Víkurfréttir - 18.02.1988, Side 23
mun
júiUt
Fimmtudagur 18. febrúar 1988 23
Bðkasafnið
með tón-
listardeild
Síðasta fimmtudag opnaði
bókasafnið í Keflavík tónlist-
ar- og myndbandadeild innan
safnsins. Að sögn Hilmars
Jónssonar, bókasafnsvarðar,
er hér um að ræða 60-70 titla af
geisladiskum og annað eins af
hljómplötum og snældum. Þá
er safnið einnig að byrja með
myndbandadeild og koma
myndböndin frá myndbanda-
deild ríkissjónvarpsins. Er þar
um að ræða fræðsluþætti eins
og Stiklur og veðurfræði. Þá er
safnið einnig með spænsku-
kennslu og enskukennslu á
myndböndum, en með bönd-
unum fást einnig kennslubæk-
ur.
Arásarmaður handtekinn
Lögreglan í Grindavík
handtók á sunnudag tvo menn
vegna árásar á mann í húsa-
sundi í Reykjavík nóttina áð-
ur. Annar þeirra handteknu
var sekur að verknaði þessum
en hinn vitni.
Voru þeir færðir rannsókn-
arlögreglu ríkisins eftir hand-
tökuna.
Tvö umferðaróhöpp
á örfáum mfnútum
Aðfaranótt sunnudagsins
urðu tvö umferðaróhöpp með
slysum í umdæmi lögreglunn-
ar í Kefiavík. Tilkynning um
fyrra óhappið barst lögregl-
unni kl. 4.25. Þar var um að
ræða bifreið sem ekið var á
ljósastaur og vegg við Garðveg
í Garði.
Ökumaðurinn slasaðist tals-
vert en grunur leikur á að
Bakkus hafi verið með í ráð-
um. Var bifreiðin óökufær á
eftir.
Fjórtán mínútum síðar
barst tilkynning um að ekið
hefði verið á gangandi vegfar-
anda á Hafnargötu í Keflavík,
á móts við hús nr. 84. Slasaðist
hann eitthvað en þó ekki lífs-
hættulega. Sá sem lenti fyrir
bifreiðinni er grunaður um
meinta ölvun.
Um helgina stóð lögreglan
þrjá ökumenn aðra en þann
sem nefndur er hér fyrst að
ofan, fyrir grun um meinta
ölvun við akstur. En umferð-
aróhöppin þessa sömu helgi
urðu 6 en slys einungis í þeim
sem áður eru talin.
Borgara-
flokkurinn
Þingmenn Borgaraflokksins í Reykjanes-
kjördæmi verða til viðtals í Glóðinni, uppi,
Keflavík, sunnudaginn 21. febr. kl. 16-18.
Kaffiveitingar. - Allir velkomnir.
II. vélstjóri
óskast á Þröst KE (90 tonn) á togveiðar.
Upplýsingar í síma 16137 á kvöldin.
þriðja og síðasta á fasteigninni Túngata 8, miðh. og rish.,
Grindavík, þingl. eigandi Eiríkur Pétursson, ferfram áeign-
inni sjálfri miðvikud. 24. feb. '88 kl. 15.30. - Uppboðsbeið-
andi er: Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl.
Bæjarfógetinn í Keflavík, Njarðvík
og Grindavík
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu
Umræða um fjár-
magnsvandamál
í tenglsum við ÞRÓUNAR-
VERKEFNl FYRIR SVEITAR-
FÉLÖG var haldinn þann 15. feb.
1988 fundur um F.IÁRMÖGNUN
FYRIRTÆKJA. Á fundinum var
ljallað um Ijármagnsvanda fyrir-
tækja á Suðurnesjum og hvað væri
hægt að gera til að taka á þessum
vanda.
Fram kom að fyrirtækin á Suð-
urnesjum væru 1 mörgum tilvikum
litlar rekstrareinipgar. og hefðu
mikinn rekstrarkostnað miðaðvið
veltu. Of margir aðilar væru með
einhvers konar rekstur þó að þeir í
raun hefðu ekki til þess nægilegt
eigið fé. Einnigværiáberandi hérá
þessu svæði, hversu fáir vildu
vinna hjá öðrum.
Vandamálin sem við blöstu
vegna þessa ástands væri að fjár-
magnskostnaður væri mikill og
gjaldþrot tíð. Of mörg fyrirtæki
væru að vinna á sama meiði og oft
væri fjöldi þeirra slikur að mark-
aðshlutdeild hvers fyrirtækis
nægði ekki til að fyrirtækin gætu
borið sig, hvað þá að þau gætu
byggt sig upp.
Sú skoðun kom fram, að banka-
útibúin og Sparisjóðurinn gætu
haft verulegáhrif á þessi mál t.d. ef
þau kæmu sér saman um að bcina
fyrirtækjum með einhvers konar
rekstrarfjárvanda til ákveðins
aðila, sem gæti farið gegnum
rekstrarvandamálin og annað
hvort skilað mati eða álitsgerð til
bankans eða til fyrirtækjanna
beint.
Ef bankarnir beindu viðskipt-
um sínum til ákveðins aðila, þá
væri grundvöllur til að þessi aðili
gæti byggt upp öfluga ráðgjöf fyrir
þetla víðtæka svið sem Ijármögn-
un fyrirtækja er.
samþykkt var tillaga þess efnid
að kalla Sparisjóð og bankaútibú-
in á sérstakan fund og ræða þessi
máj.
Á lundinum var einnig rætt um
fjárfestingarfélög sem leið til að
Ijármagna rekstur og verkefni á
vegum fyrirtækja.
Hugmyndin er sú að fyrirtæki
sem velja hlutafélagsformiðogeru
metin sem arðbær.geta aukiðeigið
fé sitt með hlutafjársölu til Ijárfest-
ingarlélags. Þetta þýðir það að
Ijármagnskostnaður verður minni
en ella og ef fyrirtækið er nýtt þá
getur þaðskipt sköpum ef það þarf
ekki að treysta of mikið á lána-
fyrirgreiðslu.
Af öllum lánum þarf að greiða
vexti ogef vaxtabyrðin erofmikil,
þá gildir einu hvort viðskiptahug-
myndin er góð, sem fyrirtækið
byggir á, enginn rekstur getur
borið mikinn vaxtakostnað.
Fram kom að Þróunarfélag Is-
lands hefur kynnt hugmyndir sín-
ar varðandi stofnun Ijárfestingar-
lélags er starlaði á Suðurnesjum
með þeirra þátttöku.
Sett helur verið undirbúnings-
nelnd á laggirnar sem hefur verið
að kanna áhuga ýmissa aðila á
þátttöku, en engin ákvörðun
liggur fyrir hvort af þessu verði.
Hins vegar hefur stjórn Iðnþró-
unarfélags Suðurnesja tekið
ákvörðun um að leggja það til við
aðalfund lélagsins, sem haldinn
verður 5. mars 1988, aðaðalfund-
urinn samþykki formbreytingu fé-
lagsins yfir i hlutafélag. Einnig
verður lögð fram tillaga að hið
nýja félag veiti ráðgjöf eins og
verið hefur og starfi einnig sem
Ijárfestingarfélag.
Núverandi lélagar Iðnþróunar-
félagsins eru 170 og munu þeir
mynda grunninn í hinu nýja
hlutafélagi. Þegar það er stofnað
verða teknar upp viðræður um
samstarfvið þá aðilasemstefnaað
sömu markmiðumoglðnþróunar-
lélagið og fara svipaðar leiðir til að
ná fram þeim markmiðum.
Þeir sem tóku þátt i umræðunni
á fundinum voru:
Vilhjálmur Ketilsson, bæjar-
stjóri, Kellavík - Oddur Einars-
son, bæjarstjóri, Njar ik - Jó-
hann Einvarðsson, alþn.gismaður,
Kellavík - Guðjón Ómar Hauks-
son, skrifstofustj. Bifreiðaverkst.
Steinars - Hermann Ragnarsson,
framkv.stj. Húsanesssf. - Jóhanna
Reynisdóttir, útibússtjóri Versl-
unarbankans - Jón E. Unndórs-
son, framkv.stj. Iðnþróunarfélags
Suðurnesja - Guðmundur Finns-
son, starfsmaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur og
nágrennts. ,ón E Unndórsson
Smáauglýsingar
I.O.O.F. 13 Hfj.=1692028'/2- 9.0.
Flisalagnir
Tek að méraðleggjaflísar. Góð
vinna. Uppl. í síma 12984. Rich-
ard.
Hús og bíll
Til.leigu 3ja herb. íbúð i Njarö-
vik. Einnig til sölu Mazda 626 LX
'87 og Volvo 144 DL '73. Uppl. i
síma 13113.
íbúö til leigu
3ja herb. íbúð á góöum staö til
leigu í 1 ár frá og með 1. apríl.
Uppl. i síma 15669 eftir kl. 19.
íbúö óskast
4ra herb. íbúð óskast til leigu.
Uppl. í síma 12419.
íbúð til leigu
Ný 3ja herb. ibúð til leigu i 6-8
mánuði. Tilboð óskast. Uppl. í
sima 13699 á kvöldin.
Atvinna óskast
Ég er á 16. ári og óska eftir at-
vinnu. innheimtustarf kemur til
greina, hef létt bifhjól til um-
ráða. Uppl. í síma 13943. Þor-
björn.
Herbergi óskast
Óska eftir herbergi til leigu.
Uppl. i síma 11803.
Íbúð til leigu
3ja herb. íbúð til leigu. Uppl. í
sima 13977.
íbúö óskast
3ja-4ra herb. íbúö óskast til
leigu strax. i sama númeri er
Super San Ijósabekkur til sölu.
Uppl. í síma 11923.
Einstaklingsibúö
óskast til leigu. Á sama stað til
sölu vandað hjónarúm með tvö-
földum fjaöradýnum, náttborði
og stórri kommóðu. Uppl. i síma
15322 eftir kl. 17.
ibúö óskast
Óska eftir lítilli ibúð eöa her-
bergi til leigu sem fyrst. Uppl. í
síma 91-23605.