Víkurfréttir - 18.02.1988, Síða 1
Um þessar mundir standa
yfir viðræður við Vita- og
hafnamálastjóra um það,
hvort slysavarnasveitin Ægir í
Garði fái garnla Garðskagavit-
ann til afnota undir
veitingasölu yfir sumarmán-
uðina.
Er það von Ægismanna að
með veitingasölu á Garðskaga
myndi aukast fólksstraum-
ur á skagann og einnig bæta
fjárhagslega stöðu sveitarinn-
ar, en sem stendur hefur Ægir
enga fjáröflunarJeið.
Auk þess að opna veitinga-
S&I14. þá verða gerðar miklar
úrbætur í hreinlætisaðstöðu á
staðnum, en yfir því hefur
verið kvartað þegar stórir hóp-
ar koma á Suðurnesin og út á
Garðskaga, að ekki sé nein
hreinlætisaðstaða til staðar.
sala í gamla
Garðskaga-
vitanum
Veitinga-
Njarðvíkurbær með
milljón I salti
I ljós hefur komið að bæjar-
stjórn Njarðvíkur hefur ekki
innt af hendi greiðslu á hlutafé
sem bæjarfélagið samþykkti á
árinu 1986 að kaupa í Sjóefna-
vinnslunni h.f. á Reykjanesi.
Nam þetta hlutafé 893 þús-
undum í aprll 1987 og er því
talið nema yfir einni milljón á
verðlagi dagsins í dag.
Kom þetta fram á aðalfundi
Sjóefnavinnslunnar h.f. sem
haldinn var í Höfnum síðasta
laugardag. Er Njarðvíkurbær
eina byggðarlagið á Suðurnesj-
um sem ekki stóð í skilum með
viðbótarhlutaféð á þessum
tíma. Að vísu hafnaði Vatns-
leysustrandarhreppur viðbót-
arkaupum. Hin sveitarfélögin
hafa öll greitt sitt framlag, þó
það hlutafé hafi síðan verið
skorið niður eins og annað
hlutafé, þegar 40 milljónum
var með einni samþykkt breytt
í 4 milljónir.
Þrátt fyrir þennan niður-
skurð er skuld Njarðvíkurbæj-
ar enn til staðar og vex frekar
en hitt með tilkomu dráttar-
vaxta.
Ragnar Orn með
einkaklúbb
Ragnar Örn Pétursson, veit-
ingamaður, hefur ákveðið að
opna einkaklúbb. Er hug-
myndin að starfsemi hans fari
fram á 2. hæð Glaumbergs, í
húsakynnum Karlakórs Kefla-
víkur. Klúbbur þessi mun
verða opinn alla virka daga frá
kl. 17 til 23.30, en um helgar
fram yfir miðnætti.
Meðlimir munu greiða
ársgjald og fá í staðinn ótak-
markaðan aðgang að klúbbn-
um svo og veitingar á rétt rúm-
lega kostnaðarverði.
Stefnt er að því að vera með
ýmsar uppákomur, eftir því
sem blaðið kemst næst, s.s.
djasskvöld, trúbadora og
ýmislegt fleira.
AÐALFUNDUR SJÖEFNAVINNSLUNNAR HF:
Vildi ekki starfs-
menn í stjórn
Aðalfundur Sjóefnavinnsl-
unnar h.f. á Reykjanesi var
haldinn í Höfnum á laugar-
dag. 1 upphafi fundar minnt-
ist Jón Gunnar Stefánsson,
stjórnarformaður, Jóns H.
Júliussonar, fyrrum stjórnar-
manns, sem lést á síðasta ári.
Bað hann fundarmenn að rísa
úr sætum og votta þannig hin-
um látna virðingu sína.
Þá gat Gunnar þess að fund-
ur þessi væri að vissu leyti
tímamótafundur, þar sem á
síðasta ári hefði hlutaféð verið
lækkað úr 40 milljónum í 4
milljónir og síðan hækkað á ný
um 50 milljónir eða í 54 millj-
ónir. Hefði Hitaveita Suður-
nesja keypt þessar 50 milljónir
og eignast þar með 98,6%
hlutafjár í fyrirtækinu. Jafn-
framt þessu voru skuldir færð-
ar niður um 567 milljónir
króna og nemur því aðeins um
70 milljónum, þ.e. langtíma-
skuldir.
Fundarstjóri var kosinn
Þórarinn St. Sigurðsson og
fundarstjóri Leó M. Jónsson.
Ný stjórn var kosin á fundin-
um og er hún þannig skipuð:
Jón Gunnar Stefánsson, Jó-
hann Einvarðsson, Hannes
Einarsson, Björgvin Gunnars-
son og Þórarinn St. Sigurðs-
son.
Undir stjórnarkjörinu bar
Ellert Skúlason upp tillögu um
að í stjórninni sæti einn full-
trúi starfsfólks, Gunnar Hastl-
er. Benti fundarstjóri þá á að
Hitaveitan ætti 98,6% hluta-
fjár og því réði afstaða hennar.
Ellert óskaði þá eftiratkvæða-
greiðslu en áður hafði Finn-
bogi Björnsson, formaður
stjórnar Hitaveitunnar bent á
að stjórn HS stæði einhuga um
þá tillögu sem fram hefði kom-
ið í fyrstu um skipun stjórnar
og myndi greiða henni atkvæði
sitt. Kom það síðan í ljós við
atkvæðagreiðslu að hlutur HS
var notaður til að kjósa fyrri
tillöguna en flestir aðrir hlut-
hafar sátu hjá.
Þá kom fram í máli Guð-
finns SigurvinssonaraðNjarð-
víkurbær hefur svikist um að
láta af hendi greiðslu á hluta-
fjárloforði sem þeim ber sam-
kvæmt áður gerðri samþykkt
þeirra. Er nánar greint frá
þessu annars staðar í blaðinu
svo og merkri ræðu sem Magn-
ús Magnússon, framkvæmda-
stjóri, flutti á fundinum.
Aður en fundi var slitið var
samþykkt að greiða stjórnar-
mönnum kr. 40 þúsund hverj-
um fyrir sig fyrir veru í stjórn-
inni og formanni 50% meira.
TRÉ-X:
Ráðherra
gangsetur
tölvu-
stýringu
í tilefni af 15 ára afmæli
Trésmiðju Þorvaldar Ól-
afssonar í Keflavík fer
fram á morgun gangsetn-
ing nýrrar tölvustýringar á
vélalínu í verksmiðjunni.
Mun Friðrik Sophusson,
iðnaðarráðherra, taka
tölvustýringuna formlega í
notkun.
Tölvustýring á vélalín-
unni er hluti þróunarverk-
efnis sem heitir ,,Ný tækni í
iðnaði" á vegum Iðntækni-
stofnunar Islands og Iðn-
þróunarsjóðs, sem hefur
það markmið að auka
framleiðni í iðnaði.
BYGGIR ÚSKAR 100 HERBERGJA HÚTEL?
Hin óvenju hraða at- burðarás Oskars Arsæls- sonar í veitingarekstri í Keflavík og Njarðvík siðasta l'Amánuðhefuror- sakað rnikið umtal um manninn. Vegna þessa hafa sögur í ætt við Gróu á Leiti blossað upp. Um leið hafa spurningar orðið til, eins og hvort Ósk- ar sé orðinn eitthvað rugl- aður. Hvernig getur maður sent á ekki pening, gert slíkt á svo skömmum tíma? Hver fjármagnar þetta fyrir hann? Hver er á bak við hann? Hvernig ætlar hann að komast yfir þetta allt? Þessar spurningar hafa verið mjög svo brennandi á vörunt fólks að undan- förnu. Ekki síður eftir að það fór að síast út að hann ætlaði jafnvel að byggja hótel og opna einkaklúbb. „Nei, ég er ekki ruglað- ur, á bak við mig standa tveir fjársterkir aðilar", sagði Óskar í viðtali við blaðið, en á bls. ■' leysir hann frá skjóðunni í hressi- legu viðtali.