Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.01.1988, Side 5

Víkurfréttir - 07.01.1988, Side 5
\>mur< juUit Fimmtudagur 7. janúar 1988 5 Nýjungar og fjölbreyttari matseðill - ,,Er mjög bjartsýnn“, segir Óskar Ársælsson veitingamaður, sem hef- ur keypt Veitingahúsið, Tjarnargötu 31A, í Keflavík „Eg er mjög bjartsýnn og trú mín á þessum veitingastað hefur aukist þessa fáu daga frá því ég tók við. Það hefur greini- lega verið þörf fyrir svona stað“, sagði Oskar Arsælsson, veit- ingamaður og þjónn, en hann hefur keypt Veitingahúsið að Tjarnargötu 31, sem opnaður var í haust og bar fyrst nafnið „E1 Rancho“. Óskar Ársælsson (lengst t.h.) ásamt hluta starfsfólks síns, Stefáni Stefánssyni mat- reiðslumanni og Bryndísi Rúnarsdóttur, á veitingahúsinu sem bíður eftir nýju nafni. Ljósm.: pkct. Veitingahúsið hefur hingað til lagt áherslu á suðræna rétti og pizzur. Að sögn Oskars er ætlunin að brydda upp á nýjungum og bæta við matseðilinn kjöt- og fiskrétt- um. Odýrasti rétturinn er á 350 kr., en svo er auðvitað hægt að fá allt upp í stór- steikur. Oskar sagði að staðurinn fengi nýtt nafn, en hann auglýsir nú eftir því og fyrir bestu hugmyndina verður ut- anlandsferð til Hamborgar með Arnarflugi í verðlaun. Einnig verða veitt verðlaun fyrir næst bestu og þriðju hugmyndina, sem eru matur með öllu fyrir fjóra og svo tvo. Eins og er tekur staðurinn um 40 manns í sæti en næsta haust verður bætt við sal fyrir innan sem tekur um 50 manns í sæti, sem einnig verður nokkurs konar veislu- og mannfagnaðarsalur. „Við tökum að okkur matar- og kaffiveislur af öllum stærð- um og útvegum sali, en í haust rriunum við geta boðið upp á minni stærðir af veisl- um, fyrir u.þ.b. 50 manns í okkar sal“, sagði Óskar. Slysa- hætta á leik- skólum Fyrir fundi í félagsmála- ráði Keflavíkur í síðasta mánuði var til umræðu fjár- hagsáætlun viðhaldsdeildar. Kom þar fram að mikið af leiktækjum á leikskólanum og opnu leiksvæðunum eru úr sér gengin og stafar börn- um hætta af ástandi þeirra. Væri varhugavert af hálfu bæjarfélagsins að bjóða upp á þær slysagildrur sem skap- ast hafa. Lagði félagsmálaráð því til að fjárhagsáætlun viðhalds- deildar yrði samþykkt. 35% lækkun! ÖDÝRARI EN f FRÍHÖFNINNI! JVC Wö(s](i@Movie rvMsra upptökuvélin með autofocus og zoom-linsu á frábæru verði Aðeins kr. 49.800 GR-C11 liitt’inn Hafnargotu 35 - Keflavik - Simi 13634. 14959 eóa 5000 kr. út og 5000 á mán. I GR-C11 sameinast margir kostir: einfaldleiki sem var óhugsandi til skamms tíma, nákvæm innrauð sjálfskerpa, möguleiki til myndsköpunar með þreföldu súmi og bestu VHS myndgæði sem völ er á. Eitt aðaleinkenni GR-C11 er þá ótalið en það er lóttleikinn: Hún vegur aðeins 950 grömm. Þegar kveikt er á GR-C11 er hún tilbúin til upptöku þar sem þræðing myndbands er sjálfvirk. Um fjarlægðina (skerpuna) þarf ekki að hugsa og þess vegna er hægt að einbeita sór að því að taka góðar myndir. Spólan sem GR-C11 tekur upp á er VHS smáspóla sem gengur í hvaða VHS myndbandstæki sem er með því að nota spóluhylki sem fylgir vélinni. Lóttleikinn, handhægnin og gæðin sem einkenna GR-C11 gera hana að frábærum ferðafólaga, sem engu gleymir. Sjálfvlrk skerpa Sjálfvirka skerpan (Auto Focus) sem notuð er í GR-C11 hefur inn- rauðan geisla sem gefur snögga og nákvæma fjarlægðarstillingu allt frá 1 metra upp í óendanlegt, jafnvel í lítilli birtu. Þrefalt súm Linsan í GR-C11 sameinar bæði mjó og gleið sjónhorn með þrefalda súminu. Það er tengt skoðaranum til þess að rétt mynd fáist af því sem vélin er að taka upp. Núllrammaklipplng Á skilum milli upptaka verða stundum smá truflanir en með nýju núllrammaklippingunni (Zero Frame Editing) nást hreínni og skarpari skil en nökkru sinni fyrr. Sérstakur örtölvubúnaður stjórnar þessari aðgerð. Rafhlaða sem handfang Endurrafhlaðan í GR-C11 er notuð sem handfang hennar. Þessi hagnýta hönnun sparar pláss og gerir GR-C11 þægilegri. Mjög Ijósnœm Myndflagan og fjögra lita kótunarsíurnar gera GR-C11 mjög Ijósnæma. Hún tekur myndir i lítilli birtu, alveg niðrí 12 lúx sem samsvarar birtu kringum kertaljós. Jafnvel við erfið skilyrði er myndin óvenju skörp og litirnir trúverðugir.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.