Víkurfréttir - 18.02.1988, Blaðsíða 6
viiam
6 Fimmtudagur 18. febrúar 1988
Auglýsingasímar Víkur-frétta:
14717 - 15717
Dúbl
horn!
Billiard
(snóker) er
skemmtileg
íþrótt sem
allir geta
leikið, ungir
sem eldri. Leiðbeinendur
ef óskað er. Sjö 12 feta borð
og kjuðar fyrir alla.
OPIÐ
alla daga
frá kl.
11.30-23.30.
Pantið tíma
eða komið.
Knattborðsstofa Suðurnesja
Grófinni - Keflavík - Sími 13822
Frá Grunnskóla
Njarðvíkur
Fimmtudaginn 25. febrúar verður fundur í
skólanum fyrir foreldra og forráðamenn
nemenda.
Hugo Þórisson, sálfræðingur, heldurfyrir-
lestur sem ber heitið Samskipti foreldra og
barna.
Hugo mun einnig svara fyrirspurnum.
Foreldrar nemenda eru eindregið hvattir til
að koma áfundinn, en hann hefst kl. 20.30.
Foreldra- og kennarafélag
Grunnskóla Njarðvíkur
ÚTBOÐ
Byggingaverktakar Keflavíkur, Keflavíkur-
flugvelli, óska eftir útboði í raflagnir og lýs-
ingu í hótelálmu við Hafnargötu 57, Kefla-
vík.
Útboðsgögn afhendist á skrifstofu félags-
ins gegn 5000 kr. skilatryggingu, þriðju-
daginn 23. febrúar kl. 13.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, föstu-
daginn 11. mars kl. 11 f.h.
SÖLU
Ford Thunderbird árg. 1984, ek-
inn 46 þús. mílur, V-6.
Sjálfsk., vökva-og veltistýri, rafmagn í rúð-
um og sætum, hraðastilling, útvarp/kass-
etta. - Verð 760 þús. krónur. Skipti á
ódýrari eða góð kjör. Uppl. í síma 17064
eftir kl. 19.
orðvar
\ (tittU
Vélræn matar-
innkaup
Verslunarhættir íslendinga
hafa breyst mikið á einum
mannsaldri. Nú gerir fólk
matarinnkaupin vélrænt í
stórum magasínum, án nokk-
urra samskipta við starfs-
fólkið. I’ersónuleg tengsl
kaupmanns og viðskiptavina
eru nánast alveg úr sögunni.
Maður einn, sem vann í mat-
vöruverslun í nokkur ár fyrir
langa löngu, þegar öll vara
var afgreidd yfir búðarborðið,
lét liugann reika aftur í þann
tíma yfir kaffimáli í Samkaup
nýverið. Eftir árið þckkti
hann beturtil hcimilishalds og
mataræðis viðskiptavinanna,
hcldur en þeir sjálfir. Hann
gat valið akkúrat það sem til
var ætlast samkvæmt miðum,
sem húsmæður sendu börnin
sín með í húðina. Börn og
unglingar gerðu þá matarinn-
kaupin fyrir flestar fjölskyld-
ur, og var mikilvægt
viðskiptalega að ná trausti
þeirra. Saltkjöt var erfiðast
að afgreiða svo vel líkaði, þar
náði cnginn fuilkomnun. Eitt
heimilið vildi kannski 5 síðu-
bita og 2 leggi, þegar það
næsta vildi 6 hryggjarbita ein-
göngu. Sumar fjölskyldur
lögðu sér gullauga aldrei til
munns. Ólafsrauðar varð það
að vera. Þegar mikið magn
af vörum, t.d. hangikjöti, kom
fyrir stórhátíðir, skoðaði af-
greiðslumaðurinn kjötið og
ætlaði þá þessari ijöslkyldu
ákvcðinn frampart og hinni
ákveðið læri. Með einn erfið-
asta viðskiptavinin í huga
hafði hann valið hangilæri,
sem hann taldi uppfylla allar
kröfur hvað stærð og fitu
varðaði. Þar kom að sú vand-
láta kom og vantaði hangilæri.
Hann náði strax í gljáandi,
bústið og mjúkt lærið og lagði
það brosandi á afgreiðslu-
borðið. Konan leit lauslega á
það, og spurði hvað það kost-
aði. 1 lann brá því á vigtina og
sagði henni verðið. „Nei, mér
list ekkert á þetta læri'*,
svaraði konan. Ilann fór því
inn á lager og náði í hvert
hangilærið á fætur öðru, en
aldrei líkaði konunni varan.
Keflavíkurkirkja:
Sunnudagaskóli kl. 11. Muniö
skólabilinn.
Fjölskylduguösþjónusta kl. 14
með þátttöku skáta og ferming-
arbarna. Guðlaugur Gunnars-
sonsegjafrákristniboði (slend-
inga i Afríku.
Sóknarprestur
El'lir 10 ferðir eða svo fannst
honum nóg komið og tók lærið
sem hann sýndi heni í upphafi,
og lagði það á borðið með
þeim orðum að eiginlega hafi
hann ætlað sér þetta læri. Það
glaðnaði yfir konunni um leið
og hún sagði: „Já, þetta líst
mér vel á, hvað kostar þetta?“
Afgreiðslumaðurinn brá því á
vigtina til málamynda og
bætti nokkrum krónum við
fyrra verðið. „Já“, sagði
konan aftur, „þetta er
akkúrat það sem ég vil“.
Vinurinn fékk sér meira kaffi í
plastmálið og hélt síðan
áfram. Þetta var bara einn
þátturinn í lciknum. Allir í
búðinni vissu hvað var að ske.
I versluninni voru tilmiklar
birgðir af kjötkraftsdufti í 1
kg dósum, sem keyptar höfðu
verið vegna mötuneytis þarna
í nágrcnninu fyrir allmörgum
árum. Dósin kostaði kr. 50, en
seldist ckki. Samt var þctta
úrvalsvara. Kaupmaðurinn
tók það loks til bragðs að
vigta allan kjötkraftinn upp í
100 gr. plastbox. Prentaðir
voru skrautlegir miðar á
boxin og þau sett fram i hillu á
kr. 50 stykkið. Það var eins og
við manninn mælt, eftir 2-3
mánuði var allur kjötkraftur-
inn uppseldur. Hagsýni
kaupmannsins var lengi í
minnum liöfð, og í alvöru held
ég að öllum hafi líkað all vel
þetta uppátæki lians. Reyndar
var engin verðkönnun í gangi
á þessum árum og fólk óvant
því að margskrifað væri í
verðin á hlutunum. Jón Bald-
vin var þá í vöggu fyrir vestan.
Kona vinar míns er nú
koinin að sækja hann. „Þaðer
svo mikil örtröð við kassann,
að þú verður að hjálpa mér“,
segir hún. Hann jánkar því,
lýkur úr kaffimálinu og
stendur upp. í biðröðinni með
körfuna snýr hann sér að mér
og heldur áfram: „Þó vöruúr-
valið hafi margfaldast, þá er
hundleiðinlegt að versla í
þessum magasínum. Mann-
legi þátturinn hefur týnst ein-
hvers staðar í plastbylting-
unni. Verslun með matvöru
var lifandi og staðbundið fag
hér áður fyrr.
Getraunir
„Liverpool var fyrsta liðið
sem ég sá“
„Fyrsta enska liðið sem ég sá var Liverpool, þegar það
kom til íslands til að leika við KR hér um árið. Síðan hef ég
haldið tryggð við liðið“, segir næsti tippari, Sturlaugur Ól-
afsson, einn af þessum gallhörðu kennaraspekingum úr
Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
„Ég tippa reglulega, nánast í hverri viku. Nei, ég varekki
með í keppninni á kennarastofunni núna, en Gísli Torfa
sigraði aftur í ár. Sjálfur.hef ég aldrei unnið nema smávinn-
inga í getraunum. Maður lifir þó alltaf í voninni og spilar
upp á það. Þessi seðill býður þó ekki upp á mikið, hann er
mjög erfiður og nánast enginn leikur öruggur", sagði Stur-
laugur.
Heildarspá Sturlaugs:
Arsenal - Man. Utd..... X
Birmingham - Nott’m Eor. 1
Newcastle - Wimbledon
Port Vale - Watford .
Q.P.R. - Luton ......
Charlton - Sheff. Wed.
Oxford - Derby ......
Blackburn - Aston Villa
Millwall - Oldham ....
Sheff Ltd. - Barnsley .
Schrewsbury - Swindon
Stoke- Leeds ........
X
X
1
X
1
1
X
1
Sigurbjartur með 8 rétta
Enn harðnar keppnin á toppnum. Síðasti tippari, Sigur-
bjartur Loftsson úr Grindavík, fékk 8 rétla og er því
kominn í 2.-4. sæti. Efstur er Gísli Heiðarsson með 9 rétta.
Síðan koma þrír með 8 rétta, Sigurbjartur, Jón Halldórs-
son og Sævar Júlíusson. Það er greinilegt að það getur allt
gerst enþá . . .