Víkurfréttir - 24.03.1988, Blaðsíða 12
12 Fimmtudagur 24. mars 1988
bFERMINGAfc
---GJAFA—
Tlt
• Hnattlíkön • Pennasett
• Skáktölvur • Orðabækur
• Atlasar • Ritsöfn
• Fermingarminningar
• Fræðibækur
HóUabúb /^eflavíkur
— Alltaf i leiðinni —
Dúbl í
horn!
OPIÐ
alla daga
frá kl.
11.30-23.30.
Pantið tíma
eða komið.
Billiard
(snóker) er
skemmtileg
íþrótt sem
allir geta
leikið, ungir
sem eldri. Leiðbeinendur
ef óskað er. Sjö 12 feta borð
og kjuðar fyrir alla.
Knattborðsstofa Suðurnesja
Grófinni - Keflavík - Simi 13822
Kúfiskbeita á
Suðurnesjum
Til sölu fyrsta flokks kúfiskbeita. Beitan er
afgreidd hjá vöruhúsi Skipaafgreiðslu
Suðurnesja, Keflavík, sími 14042.
Upplýsingar í síma 94-6292 og 94-6227 á
kvöldin.
BYLGJAN SF., Suðureyri
Bridsmót á skírdag
Á skírdag verður tvímenningskeppni í
tengslum við Menningarvöku Suðurnesja.
Mótið verður haldið í Holtaskóla og hefst
kl. 14.00. Öllum er heimil þátttaka og
áhorfendur eru velkomnir.
Skráning keppenda fer fram á keppnisstað
og þátttökugjald er 200 kr. á mann.
Bridsfélag Suðurnesja
m un
Þessar konur koma reglulega úr Keflavík til tómstundaiðkana sinna, Margrét Helgadóttir (t.v.) og Val-
gerður Sigurðardóttir. Á myndina vantar þá þriðju úr Keflavík, Ásgerði Eyjólfsdóttur.
Grindavík:
Vinsæl tómstunda-
iðja hjá öldruðum
Evelyn Adólfsdóttir, aðstoðarleiðbeinandi Kolbrúnar.
Hjónin Kolbrún Svein-
björnsdóttir og Lúðvík
Jóelsson hafa áannaðárboðið
upp á fría kennslu og aðstöðu
við keramik-gerð fyriraldraða
í Grindavík. Eru búnir þar
stórglæsilegir munir, bæði úr
keramiki og gulli.
Stendur þetta opið öllum
öldruðum Suðurnesjabúum
þrjá daga vikunnar þ.e. mánu-
daga, miðvikudaga og föstu-
daga frá kl. 14 til 17. Sagði
Kolbrún í samtali við Víkur-
fréttir að tómstundaiðja þessi
væri mjög vinsæl og værujafn-
vel dæmi um að aldraðar kon-
ur kæmu alla dagana frá
Keflavík með rútunni til að
stunda þetta í Grindavík.
Þarna útbúa hinir öldruðu
vinsælar gjafir s.s. til jólagjafa,
afmælis- eða jafnvel tækifæris-
gjafa. Annast Kolbrún leið-
beiningar á staðnum ásamt
manni sínum. Auk þess að-
stoðar Evelyn Adólfsdóttir
þau í þeim þætti sem snýr að
gullinu.
Er öll vinna þremenning-
anna unnin í sjálfboðavinnu
en auk leiðbeininga um gerð
gripa þessara er leiðbeint við
viðgerðir gripa úr þessum efn-
um.. „Eru konurnar alveg spes
og mjög vel tryggar við okk-
ur,“ sagði Kolbrún.
En auk þess sem þau hjónin
annast kennslu þessa er al-
menningi boðið upp á hlið-
stæða kennslu á námskeiðum
sem haldin eru á haustin.
Hópurinn sem var við iðju sína á mánudag. Auk Keflvísku kvennanna voru það Mattthildur Sigurðar-
dóttir, Ingibjörg Þórarinsdóttir, Hulda Gísladóttir, Rósa Guðnadóttir og Guðrún Jóelsdóttir allar úr
Grindavík og leiðbeinendurnir Kolbrún Sveinbjörnsdóttir (4. f.v.) og Evelyn Adólfsdóttir.
Ljósmyndir: hpé/Grindavík