Víkurfréttir - 01.10.1987, Síða 3
mm
juiUt
NVSV:
„Umhverfiö
okkar“
Náttúruskoðunarferð
um Suðurnesin
Laugardaginn 3ja október
stendur Náttúruverndarfélag
Suðvesturlands fyrir ökuferð til
kynningar á náttúru Suður-
nesja. Farið verður frá Nor-
ræna húsinu í Reykjavík kl.
9:00; frá Náttúrugripasafninu,
Hverfisgötu 116 (gegnt lög-
reglustöðinni) kl. 9:10; frá Sjó-
minjasafni Islands í Hafnar-
firði kl. 9:20; frá Stóru-Voga-
skóla í Vogum kl. 10:00; frá
Bláa lóninu kl. 11:30 og frá
Grunnskóla Njarðvíkur kl.
15:30. Aætlað er að koma aftur
til Reykjavíkur kl. 19:00.
Stansað verður á nokkrum
stöðum til náttúruskoðunar, að
öðru leyti fer fræðslan fram í
bílnum. Fargjald verður 600
krónur, einnig er gefrnn kostur
á viðvist hluta úr degi og greið-
ast þá 300 kr., frítt er fyrir börn
ef þau eru í fylgd með fullorðn-
um.
I ferðinni gefst einstakt tæki-
færi til að njóta góðrar fræðslu
um jarðfræði og lífríki Suður-
nesja. M.a. verða eldstöðvar
skoðaðar, farið verður í fjöru,
hugað verður að hvernig gróð-
urinn býr sig undir veturinn og
litið verður eftir fuglum svo
eitthvað sé nefnt. Margt kemur
þátttakendum áreiðanlega á
óvart.
Leiðsögumenn verða: Hauk-
ur Jóhannesson, jarðfræðing-
ur, Eyþór Einarsson, grasa-
fræðingur og Þorvaldur Örn
Arnason, líffræðingur.
Nánari upplýsingar veita
fulltrúar félagsins, þau: Ás-
björn Eggertsson, Höfnum, s.
92-16902; Edda Karlsdóttir,
Garði, s. 92-27123; Guðleifur
Sigurjónsson, Keflavík, s. 92-
11769; Halldóra Thorlacius,
Sandgerði, s. 92-37561; Hauk-
ur Guðjónsson, Grindavík, s.
92-68200; Helga Óskarsdóttir,
Njarðvík, s. 92-16043; Sesselja
Guðmundsdóttir, Vogum, s.
92-46686.
Fimmtudagur 1. október 1987 3
Skúli Skúlason, formaður körfuknattleiksdeildar ÍBK, undirritar samninginn á Glóðinni á þriðju-
daginn. Honum á hægri hönd situr Árni Þór Árnason, forstjóri Austurbakka, og við hlið hans
Stefán Kristjánsson í Körfuknattleiksráði ÍBK. Ljósm.: bb.
ÍBK ÁFRAM í NIKE
Körfuknattleiksdcild ÍBK
hefur gert nýjan auglýsinga-
samning við fyrirtækið Austur-
bakka í Reykjavík og er hann til
tveggja ára. Keflvíkingar niunu
leika í búningum frá handaríska
fyrirtækinu Nike og leggur
Austurbakki liðinu til keppnis-
búnað.
Skúli Skúlason, formaður
körfuknattleiksdeildar IBK,
sagðist vera ákallega ánægður
með samninginn, sem væri
hagstæður. „Við fáum ekki
beinharða peningam en allur
sá búnaður sem liðinu er
lagður til er hægt að meta til
fjár og það má segja að hægt sé
að finna tölu nálægt 400 þús-
und um verðmæti samnings-
ins“.
Ákvæði er í samningnum
um bónus ef liðinu gengur vel í
bikarkeppninni eða Islands-
mótinu. Kvenfólkið er líka
inni í myndinni og stendur
þeim til boða afsláttur af vör-
um hjá Nike-umboðinu.
samsuhg S.TÚNVÖRPI JM
19.900,-
33.950,-
• 14
• 12 rásir
• Hlífðargler
• Monitor útlit
• Útgangur fyrir heyrnartól
• Svart
m
• 20‘
• 46 rásir
• 16 stöðva minni
• Sjálfleitari
• Þráðlaus fjarstýring
• Hlifðargler
• Útgangur fyrir heyrnartól
• Monitor útlit
• Svart
WJAPIS hf.
í Keflavík
25.900.-
16”
16 rásir
16 stöðva minni
Þráðlaus fjarstýring
Sjálfleitari
Útgangur fyrir heyrnartól
Svart
Hafnargötu 38 - Keflavik - Sími 13883