Víkurfréttir - 07.01.1988, Blaðsíða 12
12 Fimmtudagur 7. janúar 1988
GLEÐILEGT NÝTT ÁR!
Víkur-fréttir
Félagsvist
Vinsæla félagsvistin byrjar aftur í Karla-
kórshúsinu, uppi, mánudaginn 11. janúar
kl. 20.30. Þriggja kvölda keppni. Mætum öll
kát og hress á nýja árinu. Allir velkomnir.
Þingeyingafélagið
Gömlu og nýju dansarnir
verða haldnir í Karlakórshúsinu, uppi,
laugardaginn 9. janúar. Tríó Þorvaldar
og Vordís halda uppi fjöri frá kl. 22-03.
Allir velkomnir - í stuði. Miðar við inn-
ganginn.
Nefndin
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Vorönn 1988
Dagskóli
Stundaskrár fyrir vorönn 1988 verða af-
hentar mánudaginn 11. janúar 1988 frá kl.
8-10 gegn greiðslu innritunargjalds kr.
2.500. Kennsla hefst samkvæmt stunda-
skrá sama dag kl. 10.
Öldungadeild
Stundaskrá verður kynnt á fundi með
væntanlegum nemendum öldungadeildar
mánudaginn 11. janúar 1988 kl. 18. Þáskal
greiða innritunargjald kr. 4.900.
Kennsla hefst samkv. stundaskrá þriðju-
daginn 12. janúar.
Kennarafundur hefst föstudaginn 8. janúar
kl. 10.
Skólameistari
Nám í flug-
umferðarstjórn
Auglýst er eftir umsækjendum til náms íflug-
umferðarstjórn. Inntökuskilyrði til námsins
eru að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi,
tali skýrt mál, riti greinilega hönd, hafi gott
vald á íslenskri og enskri tungu, fullnægi
tilskildum heilbrigðiskröfum, séu 20-30 ára
gamlir, leggi fram sakarvottorð og fullnægi
ákvæðum laga og reglugerða um loftferðir.
Umsóknareyðublöð fást hjá móttökudeild
flugmálastjórnar, 1. hæð flugturnsbygging-
arinnar á Reykjavíkurflugvelli og þangað
skal skila umsóknum fyrir 12. janúar 1988.
Flugmálastjóri.
Gjaldheimtunefnd Suðurnesja ásamt gjaldheimtustjóra. Ljósm.: hbb.
„Meiri hagkvæmni"
- segir Ásgeir Jónsson, gjaldheimtustjóri
Nú um áramótin hóf
Gjaldheimta Suðurnesja
formlega starfsemi sína, þó
svo að afgreiðsla hennar opni
ekki fyrr en um miðjan mán-
uðinn. Gjaldheimta þessi,
sem er hin fyrsta á landinu
sem er með á sínum snærum
innheimtu fyrir fleiri en eitt
sveitarfélag, er í eigu ríkis-
sjóðs og-sveitarfélaganna sjö
á Suðurnesjum ogerstofnuð
til innheimtu opinberra
gjalda eftir hinum nýju lög-
um um staðgreiðslu þeirra.
Hún er til húsa að Grund-
arvegi 23 í Njarðvík, þ.e. á 2.
hæðinni hjá sparisjóðnum.
Þar ræður ríkjum Asgeir
Jónsson sem um áramótin
tók við starfi gjaldheimtu-
stjóra. Hann er lögfræðingur
að mennt, fæddur í Njarðvík
21. janúar 1959, sonur hjón-
anna Sigrúnar Helgadóttur
og Jóns Asgeirssonar, um-
boðsmanns og fyrrum sveit-
arstjóra í Njarðvík um 19 ára
skeið. Asgeir er alinn upp í
Njarðvík en 13-14 ára fór
hann í gagnfræðaskóla í
Reykjavík, lauk þaðan
landsprófi og fór síðan í
Menntaskólann í Reykjavík
og lauk þaðan stúdentsprófi.
Eftir að hafa starfað m.a. við
kennslu fór hann í lagadeild
HI og lauk þaðan embættis-
prófi í lögum 1986. Síðan
hefur hann unnið sem full-
trúi á lögfræðistofu í bænum,
þar til hann var ráðinn í hina
nýju stöðu. En þrátt fyrir það
stefnir hann að því að ljúka
við að ná réttindum héraðs-
dómslögmanns á þessu ári.
A fyrstu starfsdögum hans
hjá Gjaldheimtu Suðurnesja
heimsóttu Víkurfréttir As-
geir og fengu hann til að lýsa
starfsemi stofnunarinnar.
Gefum því Asgeiri orðið:
,,Með stofnun Gjald-
heimtu Suðurnesja er verið
að reyna að ná fram meiri
hagkvæmni með stofnun
sameiginlegrar innheimtu
sveitarfélaga á Suðurnesjum
og ríkisins. Fram að þessu
hafa sveitarfélögin séð um
innheimtuna hvert fyrir sig
og þá ýmist ráðið til sín lög-
fræðinga eða fengið lögfræð-
inga úti í bæ til að sjá um
málin, þegar þau eru komin
á það stig að lögfræðinga
þarf til.
Nú sameinast þetta allt á
einn stað hjá þessum sjö
sveitar- og bæjarfélögum hér
á svæðinu. Innifalið í stað-
greiðslunni eru útsvar og
tekjuskattur, ásamt hinum
ýmsu minni sköttum. Síðan
getur verið að gjaldheimtan
innheimti fasteignagjöld en
það fer eftir nánari ákvörð-
un sveitarstjórnanna. Hugs-
anlegt er að eignaskattur og
söluskattsinnheimta komi til
hertrar gjaldheimtu, þannig
að hægt verði að ná sem
mestri hagkvæmni við inn-
heimtuna.
Kerfisbreytingin sem nú
hefur tekið gildi felst fyrst og
fremst í því að atvinnurek-
endur eiga alfarið að standa
skil á greiðslum þessara
gjalda en ekki hver launþegi
fyrir sig nema hann sé í eigin
atvinnurekstri eða vinni einn
og sjálfstæður. Gert er ráð
fyrir að starfsmenn verði þrír
til að byrja með og er þegar
búið að ráða í tvær stöður
auk minnar.
Allt það fé sem kemur inn
rennur beint í ríkissjóð sem
síðan mun greiða sveitarfél-
ögunum eftir áætlun fyrst
um sinn.
Er það vegna þess að það
mikla tölvukerfi sem þarf að
byggja í kringum þetta verð-
ur ekki tilbúið til að taka við
upplýsingum sem á þarf að
halda fyrr en í mars. Meðan
svo er þurfum við ekki á
fleira starfsfólki að halda, en
eftir að við tökum alfarið við
þessu verðun. því eitthvað
fjölgað, þó það sé ekki ætlun-
in að hér starfi mikiil fjöldi
fólks.“
Viðbygging við Hlévang:
Næsta skrefið I uppbyggingunni
Við afgreiðslu á beiðni
fjárhagsnefndar SSS um röð-
un byggingarframkvæmda
hjá stjórn Dvalarheimila
aldraðra .Suðurnesjum
skömmu fyrir jól lagði Her-
mann Ragnarsson fram eftir-
farandi tillögu:
„Stjórn DS telur að nœsla
skref í uppbyggingu clvalar-
heimila á Suðurnesjum sé í
númeraröð þannig:
Nr. I Viðbygging við Hlé-
vang.
Nr. 2 Viðbygging þjónustu-
rýmis við Garðvang.
Nr. 3 Viðbygging setustofu
við Garðvang.“
Var tillagan rædd og sam-
þykkt með 3 atkvæðum, 2 á
móti og einn sat hjá.
Vilhjálmur Grímsson,
fulltrúi Vatnsleysustrandar-
hrepps, gerði grein fyrir mót-
atkvæði sínu: ,,Tel hagsmun-
um aldraðra betur þjónað nú
með viðbótarbyggingu við
Garðvang, enda vandséð
hvernig rekstraraðilar geti
fjármagnað fyrirliggjandi
hugmyndir um byggingar
bæði við Hlévang og Garð-
vang á árinu.“
Samvinnuferðir - Landsýn
Vegna vetrarleyfis verður Guðjón Stefáns-
son umboðsmaður í Keflavík frá 8.1. til
30.1. - Heimasími 12459, vinnusími 11500.