Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.02.1988, Síða 1

Víkurfréttir - 04.02.1988, Síða 1
Lar.dsbók gafnahH* Stjórn DS: Eining um við- byggingu við Hlé- vang Við umræður á fundi bæj- arstjórnar Keflavíkur nú á þriðjudag upplýsti Hannes Einarsson bæjarfulltrúi að tekist hafi algjör eining um byggingu við Hlévang innan stjórnar Dvalarheimila aldr- aðra Suðurnesjum. Lýstu sumir bæjarfulltrú- anna því þá yfir að hér væri góð hugarfarsbreyting til batnaðar hjá stjórninni og þá ekki síður ef miðað er við það sem á undan er gengið. En áður en Hannes upp- lýsti bæjarfulltrúa um þessa stöðu mála hafði Ingólfur Falsson hvatt sér hljóðs og lagt til að hætt yrði við Hlé- vang og stefnt þess í stað að því að fjármunir þeir, sem fara áttu í þá byggingu rynnu í byggingu D-álmu við Sjúkrahúsið. ÞORRABLOTIPOTTINUM Svona á að halda þorrablót! Einhver í hópnum á myndinni las í gamalli bók að svona hefði þorra verið blótað í gamla daga. Hörðustu víkingar Suðurnesja voru fengnir til þess að prufa þessa aðferð, sögðu hana miklu betri og ráðlögðu fólki að prufa sjálft. F.v.: Gísli Hauksson, Geirmundur Kristinsson, Ragnar Jónasson, Eðvarð Þór Eðvarðsson, Magnús Guðmannsson, Jóhanna Arnadóttir og Einar Waldorff. Ljósm.: rós. Njarðvík: 242% hækkun holræsagjalda Fjárhagsáætlun Njarðvík- urbæjar var lögð fram til fyrri umræðu á þriðjudag. Þar kom fram að áætlaðar tekjur eru upp á 166.8 rnillj., en aðeins 41.1 millj. ætluð til eignabreytinga, þ.e. verk- legra framkvæmda. Þá er gert ráð fyrir 242% hækkun holræsagjalda, en stuðullinn fyrir þennan þátt hækkaði úr 0.055% í 0.15%. Vegna þessa hefur einn stjórnarandstöðufulltrúinn í bæjarstjórn Njarðvíkur reiknað út hækkanir á fast- eignagjöldum, en þau hafa auk holræsagjaldsins hækk- að nokkuð. Tók hann fimm dæmi, en hér er um Ingólf Bárðarson að ræða. Dæmi Ingólfs eru þessi (í sviga er fasteignagjaldið í fyrra) en utan svigans gjaldið í ár: Rammi hf. 96.329 (28.189), Skipasmíðastöð Njarðvíkur 52.659 (16.367), íbúð íblokk við Hjallaveg 2.920 (859), raðhús 5.650 (1.700) og ein- býlishús 7.425 (2.055). Þrjú síðasttöldu dæmin eru tekin af handahófi, en þó eru tölur réttar miðað við þá íbúð sem skoðuð var. Eftir að fulltrúar minni- hlutans höfðu veitt þær upp- lýsingar á bæjarstjórnar- fundinum á þriðjudag, sem getið er hér fyrir ofan, fluttu þeir bókun þar sem þeir átelja bæjarstjórnina harð- lega fyrir þessa miklu hækkun holræsagjalda og fyrir að vera að níðast með þessum hætti á hinum almenna launamanni. Þessari bókun svaraði meirihlutinn með því að kalla þetta tvískinnungshátt, því í tíð fyrri meirihluta þar sem þeir höfðu völdin, hefðu gjöld þessi farið upp úr öllu valdi án aðgerða, t.d. í vatns- málum. Núverandi meiri- hluti hefði hins vegar lækkað þann skatt. Um holræsa- gjaldið sagði í bókun meiri- hluta að holræsagjaldið hefði undanfarin ár verið óeðli- lega lág, með því lægsta sem þekktist, og því verið tíma- bært að hækka þau, auk þess sem ráðast verður í fjárfrekar holræsaframkvæmdir á næstunni.. Raunhækkun hefði hins vegar aðeins verið 6-7%, þar sem matsverð eign- anna hefur hækkað eins og annars staðar. Óhöpp vegna skyndihálku Mjög skyndileg og slæm hálka varð á götum á Suðurnesjum upp úrhá- deginu á sunnudag. Var hálkan slík að nánast var ógjörningur að fóta sig á götum úti. Af þessum sökum urðu 9 umferðaróhöpp á tima- bilinu frá kl. 13-19, sem tilkynnt voru til lögregl- unnar. Urðu óhöpp þessi innanbæjar og á Reykja- nesbraut, auk þess sem eitt varð á Grindavíkur- vegi. I þremur tilfellanna var um bílveltu að ræða. Samkomulag um yfir- töku Landshafnarinnar Gerð hafa verið frum- drög að yfirtöku bæjar- stjórna Keflavíkur og Njarðvíkur á Landshöfn Keflavík-Njarðvík. Voru drög þessi kynnt á þriðju- dag í bæjarstjórnum beggja byggðarlaganna. Hafa bæjarfélögin gert með sér samkomulag um þessa hluti í framhaldi af yfirlýsingu ríkisstjórnar- innar þess efnis að hún muni á árinu 1988 afsala sér höfnunum. Er gert ráð fyrir því í þessum samningsdrögum að bæjarfélögin stofni með sér hafnarsjóð til þess að eiga og reka allar eignir Landshafnar Keflavík- Njarðvík og Helguvíkur- hafnar. Er gert ráð fyrir því að eignarhlutur hvors byggðarlags verði jafn eða 50%. Eins og sést á ofanrit- uðu er Helguvíkurhöfn inni í dæmi þessu en sá þáttur hefur staðið mikið fyrir þrifum varðandi hugmyndir Keflvíkinga í þessum efnum. En á móti hafa Njarðvíkingar bent á að Landshöfnin eigi mik- ið landssvæði í sveitarfél- aginu sem með þessu sam- komulagi falli undir hina nýju hafnarstjórn sem skipuð verður 5 mönnum. Með þessu samkomulagi er umræddur ágreiningur úr sögunni.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.