Víkurfréttir - 24.03.1988, Qupperneq 1
I
, ar.dsbóUasa
101 ReyUj»v
Grunnskóli Grindavíkur:
Skólakennsla
í Grindavík
100 ára
Á laugardag verður haldið
upp á það með formlegum
hætti að liðin eru eitt hundrað
ár síðan skólakennsla hófst í
Grindavík. Að sögn Margrét-
ar Gísladóttur, formanns
skólanefndar grunnskólans í
Grindavík, verður á laugardag
kl. I4 opnuð sýning nemenda
skólans á verkum sem þau
hafa unnið í vetur og sérstöku
verki sem tengist Grindavík og
afmælinu.
Eru allir gamlir nemendur
velkontnir svo og Grindvík-
ingar allir, en sýning þessi
verður í gamla leikfimissaln-
um og verður opin dagana 26.,
27. og 31. mars og 2. og 4. apr-
íl.
Þá hefur blaðið hlerað að við
opnun sýningarinnar muni
einn nemenda skólans, sem
tók þátt í hópverkefninu, lesa
upp Ijóð eftir Kristinn Reyr.
Þessi nentandi hefur einnig
spreytt sig við að yrkja Ijóð og
birtum við eitt frumsamið eftir
hana annars staðar í blaðinu.
Hún heitir Guðrún Lúðvíks-
dóttir og er aðeins I4áragöm-
ul.
Síðar munum við greina
nánar frá afmæli þessu svo og
sýningunni. hpé/Grindavík.
Ljósm.: pket.
A LEIÐ I LAND
Grindavík:
Reyndi að
stinga lög-
regluna af
Vopnuð herlögregla
stöðvaði ferðalanga
á íslenskum þjóðvegi
Alls voru sex ökumenn
teknir fyrir grun um
meinta ölvun við akstur í
Keflavík í síðustu viku og
tveir í Grindavík.
Annar þeirra sem tekinn
var í Grindavík reyndi að
komast undan lögreglunni
og ók m.a. á annað hundr-
að km hraða. En það tókst
ekki þrátt fyrir það og náði
lögreglan kauða. Hinn að-
ilinn úr Grindavík hafði
tekið bifreið ófrjálsri hendi
og velt henni. Skemmdist
bifitiðin töluvert, en öku-
maðurinn slapp með
skrámur.
Enn einu sinni hafa herlög-
reglumenn af Keflavíkurflug-
velli verið staðnir að alvarlegu
broti utan vallar. Urðu vegfar-
endur um Hafnaveg á laugar-
dag varir við einkennilega
uppákomu af þeirra völdum
við gatnamót flugvallavegar.
Þar stöðvuðu þeir bíl með
tveimur Dönum í, er sést
höfðu munda myndavélar í
námunda við Sorpeyðingar-
stöðina. Mættu á staðinn alls
fimm ökutæki frá hernum, þ.e.
tveir herlögreglubílar, einn bíll
með Marine-hermönnum og
tveir herbílar ómerktir. Að
auki var kallaður til bíll frá ís-
lensku lögreglunni á Keflavík-
urflugvelli og það þó þetta ætti
sér stað utan lögsagnarum-
dæmis flugvallarlögreglunnar
eða á svæði Keflavíkurlög-
reglu.
Höfðu Danirnir verið á
helgarferðalagi en þeir starfa
báðir hér á landi og m.a. verið
að mynda fjallahringinn. Voru
þeir færðir á lögreglustöðina á
Keflavíkurflugvelli, þar sem
málið var útkljáð sem mistök
af hálfu hermannanna. Að
sögn viðmælenda blaðsins er
það orðið með öllu ólíðandi,
afskipti herlögreglunnar utan
girðingar eins og í þessu tilfelli
sem varð á íslenskum þjóð-
vegi. Hlýtur að fara að koma
að því að þessi skrumsýning
verði stöðvuð svo og hinar
frjálsu útivistarreglur sem í
gildi virðast vera með varnar-
liðsmenn utan girðingar.
Hvorki náðist í blaðafull-
trúa varnarliðsins né lögreglu-
stjórann á Keflavíkurflugvelli
vegna máls þessa, áður en
blaðið fór í prentun.
Garðmenn vilja endur-
heimta Helguvíkina
Borgarafundur var haldinn
í Garðinum á þriðjudags-
kvöld. Aðeins voru mættir 12
áheyrendur á fundinn. Fund-
urinn hófst með því að Finn-
bogi Björnsson, oddviti, gerði
grein fvrir fjárhagsáætlun
Gerðahrepps 1988.
I fyrirspurnum var lögð
fram eftirfarandi tillaga:
„Borgarafundur í Garði,
haldinn þriðjudaginn 22. ntars
1988, hvetur hreppsnefnd
Gerðahrepps til þess að leita
allra leiða lil að endurheimta
hluta lands þess, eraf hreppn-
um var tekið með lögum á ár-
inu 1966. Sem sett var undir
lögsagnarumdæmi Keflavík-
ur.
Fundurinn hefur þá i huga
landsvæðið neðan Garðvegar,
neðan kirkjugarðs í suð-austur
frá núverandi mörkum Gerða-
hrepps og Keflavíkur, ca. 300
metra inn fyrir Sandgerðisyeg,
beint í sjó fram suð-austan
Helguvíkur.
Garði 22. mars 1988
Unnar Már Magnússon"
Var tillaga þessi samþykkt
samhljóða á fundinum.