Víkurfréttir - 05.11.1987, Síða 17
\>ÍKUK
juWt
Fimmtudagur 5. nóvember 1987 17
Þessi mynd er frá „afmælispartýi" Tónlistarskólans af hljómsveit skólansað leika. Skólastjórinn, Kjart-
an Már, er við stjórnvölinn. Ljósm.: mad.
Rás 1 á laugardaginn kl. 15:00:
Útvarpað frá Tón-
listarskólanum
í gær, miðvikudag, komu
útvarpsmenn í heimsókn í
Tónlistarskólann í Keflavík.
Tilefnið er 30 ára afmæli
skólans og tóku þeir upp efni
með nemendum skólans og
spjölluðu við þá. Ætlunin er
að senda þetta út á laugar-
daginn í þættinum „Tón-
spegli", sem er í umsjá
Magnúsar Einarssonar og
sendur er út á Rás eitt. Þátt-
urinn hefst kl. 15:00 og er
Suðurnesjamönnum bent á
að stilla nú útvarpstæki sín á
Rás eitt á laugardag og hlýða
á þáttinn.
Ýmislegt fleira er að gerast
í Tónlistarskólanum á laug-
ardag því kl. 13:00 hefjast
fjölbreyttir nemendatónleik-
ar og eru þetta aðrir laugar-
dagstónleikar vetrarins.
Koma þeir í lok foreldraviku
sem staðið hefur yfir þessa
vikuna.
Ráðgert er að vera með
nemendatónleika í skólan-
urn fyrsta laugardag hvers
mánaðar og tímasetningin
(kl. 13:00) miðast við aðallir
séu nú búnir að borða og að
annað það, sem kann að vera
að gerast í bæjarlífinu,
íþróttaleikir o.fl., hefst
venjulega ekki fyrr en kl.
14:00 og þá eru tónleikarnir
örugglega búnir. Varla þarf
að taka það fram að aðgang-
ur að tónleikunum er ókeyp-
is og að sjálfsögðu eru allir
velkomnir.
Skólastjóri
íbúöir aldraðra í Keflavík:
27 fengu
úthlutað
19 íbúðum
Bæjarráð Keflavíkur sam-
þykkti á fundi sínum 28. okt-
óber tillögu bæjarráðs,
áheyrnarfulltrúa og for-
manns félagsmálaráðs um
úthlutun íbúða að Kirkjuvegi
11 í Keflavík. Lagði þessi
hópur til að eftirtaldir aðilar
fái úthlutun og var það sam-
þykkt á síðasta fundi bæjar-
stjórnar:
Helga Guðjónsdóttir,
Hólabraut 6; Jón B. Hannes-
son og Fanney Hjartardójt-
ir, Garðavegi 12; Þórunn Ol-
afsdóttir, Austurgötu 10;
Björgvin Þorsteinsson og
Guðrún Olafsdóttir, Austur-
götu 17; Guðbjörn H. Guð-
mundsson og Rósa Guðna-
dóttir, Sóltúni 2; Magnús Is-
leifsson og Gróa Hjörleifs-
dóttir, Vallartúni 4; Guð-
mundur Gíslason og Guðrún
Sigmundsdóttir, Brekku-
braut 9; Sigrún Ingólfsdóttir,
Asabraut 7; Þuríður Hall-
dórsdóttir, Háteigi 16;
Ágústa Ágústsdóttir og Stef-
án Egilsson, Hafnargötu 82;
Guðni Gestsson og Vigdís
Pálsdóttir, Heiðarvegi 12;
Ólöf S. Helgadóttir, Hátúni
23; Oddgeir Pétursson,
Garðavegi 13; Þórólfur
Sæmundsson og Guðrún V.
Sigurðardóttir, Háholti 28;
Ragnheiður Sigurgísladóttir,
Tjarnargötu 20; Magnea
Árnadóttir, Suðurgötu 22;
Júlía Guðmundsdóttir,
Vatnsnesvegi 24; Georg
Helgason og Jóhanna Frið-
riksdóttir, Suðurgötu 40;
Inga Kristjánsdóttir, Blika-
braut 5.
íbúðir aldraðra í smíðum við Kirkjuveg 11 í KeflavíkLjósm.: pket.
Ragnar Lár sýndi
Grindavíkurmyndir
Um síðustu helgi hélt Ragnar Lár listmálari, sýningu í
Festi í Grindavík. Sýndi Ragnar 22 vatnslitamyndir sem
allar voru frá Grindavík og nágrenni, m.a. sótti hann
myndefni úr elsta bæjarhlutanum, frá golfvellinum og úr
hrauninu. Sagði Ragnar Lár i stuttu spjalli við Víkur-
fréttir, að það væri gott að mála í Grindavikogstaðurinn
byði upp á mikla möguleika í myndefni.
Góð aðsókn var að sýningu Ragnars, en hana sóttu á
annað hundrað manns.
('
tr
•UJ
GC
LL
CC
D
*
>
í Félagsbíói, mánudaginn 9. nóv. kl. 21:
The greatest
MAGIC SHOW
ÚRVAL EVRÓPSKRA
TÖFRAMANN
Á stórkostlegri sýningu koma fram m.a.
hugsanalesari, vasaþjófur, sjónhverfinga-
maður, sirkusdama og trúðar.
Missið ekki af einstæðrí sýningu.
Frægustu töfra-
menn í Evrópu.