Víkurfréttir - 04.02.1988, Qupperneq 10
10 Fimmtudagur 4. febrúar 1988
VÍKUtÍ
jtiUU
Fimmtudagur 4. febrúar 1988 11
Baldvin Njálsson, fisk-
verkandi í Garðinum, hefur
fest kaup á ilest öllum tækj-
um hraðl'rystihúss Kirkju-
sands hf. í Reykjavík, að
sögn Fiskifrétta. Verður
tækjunum komið fyrir í hinu
nýja frystihúsi Nesfisks hf. í
garði, sem reist verður í stað
þess sem brann í haust.
Er búið að ýta rústunum
burt og verður senn hafist
handa við mótauppslátt
vegna nýja hússins. Er reikn-
að með að starfsemi geti haf-
ist í nýja húsinu meðvordög-
um. A meðan fer starfsemi
Nesfisks fram í húsakynnum
þeim sem Asgeir hf. hafði
áður til umráða og Utvegs-
banjinn eignaðist á nauðung-
aruppboði á síðasta ári.
I»ar sem rústir Nesfisks stóðu áður hefur ýta nú farið um og hreinsað allt í burtu.
Ljósm.ihbb.
I hjarta
Keflavíkur
Hjarta útvarpsstöðvarinnar Stjörnunnar sló í Glaumbergi í Kefla-
vík á sunnudaginn. Þá var sendur út þátturinn „í hjarta Keflavíkur“.
Var bæjarbúum boðið að komaog taka þátt í gleðinni ogspjölluðu út-
varpsmennirnir Þorgeir Astvaldsson og Jörundur Guðmundsson við
nokkra valinkunna hcimamcnn. I þættinum var spurningakeppni og
kepptu lið frá TRE-X og Ramma. Var það ójafn leikur sem endaði
með yfirburðasigri TRE-X.
Um 500 manns mættu í Glaumberg og sátu þar í huggulegheitum
yfir rjúkandi kaffi og meðlæti og kunnu greinilega vel að meta stemn-
inguna og að vera í beinni útsendingu. - Meðfylgjandi myndir tóku
Páll Ketilsson og Hilmar Bragi Bárðarson við þetta tækifæri.
Það var hörku fjör í spurningakeppninni milli TRÉ-X og Raninia, ekki síst í hlaupaspurningunum.
Þorgeir Ástvaldsson ræddi bæjarmálin við forseta bæjarstjórnar Keflavíkur, Guð-
finn Sigurvinsson.
„ . . . þetta var svakalcgt áfall þegar ég komst að því að ég væri
frændi Steingríms", sagði Ellert Eiríksson, sveitarstjóri, við
Jörund, scm skellti upp úr.
Tónlistarskólastjórinn í Kefiavík, Kjartan Már Kjartansson, kitlaði
hláturtaugar viðstaddra með sögum, glcnsi og grini, eins og honum
Jörundur er hér að lesa viðtal Vikur-frétta við
séra Þorvald Karl Helgason, sem hann spjall-
aði við í Glaumbergi við mikla hrifningu.
UTSALA
10-40#/(
0
afsláttur
Technics • SONY • DENON ^Panasonic • cffSAMSUNG
Fvvsta á
siön'>ö(Pom
Hafnargötu 38 - Keflavík - Sími 13883
Hljómstækjasamstæður frá kr. 11.600 - með laserspilara frá 29.900.
Geislaspilarar frá 14.700 - Videomyndavélar frá 39.900.
Myndbandstæki VHS frá 24.900.
Sjónvarpstæki frá 17.600
- og margt fleira.
Merkjasala
Styrktar-
félags
aldraðra
Hin árlega merkjasala
Styrktarfélags aldraðra á
Suðurnesjum verður á
morgun, föstudag, og á
laugardag. Að þessu sinni
verður forminu breytt og
merkin því ekki borin í
hús í Keflavík, heldurein-
ungis boðin til sölu við
verslanir í bænum. Er það
von félagsins að bæjarbú-
ar bregðist vel við og
styrki starsemina með
kaupum á merkinu.
Þá verður aðalfundur
félagsins haldinn á laug-
ardag kl. 13.30 í aðstöð-
unni að Suðurgötu 12-14.
Eru nýir félagar boðnir
velkomnir. Félagið vill
koma á framfæri þökkum
fyrir stuðninginn á
liðnum árum.
Heilt „frystihús’
flutt í Garðinn