Morgunblaðið - 23.11.2015, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er engin minnkun að því að
þiggja hjálp annarra, þegar hún er boðin af
góðum hug. Gagnrýni heyrist á báða bóga en
með henni byggirðu upp nákvæmni.
20. apríl - 20. maí
Naut Farðu í skemmtiferð eða nýttu þér kvik-
myndir, myndbönd og íþróttir til að gera dag-
inn ánægjulegan. Taktu þér tíma til þess að
kanna málin.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert uppfullur af hugmyndum og
fleiri streyma að þér úr öllum áttum. Sönn-
unin felst í því að allt er á fullu hjá þér og mik-
ið stuð í ástarmálum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Leitaðu leiða til sparnaðar í sam-
skiptum þínum við hið opinbera. Mundu því
að í upphafi skyldi endirinn skoða.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst þú til í hvað sem er og ættir
að láta það eftir þér að reyna á dirfsku þína
og hugkvæmni. Aðrir búa yfir hæfileikum
sem fullkomna þína. Sýndu kurteisi og gerðu
þitt besta. Nú gæti verið kominn tími til að
taka til í persónulega lífinu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ekki er ósennilegt að þú hafir áhyggjur
af einhverju sem tengist vinnunni. Prófaðu
þig áfram í listsköpun þinni því það er ekki
spurning um hvað þú getur, heldur hvað þú
gerir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Í dýraríkinu verður offjölgun til þess að
dýrin ráðast hvert á annað. Vertu á varðbergi
gagnvart laumuspili af einhverju tagi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er engu líkara en þú sért í
einhverjum öðrum heimi þessa stundina. En
gleymdu sjálfum þér ekki of lengi hvernig
sem allt veltur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú er tíminn runninn upp – tím-
inn til að gera eitthvað klikkað. Skyggnstu
lengra og sjáðu sjálfur hvernig málið er í pott-
inn búið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nýtt tungl býður upp á möguleika
á að nálgast hluti úr nýrri átt. Kannski ætti
steingeitin að vera það oftar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Von þín um viðurkenningu og
frama í starfi er nú orðin að veruleika. Síðar
kemur betri tíð með blóm í haga.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Afstaða yfirmanns þíns, yfirvalda eða
foreldra á eftir að breytast. T.d. er möguleiki
að vinna starfið sitt og verða ríkur í frítím-
anum.
Hjónin ungu kölluðu vini og ætt-ingja til þegar þau fluttu inn í
nýja húsið sitt. Hér ætluðu þau að
eiga heima. Á þessum bæ var allt
frekar frumstætt. Stofan var ófrá-
gengin, eldhúsinnréttingin var bráða-
birgðasmíði úr spónaplötum sem
slegnar höfðu verið saman, í loftum
loguðu perur á rússneskum ljósa-
krónum sem svo voru kallaðar og á
þvottahúsgólfinu var myndarlegur
sandbingur, því múrarar áttu eftir að
setja síðustu sletturnar á vegginn.
„Þetta er ekkert mál, við klárum allt
fyrir jólin,“ sögðu ástfangin hjónin og
voru þakklát.
x x x
Þessi svipmynd úr brasi fyrir 40 ár-um birtist þegar húsnæðismál
ungs fólks eru rædd. Þetta er æsku-
minning sem Víkverji á, sagan af fólki
sem arkaði út í óvissuna og lét sér í
léttu rúmi liggja þótt ýmislegt væri
óklárt þegar það flutti inn. Uppbygg-
inguna tóku þau í skrefum, eða eins
og hagur þeirra leyfði, og bitarnir
voru mátulega stórir.
x x x
Sagt er að hátt húsnæðisverð í daghelgist meðal annars af miklum
kröfum í byggingareglugerð. Og víst
er að sumt sem þar er kveðið á um er
smámunasemi og flottheit eru skil-
yrði. Regluverkið kveður á um algilda
hönnun, það er að í húsum skuli að
jafnaði vera bílahús, geymslur fyrir
hverja íbúð, hjólageymsla, lyfta sé
hús þrjár hæðir eða hærra, handrið
skuli vera tvöföld og svo framvegis.
Auðvitað má tóna þessi atriði aðeins
niður, enda sé öryggi ekki fórnað.
x x x
Húsnæðisvandinn stafar einnig afþví að kröfur ungs fólks sem er
að koma sér þaki yfir höfuðið eru
miklar. Að geta ekki keypt fullbúna
íbúð fyrir 40 milljónir króna til dæmis
í miðborginni er ekkert vandamál.
Það getur verið fínt að byrja búskap í
blokkaríbúð, gera sem mest sjálfur
og taka mátulega stór skref í einu.
Klína svo málningu á vegg á Þorláks-
messukvöld því öllu þarf að ljúka fyr-
ir jól, eins og ungu hjónin, sem nú eru
komin á pensjón, sögðu forðum.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Óttast þú eigi, því að ég er með þér.
Lát eigi hugfallast, því að ég er þinn
Guð. Ég styrki þig, ég hjálpa þér, ég
styð þig með hægri hendi réttlætis
míns. Jes. 41:10
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
skadi.is
Þ. Skorri Steingrímsson,
Héraðsdómslögmaður
Steingrímur Þormóðsson,
Hæstaréttarlögmaður
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti Hallmundur Guðmundsson var „ífínu formi“ á Boðnarmiði:.
Um daginn ég reyndi við spíkat og splitt,
spítti úr nös og rauk í crossfitt.
Þá brók minni brá,
ég brosti ekki þá
en hvíslaði að sjálfum mér “sjitt“ …
Páll Imsland heilsaði Leirliðum á
svölum degi: „Eftirfarandi limru
kalla ég: Hringurinn hlaupinn uppi.
Það er gert til þess að forða les-
endum frá þeirri hugsun að þetta sé
klámfengin limra. Limran snýst
nefnilega um þær mögnuðu heim-
spekilegu vangaveltur sem lúta að
náttúru tímans og hringsins og hafa
ekki verið leystar enn. Þetta er
framlag til lausnarinnar en ekki
lausnin.
„Áfram veginn í vagninum ek ég“
og vestlægu leiðina rek ég
alla jörðina í kring
og það hring eftrir hring
uns mig auðvitan aftan frá tek ég.“
Á miðvikudag skrifaði Sigrún
Haraldsdóttir á Leirinn „Nóv-
ember“ og síðan:
Geisli smár um loftið læddist,
lágreistur og magur.
nýr þegar af nóttu fæddist
næsta fölur dagur.
Sigmundur Benediktsson brást
vel við: „Það rætist samt vel úr hon-
um.
Því kemur hér ein dverghenda“:
Mjór er stundum mikils vísir,
má fá hól.
Núna hátt á himni lýsir,
heiðrík sól.
Björn Ingólfsson sagðist á Leirn-
um hafa verið að hirða ullina frá
tveimur öflugum rúningsmönnum
úr Þistilfirðinum.
Þeir meðhöndla ær eins og fínar frúr
af fagmennsku að ofan og neðan
og kunna á því lagið að klæða þær úr
og kumra eins og hrútar á meðan.
Helgi Zimsen henti í eina vetrar-
vísu í síðustu viku þótt varla hefði
verið vetur að kalla hér á mölinni:
Vott af frosti vel má þola,
veðurguð er blíður
og Vetur kóngur kuldabola
klaufalega ríður.
Sigmundur Magnússon tók dýpra
í árinni, – sagði „svona skítkalt“ á
fimmtudaginn:
Hrímuð vakan hryglugrá
herðir tak á grundum,
emja nakin ýlustrá
út á klakasundum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af náttúru tímans og
hringsins
Í klípu
„NEI, LÖGREGLUÞJÓNN, ÉG VEIT EKKI
AF HVERJU ÞÚ STOPPAÐIR MIG. ÞARFTU
HJÁLP VIÐ AÐ LEYSA SAKAMÁL?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„MAMMA SEGIR AÐ VIÐ MEGUM GIFTA
OKKUR OG BÚA Í BORÐSTOFUNNI, EF ÞÉR
ER SAMA ÞÓ AÐ ÞÚ BORÐIR Í ELDHÚSINU.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sjá til þess að
hann fari í reglubundið
eftirlit.
RISA SKORDÝR
HÓTAR AÐ EYÐILEGGJA
PLÁNETUNA!
VIÐ ERUM DAUÐA-
DÆMD! NEMA ...
... NEMA VIÐ FINNUM MJÖG,
MJÖG STÓRA MANNESKJU
SEM GETUR STIGIÐ Á ÞAÐ!
SNALLT
EFTIR MAT ÆTLA ÉG
AÐ FARA AÐ GERA
ÁRÁS Á ENGLAND!
MANSTU ÞEGAR ÉG
LOFAÐI AÐ KOMA MEÐ
ÞYNGDAR MINNAR VIRÐI Í
GULLI HEIM?
Ó JÁ, HVORT
ÉG MAN!
LÆKNIR