Víkurfréttir - 04.02.1988, Síða 17
\)iKur<
juiUt
Fimmtudagur 4. febrúar 1988 17
EIGINHAGSMUNAPOT
Hér á Suðurnesjum er ár-
lega haldin keppni um titil-
inn „Ungfrú Suðurnes".
Forsvarsmenn þessarar
keppni eru þær Ágústa
Jónsdóttir og Birna Magnús-
dóttir og auglýsa þær ávallt
eftir fyrirtækjum sem styrkt-
araðilum. Stuðningur fyrir-
tækjanna felst í því að gefa þá
þjónustu sem þau hafa upp á
að bjóða, en fá á móti all-
nokkra umfjöllun og auglýs-
ingu þar af leiðandi.
Að þessu sinni eins og áður
birtist auglýsing í blöðum
hér syðra þar sem óskað var
eftir fyrirtækjum til stuðn-
ings. Sólbaðsstofan SÓLEY
sendi nafn sitt EKKI inn
vegna auglýsingarinnar, því
á síðasta ári sendi Sólbaðs-
stofan Sóley nafn inn, en var
þá tjáð að sá aðili sem hafði
haft þetta árið áður, gengi
fyrir.
Þá gerist það að Ágústa
hefur samband við Bertu
Guðjónsdóttur og óskar eftir
að hún sjái um líkamsþjálfun
fyrir stúlkurnar sem þátt
tækju í keppninni. Einnig
óskaði hún eftir því að
athugað yrði með ljósatíma á
Sólbaðsstofunni.
í framhaldi af þessu er
gerður munnlegur samning-
ur við Ágústu um ljósatíma
og annað það sem stofan hef-
ur upp á að bjóða fyrir stúlk-
urnar og þær þyrftu á að
halda, auk þess sem Berta
sæi um að þjálfa stúlkurnar
tvisvar í viku. Jafnframt var
Bertu tjáð að Birna Magnús-
dóttir sæi um aðra þjálfun
fyrir stúlkurnar. Samningur-
inn var gerður í nóvember!
1 janúar ganga þær Ágústa
og Berta frá þjálfun fyrir
stúlkurnar og hæfist hún 15.
janúar. Ekki mættu stúlk-
urnar né tilkynnt var um
breytingar, fyrr en Ágústa
kom og tilkynnti að því mið-
ur myndu stúlkurnar ekki
mæta í líkamsþjálfunina, en
þær höfðu þá þegar byrjað í
sólarlömpum.
Óskuðum við því eftir
skýringu á þessu af hálfu
Ágústu og tjáði hún okkur að
Birna teldi sig ekki hafa
fengið nægilega auglýsingu
út á keppnina á síðasta ári og
því krefðist Birna þess að
hafa stúlkurnar eingöngu i
þjálfun hjá sér, þrátt fyrir að
hún hafi samþykkt annað í
byrjun.
Þegar þarna var komið
taldi Sólbaðsstofan Sóley
svo freklega gengið framhjá
áður gerðum samningi vegna
eiginhagsmunapots umsjón-
armanna keppninnar, að
ákveðið var að samningur
sólbaðsstofunnar félli þar
með að öllu leyti niður.
Að endingu viljum við
taka fram, að okkur er það
ekki ljúft að þurfá að rekja
þetta opinberlega, en teljum
okkur nauðbeygðar til að
gera það vegna okkar fjöl-
mörgu viðskiptavina sem
vissu að stúlkurnar yrðu hér í
þjálfun og ljósum. Einnig
til að benda á, að tryggilegra
er fyrir fyrirtæki að gera við
þessa aðila skriflegan samn-
ing, þannig að svona fram-
koma endurtaki sig ekki.
Þá viljum við óska að þátt-
takendum velfarnaðar í
keppninni með vissu um að
sigurvegarinn verður verð-
ugur fulltrúi okkar Suður-
nesjamanna um titilinn
„Ungfrú Island“, og vonum
að skrif okkar verði ekki til
þess að skemma stemming-
una hjá þeim að neinu leyti.
Virðingarfyllst,
Kolbrún Guðjónsdóttir
Berta Guðjónsdóttir
Skilvfsir fái afslátt
„Bæjarstjórn Keflavíkur
samþykkir að þeir bæjarbúar
sem greiða upp fasteigna-
gjöld sín fyrir 15. febr
,,Bœjarstjórn Keflavíkur
samþykkir að þeir bœjarbúar
sem greiða upp fasteignagjöld
sín fyrir 16. febrúar n.k. fái
6% afslátt á gjaldinu.
Drífa Sigfúsdóttir. “
Greinargerð:
Undanfarna mánuði hefur
lausafjárstaða bæjarsjóðs
verið mjög bágborin og er
ekki útlit fyrir að úr rætist
alveg strax. Það er því nauð-
synlegt að mínu mati að afla
meiri tekna fyrstu mánuði
ársins en ráð er fyrir gert. Til
Auðvelt hjá ÍBK
ÍBK vann Hauka í 1. deild
kvenna í körfu í Keflavík á
sunnudag, 63:45, eftir að hafa
leitt 32:16 í leikhléi. Sigur ÍBK
var aldrei í hættu. Auður Rafns-
dóttir var best í Iiði ÍBK ogskor-
aði 18 stig og hitti mjög vel.
Einnig voru þær Anna María og
Björg góðar.
Keflavík á ennþá möguleika á
Islandsmeistaratitilinum, þó lið-
ið sé 6 stigum á eftir ÍR. Liðið á
tvo leiki til góða og á eftir að
leika tvo leiki við ÍR. Sigri ÍBK í
öllum leikjum sem eftir eru, er
titillinn þeirra, en í kvennadeild-
inni er leikin þreföld umferð.
að draga úr lántökum bæjar-
sjóðs tel ég eðlilegt að bjóða
bæjarbúum 6% afslátt af
fasteignagjaldi ef það er
greitt upp fyrir 16. febrúar
n.k.
Var samþykkt með 8
atkvæðum að vísa tillögu
þessari til nánari umfjöllun-
ar hjá bæjarráði, Ingólfur
Falsson sat hjá.
Dúbl í
horn!
Billiard
(snóker) er
skemmtileg
íþrótt sem
allir geta
leikið, ungir
sem eldri. Leiðbeinendur
ef óskað er. Sjö 12 feta borð
og kjuðar fyrir alla.
OPIÐ
alla daga
frá kl.
11.30-23.30.
Pantið tíma
eða komið.
Knattborðsstofa Suðurnesja
Grófinni - Keflavík - Simi 13822
Frá
Föndurstofunni
Nýkomin sending af litavöru.
Úrval af litum, myndum, dúkum
og mörgu fleira.
Föndurstofan
Sími 12738
Útgerðarmenn - Skipstjórar
Okkur vantar báta í föst viðskipti. Greiðum hæsta
verð. Öruggar greiðslur. Bankaábyrgðir.
Uppl. í síma 14584 á daginn og í síma 15776 á
kvöldin.
SPARISJÓÐURINN í KEFLAVÍK TILKYNNIR BREYTT SÍMANÚMER FRÁ l. FEB.
15800
SPARISJOÐURINN I KEFLAVIK