Víkurfréttir - 01.10.1987, Page 20
mun |
Fimmludagur 1. október 1987
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 14, II. hæð. - Sími 14717.
KEFLAVÍK:
Ný þúsund númera slm-
stöð tekin í notkun
Um síðustu helgi var tekin í
notkun ný viðbót við símkerfi
Keflvíkinga. Er um að ræða
nýja þúsund símnúmera
stafræna stöð.
Að sögn Björgvins Lúth-
erssonar, símstöðvarstjóra,
hefur þegar verið úthlutað
nokkrum númerum í hinni
nýju stöð. En á næstunni mun
hluti af stærstu viðskiptavin-
unum í gömlu stöðinni verða
fluttir yfir í hina nýju stöð.
Léttist þá um leið á þeim
númerum sem fyrir eru í
gömlu stöðinni.
„Er þetta einn af þeim þátt-
um í að bæta þjónustuna við
viðskiptavini á Suðurnesjum
og vonast ég til þess að það
hafi þann árangur að fólk
finni það,“ sagði Björgvin.
Ennfremur sagði hann:
„Fyrir um mánuði síðan var
stór hluti af öllum símalínum
til Reykjavíkur og út á land
fluttar inn í örtölvukerfi sem
bætir þjónustuna og við-
skiptavinirnir hljóta að finna
það, hvað öll sambönd eru
hreinni, nema ef hringt er í ör-
fáar stöðvar á landsbyggðinni
sem bjóða ekki upp á þetta
ennþá.
Asamt þessu og öllu öðru,
sem stofnunin hefur gert,
vonast ég til að viðskiptavin-
irnir á Suðurnesjum finni það
að þeir eru ekki afskiptir í
hinni öru þróun í tölvutækni,
ásamt þeirri þjónustu sem
væntanleg er til bóta á næsta
ári þ.e. hin persónulegu sam-
skipti við viðskiptavinina,“
sagði Björgvin að lokum og
átti þar við hið nýja pósthús
Keflvíkinga og Njarðvíkinga
sem taka á í notkun á næsta
ári.
„Gúmmí“-malbik á
Reykjanesbraut
Vegagerðin er með áætlanir á
prjónununt um að setja nýja
gerð af malbiki á Reykjanes-
brautina við Kúagerði. Hér
er um að ræða malbik sem
blandað er gúmmíi og hefur
þessi blanda reynst vel er-
lendis þar sem bremsuskil-
yrði eru slæm. Hlaðbær-Col-
ar mun væntanlega sjá um
lagningu malbiksins en Colar
er dansk fyrirtækí sem hefur
nokkra reynslu á þessu sviði.
Rögnvaldur Jónsson,
yfirverkfræðingur hjá vega-
gerðinni, sagði að of seint
væri að hefja'framkvæmdir
á þessu ári. „Við teljum að
nú sé orðið of seint að leggja
þessa malbiksblöndu. Þetta
þarf að gerast í góðri tíð,“
sagði Rögnvaldur.
Áform eru um að leggja
þessa nýju malbiksblöndu á
400 metra kafla við Kúa-
gerði sem álitinn er sérstak-
lega hættulegur. Eysteinn
Hafberg. framkvæmda-
stjóri Hlaðbæjar-Colars
sagði að danska fyrirtækið
hefði verið að þróa þessa að-
ferð að undanförnu og væri
það talið heppilegt, þar sem
hætta væri á að ís myndaðist
á vegum. Efnið væri þeirn
eiginleikum búið að það
bryti af sér ísinn við þunga
umferðarinnar.
Rögnvaldur Jónsson
sagðist telja miklar líkur á
að af þessari tilraun yrði, svo
framarlega sem ekkert nýtt
kæmi í millitíðinni. Nýja
malbikið yrði þá væntanlega
lagt á veginn næsta sumar.
KEFLAVÍKURBÆR:
ALDREI MEIRA MAL-
BIKAÐ EN í SUMAR
í sumar hefur verið malbik-
að með meira móti í Keflavík
að sögn Jóns B. Olsen, yfir-
verkstjóra Keflavíkurbæjar,
og taldi hann að þessi þáttur
hefði nú verið með því mesta
sem átt hefur sér stað í bæjar-
félaginu á einu ári. Er hér
bæði átt við viðhald eldri
gatna og lagningu nýs slitlags
á götur í bæjarfélaginu.
Er malbikun nú lokið að
undanskildum smá auka-
verkefnum s.s. í formi göngu-
stíga, en það var verktaka-
fyrirtækið Hlaðbær sem ann-
aðist framkvæmdir þessar. Þá
er einnig lokið lagningu á
gangstéttum sem Margeir
Elentínusson sá um. En auk
nýlagninga í gangstéttum
verður gert við nokkrar eldri
gangstéttir og er viðgerð lok-
ið á Tjarnargötu, en auk þess
verða gangstéttir á Vatnsnes-
vegi, frá Hafnargötu að Suð-
urgötu, lagfærðar og við
Hafnargötu, frá Vatnsnesvegi
að Faxabraut.
Auk þessa sténdur bærinn í
mörgum öðrum framkvæmd-
um að sögn Jóns og eru þær
helstu lagning fimm hraða-
hindrana. Að þeim eru tvær
komnar þ.e. á Aðalgötu og
Heiðarbrún en ókomnar eru
tvær á Vesturgötu og ein á
Faxabraut við Fjölbraut.
Verða þær allar lagðar þannig
að gangbraut verði eftir þeim.
Þá verða fjögur biðskýli sett
Hafinn er gröftur fyrir nýju dagheimili í Heiðarbyggð og búið er að bjóða út vinnu við að steypa
upp plötuna.
upp fyrir skólabílinn þ.e. á
Heiðarbraut, Aðalgötu móti
Fagragarði, Norðurvöllum
og Álsvöllum og eru þrjú
þeirra þegar komin upp.
I Básnum er verið að grafa
út 45 metra holræsaframrás
og eru það verktakarnir Sig-
urjón Helgason og Guð-
mundur Sigurbergsson sem
annast það verk. Við Heiðar-
braut annast Rekan upp-
gröft fyrir nýju dagheimili
sem gera á klárt að plötu á
þessu ári. Og við vatnstank-
inn ofan Eyjabyggðar er nú
hafinn undirbúningur að
fjölgun á borholum.
Eins og sést á þessu er enn
í mörgu að snúast hjá
Keflavíkurbæ, sem sést best á
meðfylgjandi myndum.
Eitt nýju
biðskýlanna.
Búið er að leggja nýtt
slitlag á Oðinsvellina
og er þar malbikað upp
að hÚSUm. Ljósm.: epj.
Gæslufanginn
laus
Grindvíkingur sá, sem á
mánudag í síðustu viku
var úrskurðaður í sjö daga
gæsluvarðhald vegna
gruns um innbrot, likams-
árás og að hafa tekið úr
lyfjakössum báta í óleyfi,
var látinn laus á fimmtu-
dag eða áður en gæslu-
varðhaldsdómj hans lauk.
Að sögn Oskars Þór-
mundssonar, rannsóknar-
lögreglumanns, er málið
fullrannsakað af hálfu em-
bættisins. Þótti því ekki
ástæða til að halda honum
lengur inni en málið verð-
ur síðan sent til dóms.
Snérist málið um lík-
amsárás á sambýliskonu
mannsins, innbrot í Sjó-
mannastofuna Vör og að
hafa tekið úr lyfjakössum í
bátum í Grindavíkurhöfn.
Ekki var um innbrot að
ræða í bátana, heldur hafði
hann farið í lyfjakassana
án leyfis.
Vonandi verða Lionsmenn
ekki „á perunni"
um helgina!!!