Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 01.10.1987, Page 6

Víkurfréttir - 01.10.1987, Page 6
6 Fimmtudagur 1. október 1987 mun jútUv Þeir Þorsteinn Ólafur Húnfjörð og Róbert Heiðar Georgs- son héldu hlutaveltu fyrir skömmu og létu ágóðann, kr. 400, renna til Þroskahjálpar á Suðurnesjum. Ljósm.: pket. JARÐVINNA Steinsögun - Gröfur Loftpressur - Sprengingar NYTT símanúmer 16155 SIGURJÓN MATTHÍASSON Háseylu 13 - Innri-Njarövík POTTÞÉTT PÚSTKERFI Við höfum á lager, setjum undir og smíðum pústkerfi í allar gerðir bifreióa. Pústþjónusta Biarkars1 Grófin 7 - Keflavík - Sími 13003 Allt á sama stað! á nýja og gamla bílinn. Ryðvörn - Bryngljái - Sílsalistar Grjótgríndur - Mottur - Aurhlífar Munið eftir endurryðvörninni. BÓN - ÞVOTTUR - ÞRIF Djúphreinsun á sætum og teppum. Brekkustígur 38 - Njarðvík Sími 14299 orðvar BETUR SJÁ AUGU EN AUGA . . . Fólk, sem komið er vel yfir miðjan aldur, man vel þá tíð, þegar það varð að borða möglunarlaust þann mat sem því var skammtaður, hverja einustu tuttlu. Það gekk guð- lasti næst að leifa mat eða skemma hann. Dauðadómur hefði þótt sjálfsögð refsing, þeim sem gerst hefði sekur um að fleygja matvælum að ásettu ráði. A mörgum heim- ilum vissu foreldrar ekki að kvötdi, hvað eða hvort fjöl- skyldan fengi að borða dag- inn eftir. En nú er öldin önn- ur, sem betur fer. í allt sum- ar hafa borist furðufréttir af öskuhaugum landsins. Hundruðum tonna af Ijúf- fengu dilkakjöti hefur verið ekið þangað og brennt, nýtt grænmeti og unghænur í þús- undataii hafa gjarnan fylgt með. Síðast fréttist af ómörkuðum sumariömbum, sem ekki þótti taka að reka i sláturhús. Þau voru skotin og dysjuð. Hörmulegar fréttir það. Snemma t haust var svo sjónvarpsviðtal við tvo dapra og niðurlúta bændur. Annar var kúabóndi, en kýrnar hans mjólkuðu svo vel, að hann varð að hella mjólkinni niður. Hinn var garðyrkjubóndi, sem sá fram á metkartöflu- uppskeru eftir sumarið. Víst voru þessi tíðindi í senn ánægjuleg og sorgleg. Þó þau rugli ekki atvinnuháttum Suðurnesjamanna er okkur málið skylt, sem og öðrum landsmönnum. Flestir sem nenna að hugsa um þessa stefnu eiga bágt með að sætta sig við hana möglunarlaust. Okkur brygði illa við ef frystihúsaeigendum væri gert að sturta fullunnum fiskaf- urðum í sjóinn í lok hvers vinnsludags. Eða ef TréX og Rammi hefðu hurða- og gluggabrennu á hverju kvöldi. Allir vita að bóndinn er og verður einn mikilvægasti hornsteinn þjóðfélagsins. Hefur virkilega ailt verið reynt til að bjarga iandbún- aðinum á íslandi? Hvað gera aðrar þjóðir undir svipuðum kringumstæðum? Vogun vinnur, vogun tapar. Ríkið hefur lagt milijarða undir í Kröfluævintýrum út um allt. Saltverksmiðja hér, þörunga- vinnsla og steinullarverk- smiðja þar o.s.frv. Oft var þörf en nú er nauð- syn. Argentínumenn fram- leiða 300 sinnum meira nautakjöt eri þeir sjálfir geta torgað. En þeir selja niður- soðið nautakjöt út um allan heim með góðum hagnaði. Hollendingar framieiða vel seljanlegan Genever úr kart- öflunum, sem þeir komast ekki yfir að éta. Vínframleið- andinn Baileys á írlandi bjargaði kúabændum þar í landi, þegar þeir hófu fram- leiðslu á rjómalíkjör. Vanda- laust væri að framleiða hér 5- 10 tegundir áfengis^úr land- búnaðarafurðum. Á.T.V.R. hefur einkasölu á áfengi og gæti hæglega selt íslenska framleiðslu eingöngu. Menn verða jafn vitlausir af 10 teg- undum eins og 100. Þegarsvo að því kemur að hella þurfi niður áfengi á íslandi má fara að endurskoða landbúnaðar- stefnuna. Hér er of mikið í húfi til að gefast upp svona baráttulaust. Það hljóta að vera til ráð út úr ógöngunum, þó við höfum ekki fundið þau ennþá. Betur sjá augu en auga. Ekki sakaði að setja á stofn hugmvndabanka um lausn vandans áður en ástandið verður þannig, að maður þurfi að þekkja mann sem þckkir mann, sem getur út- vegað eitt lambalæri í sunnu- dagsmatinn. Keflavíkurkirkja Fimmtudagur 1. okt. Frasðslufundur héraðsnefndar i Kirkjulundi kl. 20. Laugardagur 3. okt.: Jarðarför Bjarna Össurarsonar, Norðurtúni 2, Keflavik, kl. 14. Sunnudagur 4. okt. Sunnudagaskóli kl. 11 i umsjá Ragnars og Málfríðar. Munið skólabílinn sem fer um bæinn og verið með frá upphafi. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Væntanleg fermingarbörn, f. 1974, eru beðin um að sækja guðsþjónustuna ásamt foreldr- um sínum. Sóknarprestur Leiðrétting Eitt lítið og saklaust 0 gerði okkur lífið leitt í síðasta tölu- blaði með því að láta sig vanta í myndtexta er rætt var um snyrtilega lóð að Baðsvöllum 20 í Grindavík, en kom hins vegar fram í greininni. Leið- réttist þetta hér með. Getraunir „Ég var á Wembley í vor og sá mína menn í Arsenal sigra Liverpool 2:1 í deildarbikarnum. Það ver alveg meiri háttar og maður væri svo sannarlega til í að fara aftur og sjá svona stórleik, tala nú ekki um á þessum leikvangi", sagði Jón Halldórsson, starfsmaður hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur og þjálfari kvennaliðs ÍBK í knattspyrnu sl. 2 ár. „Arsenal er framtíðarlið með mikið af ungum strákum. Þó liðið hafi byrjað illa hefur það sótt í sig veðrið að undan- förnu. Það mun halda sigurgöngunni áfram um helgina og vinna Charlton 2:0. Éger viss um það að fallbyssustrákarnir eiga eftir að gera það gott“ sagði Jón. Heildarspá Jóns: Charlton - Arsenal ....... 2 Chelsea - Newcastle...... 1 Coventry - Watford ....... 1 Liverpool - Portsmouth ... 1 Luton - Man. Utd.......... X Oxford - Norwich ......... 1 South'pton - Everton ..... 2 Tottenham - Sheff. Wed. .. 1 West Ham - Derby ......... 1 Wimbledon - Q.P.R....... X Blackburn - Leeds ........ 2 Ipswich - Barnsley ....... 1 Sævar fékk 8 rétta Sævar Júlíusson, spekingur frá síðustu viku tókst heldur betur vel til. Hann fékk 8 rétta og er þar með orðinn lang- efstur, því næstu menn þeir Indriði Jóh. og Þorsteinn Bjarna fengu 4 rétta. Siggi Kristjáns Leicester-aðdáandi (ekki Derby eins og sagt var) vermir botninn með 3 rétta. Hvað um það, slökkviliðsmaðurinn Sævar segist strax vera farinn að sjá fyrir sér Wembley, ekki bara með honum inn- anborðs, heldur Chelsea líka. Það var draumurinn sko,... og hann er eiginlega búinn að „hálf-rætast“ . . .

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.