Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 01.10.1987, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 01.10.1987, Blaðsíða 16
Lesendasíðan 16 Fimmtudagur 1. október 1987 Eru hraðahindranir Að undanfömu hef ég fylgst með óvenjulegri um- ræðu um hraðahindranir eða hraðahindrunaræði eins og sumir vilja nefna það. Bæði þeir sem mæla með og á móti hafa nokkuð til síns máls en þó finnst mér vanta á að tekin sé raunveruleg afstaða til málsins af einhverri skyn- semi. Því vil ég skora á aðila, sem ráða einhverju, að gerð verði úttekt á þessum málum. Astæðan fyrir beiðni minni er m.a. sú sjón sem ég hef séð nú að undanfömu eftir að hraða- hindrun var sett upp á Aðal- götu við Langholt. Þar virkar þetta þannig að bílar koma á mikilli ferð niður Aðalgötu, snarhægja á sérvið hindrunina, en gefa síðan á fullu í þegar framhjólið er kornið yfir. Þegar viðkom- andi er kominn niður fyrir Heiðarbrún eru flestir komn- ir á sömu hraðakeyrslu og áður. Því er spurning hvort hindrunin gerir það gagn sem hún átti að gera eða virkar lausnin? aðeins sem góð gangbraut yfir götuna. Þetta sjónarmið mættu margir skoða áður en þeir hlaupa upp og skrifa í blöðin einhverja vitleysu. Málið er ekki það einfalt að nægjanlegt sé að „drita niður“ hraða- hindrunum eins og einhver orðaði það, eitthvað meira verður að koma til. Helst virð- ist það vera lækkun hámarks- hraða eða hertar lögregluað- gerðir. Nonni Virkar nýja hraðahindrunin á Aðalgötu ekki eins og til var ætlast? Hraðahindrun á Heiðarbrautina Lesendur góðir eitt orð í eyra. Eg er móðir sem bý við Heiðarbrautina og það er mér mikið áhyggjuefni þegar bömin eru úti, annað hvort að lcik eða á leiðinni úr eða í skólabílinn. Astæðan er súað bömin þurfa að fara yfir Heiðarbrautina. Égervissum að það eru fleiri foreldrar á sama máli og ég, að bílhrað- inn hér við götuna sé ntjög mikill. Sé ég ekki að það sé lausn að lækka hámarkshraðann, því nú þegar em ekki margir sem virða lögleyfðan hraða. Hvað þá hraðahindranir á hjólum eða að hafa göturnar holóttar. Nei, þó svo einhverjum finnist þetta spaugilegt eða eitthvert æði, að óska eftir hindrunum til þess að reyna að tryggja líf og limi barn- anna. Ég sé ekkert athugavert við svona hindranir í þetta stór- um bæ. Það er enginn að tala um að drita þessu niður um allt, heldur einungis í íbúðar- hverfin, þar sem umferðin er bæði mikil og hröð. Vil ég með þessum fáu orð- um skora á bæjaryfirvöld að afsaka sig ekki með peninga- leysi í bæjarsjóði. Ein hraða- hindrun kostarvarla meiraen 50-60 þúsund krónur og ég bendi hér með á að þeir sem borga sama og ekkert útsvar, en lifa áberandi góðu lífi, slái nú saman í hraðahindmn. Móðir Þakklæti Sendi þakklæti til kvenn- anna í fararstjórn Suður- nesjahópsins fyrir frábæra umönnun og hjálpsemi í Búlgaríuferð aldraðra. Einn af ferðafélögunum Þakkir til Ásdísar Ég vil taka undir með Ás- dísi Gunnarsdóttur og jafn- framt þakka henni skrifin í síðasta blaði Víkur-frétta. Ég er ein af þeim foreldrum sem skrifuðum á undirskriftar- lista og óskuðum eftir hraða- hindrun eða annarri merk- ingu við dagheimilið Tjarn- arsel. Svar umferðarráðs las ég ekki með bros á vör og get fullyrt að það gerði ekkert af þessum tæplega 100 foreldr- um, sem settu nöfn sín á list- ann. Við teljum okkur ekki haldin „hraðahindrunar- æði“. Við erum áhyggjufull út af 130 börnum sem ganga þarna út og inn tvisvar sinn- um á dag og viljum þau öll heil heirn. Er ekki heillaráð að byrgja brunninn áður en barnið er dottið ofan í hann? Með kveðju. Sólveig Pétursdóttir t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmannsmíns, föður, tengda- föður, afa og langafa, SÖLVA ÓLAFSSONAR fyrrverandi kaupmanns, Hringbraut 99, Keflavík. Sérstakar þakkirtil starfsfólksog læknaádeild 11 G og gjörgæsludeild Landspítalans. Sigriður Þorgrímsdóttir Þuriður Söivadóttir Bergsveinn Alfonsson Sigriður Gunnarsdóttir Rúnar Þórmundsson Linda Björk Bergsveinsdóttir Matthias Matthíasson Sölvi Þór Bergsveinsson, Bergsveinn Alfons Rúnarsson Bílastæði skattlausa mannsins við Háaleiti. Grasið er ekki bílastæði Það er mikill ljóður þegar menn leggja bílum á hin og þessi svæði sem bæjarfélögin hafa ræktað gras á öðrum til yndisauka. Þannig er t.d. ástatt við hús eitt sem tilheyr- ir Háaleiti. Þar nota íbúarnir grasgeirann milli Háaleiti og Flugvallavegar sem bílastæði. Ekki bætir úr skák að sá sem þarna á í hlut er einn þeirra manna, sem átti nafn sitt á margumræddum skatta- lista Víkurfrétta og borgar því ekki mikið til bæjarfélags- ins. Þó hann geri það ekki þarf hann ekki að skemma fyrir okkur sem borgum. Auglýsinga- blað „skatta- kónga“? I síðustu viku hljóp af stokkunum nýtt auglýsinga- blað sem nefnist „Oli póst- ur“. Þar sem útgefandi virðist ekki þora að kannast við krógann, var í síðustu Mol- um Víkur-frétta ýjað að því að hann væri einn af þeim sem voru á „skatta-listan- um“ fræga sem Víkur-fréttir birtu á dögunum, og væri þarna að hefna harma sinna og reyna að spilla þannig fyrir Víkur-fréttum á auglýs- ingamarkaðnum, sem ég vona svo sannarlega að mis- takist. Eftir útkomu 2. tbl. „Óla pósts“ í fyrradag er ég sann- færður um að Molar hafa haft rétt fyrir sér, því ég sé ekki betur en að á 2. síðu í umræddum snepli sé heilsíða frá öðrum aðila sem einmitt var á umræddum „skatta“- lista, sem staðfestir grun Víkur-frétta. Nú bíð ég eftir að fleiri „skattakóngar“ sjái sóma sinn og auglýsi í næstu blöð- um „Óla pósts“. Skattborgari Lesendasiðan er öllum opin. Leggið orð í belg. Skattgreiðandi ÞAKKIR TIL SJÓMANNA OG VÉLSTJÓRAFÉLAGS GRINDA VÍKUR Innilegustu þakkir sendum við til Sjómanna- og vél- stjórafélags Grindavikur fyrir kvöldverðarboð og ánægjulega kvöldstund í Búlgariu. ELDFtl BORGARAR, SUÐURNESJUM ATVINNA Starfsfólk vantar í eftirtalin störf: • Snyrtingu og pökkun. • Á flökunarvélar. • Aðstoðarstörf í sal. • Á frystitæki. Bónuskerfi. - Ferðir í og úr vinnu. Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 11104 og á kvöldin í síma 14274. Hraðfrystihús Keflavíkur hf.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.