Morgunblaðið - 23.11.2015, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2015
» Bókamessa í Bókmenntaborg fór fram í fimmtasinn í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina og
sýndu þar útgefendur nýjar bækur og boðið var
upp á fjölbreytta bókmenntadagskrá, m.a. upp-
lestur úr nýjum barnabókum, ljúffengt smakk og
óvæntar uppákomur.
Bókamessa í Bókmenntaborg var haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina
Morgunblaðið/Golli
Úrval bóka Gott framboð er af áhugaverðum bókum í öllum bókarflokkum fyrir þessi jól sem gaman er að skoða með jólagjöf í huga fyrir vini.
Athygli Þessi hnáta fylgdist vel með barnadagskránni í Ráðhúsinu. Upplestur Sigrún Eldjárn las upp úr nýju verki fyrir unga sem aldna.
Leikur Börnin skoðuðu, hlustuðu og
könnuðu heiminn á bókamessu.
Enska leikkonan Kim Cattrall er
hætt við að leika í leikritinu Linda í
Royal Court-leikhúsinu í Lundúnum
sem verður frumsýnt eftir þrjá
daga, 26. nóvember. Var henni ráð-
lagt af lækni að gera það. Cattrall
átti að fara með aðalhlutverk leik-
ritsins sem er eftir Penelope Skin-
ner og verður frumflutt á fimmtu-
daginn. Catrall sendi frá sér
yfirlýsingu í síðustu viku og sagðist
afar leið yfir því að þurfa að hætta
við sýninguna. Leikkonan Noma Du-
mezweni tekur að sér hlutverkið í
stað Cattrall en hún hefur hlotið
bresku leikhúsverðlaunin, Olivier,
og ættu leikkonuskiptin því ekki að
koma að sök. Á vef BBC er haft eftir
listrænum stjórnanda leikhússins,
Vicky Featherstone, að það sé afar
leitt að Cattrall hafi þurft að draga
sig í hlé og að Dumezweni eigi þakk-
ir skildar fyrir að taka hlutverkið að
sér með svo skömmu fyrirvara.
Hvíld Cattrall er þekktust fyrir að leika hina frjálslyndu Samönthu í sjón-
varpsþáttunum Sex and the City, eða Beðmál í borginni.
Cattrall ráðlagt að
hætta við leiksýningu
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á fi
skinn
HUNGER GAMES 4 3D 5,7,8,10:30
SPECTRE 6,9
HANASLAGUR 4:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
POWERSÝNING
KL. 10