Víkurfréttir - 24.03.1988, Page 8
\)ÍKUK
8 FimmtudaguC-24. mars-4988
VINSÆLAR
fermingargjafir I
Sportbúð Óskars
Fegurðardrottningar Suðurnesja, þær Guðbjörg Fríða Guðmundsdóttir
og Oddný Nanna Stefánsdóttir, nota að sjálfsögðu íþrótta- og skíðavörur
frá SPORTBÚÐ ÓSKARS.
SKÍÐATILBOÐ - FERMINGARTILBOÐ:
SPORTPAKKk
Atomic skíöi 180-195
Salomon skór 5x41
Salomon bindingar 347
Atomic stafir
VERÐ: 15.290
Fermingartilboö 15%afsl.
12.996.-
UNGLINGA- OG
DÖMUPAKKI:
Atomic skíði 140-170
Salomon skór 5x41
Salomon bindingar 347
Atomic stafir
VERÐ 14.290
Fermingartilboö 15% afsl.
12.145,-
GÖNGUPAKKI:
Jarnvinen skíöi 190-210
Salomon bindingar
Salomon gönguskór
Jarnvinen stafir
VERÐ: 7.490
Fermingartilboö 15% afsl.
6.350,-
Höfum á boðstólum mikiö úrval af góðum fermingargjöfum, svo sem
skíöapoka, skópoka, skíðagalla, skiðagleraugu og skíðalúffur. - Einnig
bakpoka (50-70 litra) og svefnpoka (-5 til -20° C). - Dúnúlpur og ADIDAS-
gallamir vinsælu. - Þá höfum við golfsett,
golfkerrur, golfpoka o.fl. o.fl.
SPORTBÚÐ ÓSKARS
Hafnargötu 23 - Keflavík - Sími 14922
Kútmagakvöld
Lionsmanna
Eitt af stórskemmtilegum uppátækjum Lionsklúbbs Keflavík-
ur er að halda svokallað kútmagakvöld, sem er orðinn árlegur
viðburður. Lionsfélagar taka þá gjarnan með sér gesti og segja
sumir að þetta sé stærsta karlapartý á landinu sem haldið er. Ekki
alls fyrir löngu var kútmagakvöldið haldið hátíðlegt í Golfskál-
anum í Leiru að viðstöddum um 150 kátum körlum. Heiðursgest-
ir kvöldsins voru DV-ritstjórarnir Ellert B. Schram og Jónas
Kristjánsson, en sá síðarnefndi þykir mikið matargat. Fóru þeir
félagar á kostum í ræðum sínum og sýndu Suðurnesjamönnum
,,hinahliðina“ á sér. Allt annað heppnaðist einnig mjög vel. Glóð-
in sá um matinn, og bar fram eitt það rosalegasta sjávarréttahlað-
borð sem menn hafa séð hér syðra. Blm. Víkur-frétta var að sjálf-
sögðu á staðnum, borðaði mikið og mátti varla vera að því að
mynda, en tók þó nokkrar sem birtast hér með. Ljósm. pket.
F.v.: Jón Halldórsson, Jóhann Pétursson, Þórarinn Hjálmarsson, Hjálmar
Árnason, Bragi Pálsson og Njáll Skarphéðinsson.
F.v.: Bcncdikt Sæmundsson, Garðar Oddgeirsson, Jón Kagnar Höskulds-
son, Sigurjón R. Vikarsson, Albcrt Hinriksson, Sigurður Þorkelsson, Héð-
inn Skarphéðinsson og Helgi Jónatansson.
Fremst á myndinni má þekkja þá Magna Sigurhansson (t.v.), Þorberg Frið-
riksson og Jónas Kristjánsson.'
Hvaða áhyggjumáli Ellert Eiríksson, sveitarstjóri og varaþingmaður, er að
lýsa er óvíst um, en Ijóst er þó að ritstjórar DV brosa yfir því. F.v.: Jónas
Kristjánsson, Ellert Eiríksson og Ellert B. Schram.