Víkurfréttir - 01.10.1987, Blaðsíða 17
\iiKun
juíUt
Fimmtudagur 1. október 1987 17
Heimir með
Víðismenn
Heimir Karlsson hefur
verið ráðinn sem knatt-
spyrnuþjálfari til Víðis í
Garði og er samningurinn
til eins árs. Heimir hefur
undanfarin tvö ár þjálfað
ÍR og náð góðum árangri.
Þegar Heimir tók við voru
ÍR-ingar í 3. deild og náðu
að komast upp í 2. deild
undir stjórn Heimis og í
sumar átti iiðið um tíma
ágæta mögulcika á sæti í 1.
deild.
Auk þess að vera liðtæk-
ur þjálfari er Heimir góður
knattspymumaður og hann
var einn af markahæstu
mönnum í 2. deildinni í
sumar. Hann ætti því að
vera góður styrkur fyrir
Garðmenn sem ætla að
leggja allt kapp á að vinna
sæti sitt í 1. deild að nýju.
Ólafur f
16 ára liðinu
gegn Svíum
Olafur Pétursson, mark-
vörður 3. flokks ÍBK í
knattspyrnu, var í ungl-
ingalandsliði Islands 16
ára og yngri sem lék gegn
Svíum í gær.
Olafur hefur staðið sig
ákaflega vel í leikjum ÍBK í
sumar og hann átti stóran
þátt í að IBK komst í úrslit
í bikarkeppninni, en þar
tapaði Iiðið naumlega
fyrir fram í Njarðvík.
UMFN stend-
ur bestaðvígi
Njarðvíkingar standa best
að vígi í Reykjanesmótinu í
körfubolta. Nú er búið að
leika tvær umferðir og hafa
Njarðvíkingar sigrað í báðum
sínum leikjum og þar á meðal
Keflvíkinga, sem þeir unni
naumlega 80:78.
Mótið fer fram í Hafnar-
firði og lýkur um helgina.
Urslit leikjanna í tveim
fyrstu umferðunum urðu
þessi:
UMFN - ÍBK ... 80:78
UMFG - UBK .. 72:62
Haukar - ÍBK ... 61:67
UMFN - UBK .. 84:44
REYNIR OG GRINDAVÍK
HIRTU ALLA TITLANA
Suðurnesjamótinu í knatt-
spyrnu í 5. og 6. aldursflokki
lauk seinni hluta ágústmánað-
ar. Mótið hófst í júní í Sand-
gerði og þá léku liðin eina um-
ferð. I júlí var síðan leikið í
Njarðvík, í ágústbyrjun í
Grindavík og síðasta umferð
leikin í Garðinum 23. ágúst.
Flest liðin sendu A- og B-lið í
keppnina sem fór vel fram og
var gott innlegg í þjálfun og
undirbúning yngri knatt-
spyrnumannanna til stærri og
meiri átaka.
Úrslit urðu þau að í 5. fl. A
sigruðu Grindvíkingar, þeir
fengu 20 stig í 12 leikjum.
Reynir, Sandgerði, var með
jafnmörg stig en lakara
markahlutfall og höfnuðu
því í öðru sæti.
Grindvíkingar sigruðu
líka í 5. flokki B, en Reynir
sigraði í 6. flokki bæði í A- og
B-flokki.
Lokastaðan í flokkunum
varð þessi:
5. flokkur A-lið:
Grindavík 12 10 0 2 73:10 20
Reynir .... 12 10 0 2 46:5 20
Víðir i..... 12 4 0 8 20:44 8
Njarðvík .. 12 0 0 12 4:84 0
5. flokkur B-lið:
Grindavik 8 6 0 2 28:14 12
Njarðvík .. 8 51 221:1111
Reynir .... 8 0 1 7 5:29 1
6. flokkur A-lið:
Reynir .... 12 10 1 1 45:2 21
Grindavík 12 8 1 3 49:8 17
Víðir ....... 12 4 0 8 14:43 8
Njarðvík .. 12 10 11 6:47 2
6. flokkur B-lið:
Reynir .... 12 12 0 0 47:2 24
Grindavík 12 8 0 4 29:8 16
Víðir ....... 12 3 0 9 10:43 6
Njarðvík . 12 10 11 5:38 2
Suðurnesjameistarar í 5. flokki, Grindavík B-lið UMFG í 5. flokki sigraði í B-liðs keppninni
ATVINNA
Réttur maður
í gott starf
Óskum eftir aö ráða mann í málningar-
deild okkar. Góð laun fyrir réttan mann.
Æskilegt að viðkomandi hafi einhverja
reynslu í meðhöndlun málningar og
tengdum vörum.
Nánari upplýsingar gefa verslunarstjórar á
staðnum, ekki í síma.
^ KAUPFÉLAG SUÐURNESJA Járn & Skip
Starfsmann
vantar til starfa í Sorpeyðingarstöð Suður-
nesja sem fyrst. Starfið er fólgið í umsjón,
eftirliti, þrifum og sorpbrennslu í stöðinni.
Skriflegum umsóknum sé skilað til Sorp-
eyðingarstöðvar Suðurnesja, Vesturbraut
10a, Keflavík, á umsóknareyðublöðum
sem þar fást.
Umsóknarfrestur rennur út 10. okt. n.k.
Nánari upplýsingar um starfið gefur undir-
ritaður í Sorpeyðingarstöðinni við Hafna-
veg, og í síma 110883.
Stöðvarstjóri
Bifreiðastjóri
Óskum að ráða bifreiðastjóra á sendibíl.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
Sími 11500
Vélstjóri óskast
Vélstjóra vantar á m/b Vonina II., sem er á
netaveiðum. Uppl. í síma V-985-21336,
H-13447 og 27353.
Stýrimaður
Beitingafólk
Stýrimann og beitingafólk vantar á Ólaf
GK-33. Upplýsingar í símum 68268 og
68566.
FISKANES
Grindavík