Víkurfréttir - 01.10.1987, Síða 7
„Sigga . . . ertu viss um . . . að þetta sé staðurinn, sem mamma þín sagði
að væri þakin berjum . . . “? Ljósm.: bb.
Fimmtudagur 1. október 1987 7
SPORTBÚÐ ÓSKARS
VIÐ VATNSNESTORG - SÍMI 14922
Landshöfnin:
Keflavík-
urhöfn
tengd
Bakkastíg
Fyrir stuttu óskaði stjórn
Landshafnar Keflavíkur og
Njarðvíkur eftir fundi með
bæjarstjórnum Keflavíkur og
Njarðvíkur vegna nýs vegar er
tengja myndi saman Kefla-
víkur- og Njarðvíkurhafnir.
Að sögn Péturs Jóhannsson-
ar, hafnarstjóra, er þess vænst
að viðræður þessar hefjist nú
næstu daga.
Umræddur vegur verður
lagður í fjöruborðinu frá vest-
urbryggjunni svonefndu í
Keflavíkurhöfn meðfram
Saltsöluhúsinu. Þá kemur
vegurinn upp úr fjörunni
móts við Fiskiðjuna og tengj-
ast þar Bakkastíg í Njarðvík.
Með tilkomu þessa vegar
myndu allir fiskflutningar og
þungaflutningar milli hafn-
anna færast af Hafnargötu og
Víknavegi yfir á hinn nýja
tengiveg milli hafnanna.
Fyrstu síld-
veiðibát-
arnir að gera
sig klára
Senn fer að líða að því að
haustsíldveiðar hefjist. Er vit-
að um einn Suðurnesjabát
sem verið er að gera kláran til
þessara veiða. Umræddur
bátur er Sigurborg AK.
Bátur þessi, sem er í eigu
Sigurborgar h.f. Keflavík,
hefur verið gerður út nú í
rúmt ár frá Norðurlandi, en
fer nú á síldveiðar undir skip-
stjórn Odds Sæmundssonar
og er áætlað að hann veiði
bæði sinn kvóta og kvóta ms.
Stafness KE.
EINKAREIKNINGUR
Einkareikningur er bankareikningur
ætlaður einstaklingum, 16 ára og eldri. Hann
leysir hefðbundna tékkareikninginn
af hólmi með markverðum nýjungum,
sem eru fyrstu skrefin inn í bankaþjónustu
framtíðarinnar. - Verið með frá byrjun.
30
Einkareikningseigendur
geta á fáeinum mánuðum
öðlast rétt til 30 þúsund
króna yfirdráttarheimildar.
150
Einkareikningseigendur
geta fengið lán.
Lánið er i formi skulda-
bréfs til allt að 24 mánaða
að upphæð
150 þúsund krónur.
+%
Dagleg innistæða ber
miklu hærri vexti en
áður hafa þekkst á
tékkareikningum,
nú 16%.
Landsbanki
íslands
Banki allra Suðurnesjamanna
Keflavikurflugvelli - Sandgerði - Grindavik