Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.01.1988, Blaðsíða 3

Víkurfréttir - 07.01.1988, Blaðsíða 3
viKun Fimmtudagur 7. janúar 1988 3 Sjóefnavinnslan: Blekið á kaupsamn- ingi ekki þornað - er uppsagnir starfsfólks bárust Frá síðari árekstrinum, þeim á mánudag. Ljósm.: hbb. MIKID EIGNATJÓN Nokkur kurr er nú meðal starfsmanna Sjóefnavinnsl- unnar hf. á Reykjanesi vegna uppsagnar fimm starfs- manna fyrirtækisins um hátíðarnar. Var þeim sagt upp störfum með þriggja mánaða fyrirvara. Þá hefur framkvæmdastjóri fyrirtæk- isins sagt sjálfur upp störf- um. Að sögn viðmælenda blaðsins finnst mönnum það nokkuð einkennilegt, að blekið var varla þornað á undirskriftum um yfirtöku Hitaveitu Suðurnesja, er uppsagnarbréfin voru send út. Frá því á árinu 1985 hefur starfsmönnum farið fækk- andi þarna vegna hagræð- ingar, en einmitt á því ári vildi þáverandi iðnaðarráð- herra loka fyrirtækinu. En með samstöðu Suðurnesja- manna tókst að afstýra því. Nú loks þegar fyrirtækið kemst í eigu heimamanna taka uppsagnir gildi. Töldu viðmælendur blaðsins að þetta væri slæmt vegna markaðssetningu fyrirtækis- ins í salti, kolsýru og kísli, þar sem með þessu er hætt í svo til kláruðu verki. Og það nú, eftir að ríkið hefur fært Suðurnesjamönnum fyrir- tækið á silfurfati og fellt nið- ur rúmar 500 milljónir af skuldum þess. Kom einnig fram hjá við- mælendum, að nú eftir að ríkisfulltrúarnir hættu af- skiptum af fyrirtækinu og heimamenn tóku við því, kom í ljós að fulltrúar ríkis- ins virtust hafa meiri áhuga á að fyrirtækið gengi en sjálfir heimamennirnir. Vegna þessa hafði blaðið samband við Jón Gunnar Stefánsson, stjórnarfor- mann Sjóefnavinnslunnar hf. Sagði hann að það væri sjónarmið núverandi aðal- eiganda (Hitaveitunnar) að draga úr rekstrarhalla og búa þar með í haginn fyrir nýja athafnamenn. Það væri ekki markmið fyrirtækisins að halda uppi yfirbyggingu eins og verið hefði þarna úti á Reykjanesi. Hefði því skrif- stofufólki, matráðskonu, efnaverkfræðingi og sölu- stjóra verið sagt upp, en það fólk sem starfaði við fram- leiðsluna yrði áfram hjá fyrir- tækinu. Verði dráttur á að nýir að- ilar komi í reksturinn, mun Hitaveitan að sjálfsögðu geta annast skrifstofu- og ráð- gjafarþjónustu á svæðinu, sagði Jón Gunnar, og bætti síðan við að ferill saltsins verði fullgerður fyrir febrú- arlok. Fyrsti árekstur þessa árs sem skráður var í bækur lög- reglunnar í Keflavík, átti sér stað nokkra tugi metra frá höfuðstöðvum lögreglunnar, eða á gatnamótum Flugvall- arvegar, Hringbrautar og vegarins að Samkaup. Um mikið eignatjón var að ræða auk þess sem tveir farþegar úr þeim bíl sem tjóninu olli, voru fluttir á sjúkrahúsið til skoðunar. Þessi árekstur varð á nýársnótt upp úr kl. 2 og aðeins nokkrum dögum síðar, eða um miðjan dag þann 4. janúar, varð annar harður árekstur á þessum sama stað. Eignatjón varð einnig mikið, en meiðsli engin á fólki. Virðist svo vera sem of hraður akstur sé ástæðan fyr- ir tíðum árekstrum á þessum gatnamótum og gáleysi lijá þeim sem koma Hringbraut- ina eða frá Samkaup. Alla vega er ekki hægt að kenna um slæmu útsýni. HUMMEL Jfe ±m_ Dún-glansúlpur i dökkbláu og grábláu á frábæru verði. Áður Nú 5.980 4.390 inci^ Sportbúð Óskars Hafnargötu 23 - Sími 14922 Upplýsingar um stuld óskast Að kvöldi þriðjudagsins 22. desember eða aðfaranótt Þorláksmessu var svartri handtösku stolið úr bifreið í Keflavík. Gerðist þetta ann- að hvort við Háteig eða Kirkjuteig. 1 töskunni var blátt seðla- veski með kreditkorti, ávís- anahefti og persónuskilríkj- um. Er því hér um tilfinnan- legt tjón að ræða fyrir eig- anda töskunnar. Þess vegna er skorað á alla sem upplýsingar geta gefið um málið eða vita hvar þessir persónulegu munir eru að koma upplýsingum til lögreglunnar í Keflavík hið Grindavíkurkirkja: Messa kl. 14. Fermingarbörn og foreldrar þeirra sérstaklega hvött til þátttöku. Tekin veröur ákvörðun um fermingardag á fundi að messu lokinni. ÚTSALAN 2É Allra síðasta sending af New Sport dúnúlpunum í stærðum med. til ex. large. % Jt V =#* SPORTBÚÐ ÓSKARS Hafnargötu 23 - Simi 14922 Kr. 2.390. - 30% KongoROOS GRÁIR OG SVARTIR Sóknarprestur

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.