Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 05.11.1987, Page 9

Víkurfréttir - 05.11.1987, Page 9
muR juWi Fimmtudagur 5. nóvember 1987 9 M/b Þuríður Halldórsdóltir. Efst í horninu er mynd af skipstjóranum, Andrcsi Guðmundssyni. Ljósm.:epj. ATVINNA Afgreiðslumaður Óskum að ráða afgreiðslumann á lager nú þegar eða eftir nánara sammomulagi. Vinnutími mánudaga til föstudaga kl. 8-18. Upplýsingar um starfið gefur verksmiðju- stjóri. TRÉSMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR Iðavöllum 6-7 - Keflavík - Sími 14700 Þuríður Halldórsdóttir, Vogum: Fyrstur síld- veiðibáta til að Ijúka við tvo kvóta Sílsveiðibáturinn Þuríður Halldórsdóttir GK-94 úr Vogum, landaði á þriðju- dagsmorgunn 80 tonnum af síld í Njarðvíkurhöfn. Þar með lauk síldveiðiúthaldinu á yfirstandandi vertíð. Var báturinn hinn fyrsti til að ljúka síldveiðum í ár og það þrátt fyrir að hann hafi auk síns kvóta veitt kvóta Ágústar Guðmundssonar úr Vogum. Stóð úthaldið yfir í þrjár vikur og á þeim tíma varð aflinn 1680 tonn. Þegar nótinni var kastað í síðasta sinn á dögunum, kom í hana um 550 tonn, en þar sem kvóti bátsins var búinn, nutu áhafnir annarra báta megin hluta þess afla með því að dæla síldinni yfir í viðkomandi báta. Skipstjóri á Þuríði Hall- dórsdóttur er Andrés Guðmundsson, en eigandi bátsins er Valdimar hf., Vog- um. Ný þjónusta í Víkur-fréttum: Messutilkynningar frá öllum sóknum Sú nýbreytni hefur ver- ið tekin upp, að birta messutilkynningar frá öllum kirkjusóknum í þjóðkirkjunni á Suður- nesjum. Hafa tilkynning- ar þegar birst í tveim tölu- blöðum, eins og lesendur hafa séð. Verður hér um fastan dálk að ræða með tilkynningum frá hverri sókn ásamt mynd af við- komandi kirkju. Svo virðist sem þessi nýbreytni hafi haft góð áhrif á messu sókn síðustu helgar, þar sem víðast var meiri sókn en undanfarið. I I-Njarðvíkurkirkju var t.a.m. mesta kirkjusókn í langa tíð sunnudaginn 25. október, en þá mættu 83 í messu, en íbúar í Innri- Njarðvík eru um 400. Það samsvarar því að u.þ.b. fjórði hver íbúi hafi farið i kirkju þennan dag. Það þætti saga til næsta bæjar annars staðar. SLÉTTAR hurdir ■■R TIMINN

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.