili
og umsjónarmaður orlofs húsmæðra á
Snæfellsnesi og Reykjavík.
Úr frændgarði Sturlu Böðvarssonar
Sturla
Böðvarsson
Herdís Bjarnadóttir
húsfr. í Hólkoti í Staðarsveit
Þorsteinn Þorleifsson
b. og form. í Hólkoti í Staðarsveit
Þuríður Þorsteinsdóttir
húsfr. í Mávahlíð
Ágúst Ólason
b. og póstur í Mávahlíð í Fróðárhreppi
Elínborg Ágústsdóttir
starfsm. á leikskóla og
í orlofsnefndum
Lilja Benónýsdóttir
vinnuk. á Stakkhamri
Óli Jónsson
b. á Stakkhamri í
Miklaholtshreppi
Gunnar Bjarnason hreppstj. í Böðvarsholti
Ólöf Bjarnadóttir húsfr. á Selalæk
Þráinn Bjarnason oddviti í Hlíðarholti
Þórður Nikulás-
son vélstj. í Rvík
Vigdís Bjarnadóttir
frá Hraunholtum
Guðbrandur Vigfús-
son oddviti í Ólafsvík
Pálína Margrét Vigfús-
dóttir húsfr. í Rvík
Jóna Ágústs-
dóttir
Þorleifur Þorsteinsson hreppstj. í Þorleifs-
koti, í Vinaminni á Búðum og í Hólkoti
Sigurður Bjarna-
son í Garðhúsum
við Bakkastíg í Rvík
Víglundur Nikulásson far-
kennari og verkam. í Ólafsfirði
Þórir Kr. Þórðarson
guðfræðiprófessor
Edgar Holger Cahill
listfrömuður í New York
Loftur Þorsteinsson
verkfræðiprófessor við HÍ
Ólafur Rögnvaldsson
forstj. á Hellissandi
Björg G.V.
Þorleifsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigurður Sigurðs-
son skipstj. og
bæjarfulltr. í Rvík
Védís Elsa
Kristjánsdóttir,
fyrrv. oddviti í
Sandgerði
Sigríður
Sigurðardóttir
húsfr. í Rvík
Sigurður Helga-
son fyrrv. forstj.
Flugleiða
Guðmundur
Ólafsson
leikari og
rithöfundur
Jón Sigurðsson
fyrrv. ráðherra og
seðlabankastj.
Björn Þór
Ólafsson
kennari og
íþrótta-
frömuður í
Ólafsfirði
Þórunn Sigurðar-
dóttir leikstjóri
Sólveig Bjarnadóttir
frá Neðri-Lá í Eyrarsveit
Vigfús Vigfússon
b. á Kálfárvöllum í Staðarsveit
Bjarnveig Vigfúsdóttir
húsfr. í Böðvarsholti
Bjarni Nikulásson
b. í Böðvarsholti í Staðarsveit
Böðvar Bjarnason
byggingam. í Ólafsvík
Ólöf Bjarnadóttir
húsfr. í Lukku, frá Hraunholtum
Nikulás Árnason
b. í Lukku í Staðarsveit,
frá Kálfárvallakoti
Fjóla Bláfeld Víglundsdóttir
húsfr. og verkak. í Ólafsfirði
Sigurður
E. Ólason
hrl. í Rvík
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015
95 ára
Guðrún Ósk Isebarn
90 ára
Guðrún Jónsdóttir
Guðrún Steins Jónsdóttir
85 ára
Guðrún Björnsdóttir
80 ára
Annelene Gunnarsson
Ásta Bryndís Gunnarsdóttir
Edda Axelsdóttir
Elsa Samúelsdóttir
Sigríður Eyjólfsdóttir
75 ára
Birgir Smári Ólason
Fjóla Jónsdóttir
70 ára
Björn Ólafur Hallgrímsson
Elísabet Arndal Ottósdóttir
Guðborg Jónsdóttir
Jakob Yngvason
60 ára
Arnar Þór Stefánsson
Ágúst Guðmundsson
Einar Hermundsson
Elínborg Sigvaldadóttir
Halldór L. Jóhannesson
María Vigdís Ólafsdóttir
Valur Hauksson
50 ára
Adolf Hauksson
Auður Ólafsdóttir
Gísli Pálsson
Sabine Bernholt
Stefán Ingólfsson
Vilborg Friðriksdóttir
40 ára
Boban Jovic
Bryndís Guðrún
Knútsdóttir
Einar Þór Kristjánsson
Harpa Maren
Sigurgeirsdóttir
Hrafnkell Eiríksson
Khash Erdene Baatar
Li Fu
Piotr Pawel Ostapiuk
Raphael Steinberg
Þröstur Reynisson
30 ára
Arnar Freyr Sigurðsson
Atli Heimir Arnarson
Brynjar Ólafsson
Dagmar Hrund
Sigurleifsdóttir
Katrín Pálsdóttir
Maria Ylfa Lebedeva
Michalina Anna
Teodorowicz
Sigurjón Veigar
Halldórsson
Teitur Már Símonarson
Vala Rún Gísladóttir
Valdís Ösp Jónsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Finnur er Reykvík-
ingur, viðskiptafræðingur
og starfar sem sérfræð-
ingur hjá Fjármála-
eftirlitinu.
Maki: Þóra Björk Bjarna-
dóttir, f. 1977, sálfræð-
ingur.
Börn: Margrét Þóra, f.
2005, María Björk, f.
2009, og Bjarney Líf, f.
2015.
Foreldrar: Sigurjón
Finnsson, f. 1946, og Mar-
grét Þóra Blöndal, f. 1949.
Finnur Tryggvi
Sigurjónsson
30 ára Birgir er Keflvík-
ingur og vinnur hjá
Suðurflugi á Keflavíkur-
flugvelli.
Maki: Telma Sif Björns-
dóttir, f. 1981, snyrti-
fræðingur.
Börn: Birna Ýr, f. 2001,
Kristján Árni, f. 2004, og
Jóhanna Júlía, f. 2009.
Foreldrar: Guðni Arason,
f. 1958, málari í Keflavík,
og Hildur Kristjánsdóttir,
f. 1963, húsmóðir í
Garðinum.
Birgir Júlíus
Olsen
30 ára Jón Steinn er frá
Ólafsvík en býr í Reykjavík
og er sölufulltrúi hjá
heildsölunni Ásbirni
Ólafssyni.
Maki: Ingibjörg Ýr Haf-
liðadóttir, f. 1992, heilsu-
nuddari.
Bræður: Árni Þór, f. 1981,
og Hjörtur, f. 1989.
Foreldrar: Vilhelm Þór
Árnason, f. 1947, eigandi
að Villa videó, og Kristrún
Jónsdóttir, f. 1953. Þau
eru búsett í Ólafsvík.
Jón Steinn
Vilhelmsson
Guðný Lilja Oddsdóttir hefur varið
doktorsritgerð sína í líf- og læknavís-
indum frá Háskóla Íslands. Ritgerðin
ber heitið Hreyfistjórn í hálsi – Flugan
sem nýtt greiningartæki fyrir hreyfi-
stjórn hálshryggjar (Movement contr-
ol of the cervical spine – The Fly as a
new objective assessment method for
whiplash-associated disorders).
Flugan er próf sem þróað var til að
mæla stjórn hálshreyfinga í rauntíma.
Þrívíddargreinir var notaður í Flugu-
prófinu og var hann tengdur sérhönn-
uðu hugbúnaðarforriti. Hreyfiskynj-
arar eru festir á höfuð þátttakandans
og hann beðinn að nota hálshreyfingar
til að fylgja nákvæmlega eftir bendli
(flugu) sem hreyfist á tölvuskjá. Ná-
kvæmni í hálshreyfingum var metin
við að fylgja bendlinum eftir í þremur
stigvaxandi erfiðum hreyfimynstrum.
Doktorsritgerðin fjallar um þróun
Fluguprófsins og notagildi þess við að
greina hreyfistjórn í hálsi hjá einstakl-
ingum með hálsverki. Rannsóknirnar
sem doktorsritgerðin byggist á sýndu
að Flugan er réttmætt og áreiðanlegt
próf til að meta hreyfistjórn í hálsi.
Með Fluguprófinu var hægt að meta
nákvæmlega
skerðingu á hreyfi-
stjórn í hálsi hjá
einstaklingum
með hálseinkenni
eftir hálshnykks-
áverka og að-
greina frá hópi
þeirra sem hafa
hálsverki af álags-
tengdum toga sem og einkenna-
lausum samanburðarhópi. Stigvaxandi
erfiðleikastig prófsins gera það að
verkum að hægt er að greina með ná-
kvæmni hve mikil skerðing einstakl-
ingsins er og því hægt að hefja þjálfun
hans á viðeigandi stigi og fylgjast með
framförum. Fluguprófið var einnig
notað til að fylgjast með þróun háls-
einkenna einstaklinga í eitt ár eftir aft-
anákeyrslu en helmingur þátttakenda í
þeirri rannsókn sýndi vaxandi skerð-
ingu á stjórn hálshreyfinga yfir árið.
Jafnframt var skoðað notagildi prófs-
ins við að greina einstaklinga sem
gera sér upp einkenni eftir háls-
hnykksáverka. Þær niðurstöður leiddu
í ljós jákvæðar vísbendingar en sú að-
ferð er í áframhaldandi þróun.
Guðný Lilja Oddsdóttir
Guðný Lilja Oddsdóttir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ísafirði árið
1976, BS-gráðu í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 1981 og sérfræðiprófi í
Manual Therapy frá University of St. Augustine árið 2000. Hún hefur starfað sem
sjúkraþjálfari við Heilsugæslustöð Kópavogs, hjá HL-stöðinni og á eigin stofu,
Sjúkraþjálfun Kópavogs. Árið 2006 lauk Guðný Lilja MS-gráðu í líf- og læknavís-
indum frá læknadeild Háskóla Íslands og innritaðist í doktorsnám sama ár.
Guðný Lilja starfar við Sjúkraþjálfun Kópavogs og sem stundakennari við Háskóla
Íslands. Hún er gift Árna Sigurðssyni og eiga þau tvo syni, Bjarna og Árna Þór.
Doktor
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Kipptu liðunum í lagmeðOmega3 liðamíni
• Omega 3 liðamín vinnur gegn stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra.
• Liðamín inniheldur Hyal-Joint® sem einnig má finna í liðvökva, seigfljótandi
vökva sem smyr og viðheldur mýkt í liðamótum.
• Það hjálpar líkamanum einnig að fyrirbyggja stirða liði, sem getur skipt
höfuðmáli í þjálfun og líkamsrækt.
SKJÓTARI EN
SKUGGINN
www.lidamin.is
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
SÍ
A