Víkurfréttir - 24.03.1988, Blaðsíða 18
18 Fimmtudagur 24. mars 1988
mun
(UtUí'
rSkýrsla utanríkisráðherra::
Rekstrartekjur
frá varnarliðinu
tæpir 6 milljarðar
Athyglisverð skýrsla um starfsemina á Keflavíkurflugvelli
Hér á eftir verður stiklað á
nokkrum áhugaverðum atrið-
um úr skýrslu utanríkisráð-
herra til Alþingis.
Lögreglustjóraembættið
Samstarfsreglur um sam-
vinnu íslenskra löggæslu-
manna og bandarískra örygg-
isvarða hafa verið endurskoð-
aðar. Hefur sú breyting verið
ákveðin að varðgæsla í hliðum
varnarsvæðisins á Keflavíkur-
flugvelli verði sameiginlega í
höndum íslenskrar lögreglu og
bandarískra öryggisvarða.
Þetta var ákveðið í ljósi þess að
eftir að Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar var opnuð, þurfa ekki
aðrir að komast inn fyrir girð-
ingu á varnarsvæðinu en þeir
sem erindi eiga við varnarliðið
eða starfa á varnarsvæðinu.
Verður eftirlit með umferð inn
og út fyrir girðingu á varnar-
svæðinu hert af almennum
öryggis- og tollgæsluástæðum.
Þá hefur verið ákveðið að em-
bætti lögreglustjórans í Kefla-
vík annist löggæslu á þjóðveg-
inun alla leið að flugstöðinni.
Einnig má geta þess að ég hef
rætt við bæjarstjórana í Kefla-
vík og Njarðvík um möguleik-
ann á að þau bæjarfélög leysi
til sín landið neðan nýja flug-
stöðvarvegarins en það er nú
innan varnarsvæðis. Eru að
heQast viðræður um það mál.
I árslok voru heimiluð
stöðugildi hjá embætti lög-
reglustjóra á Keflavíkurflug-
velli 92, en starfsmenn 93, þar
af tveir í hálfu starfi.
Heimiluðum stöðugildum
fjölgaði þvíum 15 fráfyrra ári,
þ.e. 9 í lögreglu og 6 í toll-
gæslu.
Við stofnun sérsveitar til ör-
yggisgæslu í flugstöð hinn 1.
júní 1986hurfu Mmennfráal;
mennum lögreglustörfum. í
ársbyrjun 1987 varheimilaðað
bæta við 9 lögreglumönnum,
sem í reynd þýðir, að fækkað
hefur um 5 manns við almenn
lögreglustörf.
Við flutning í nýju flugstöð-
ina varð að fjölga tollvörðum,
m.a. vegna meira húsrýmis og
stærra starfssvæðis. Þá var
einnig ákveðið að efla aðgerð-
ir gegn óleyfilegum innflutn-
ingi ílkniefna. Voru4tollverð-
ir sendir í sérstaka þjálfun í því
skyni, fyrst hjá fíkniefnadeild
lögreglunnar í Reykjavík og
síðan til bresku tollgæslunnar
á Lundúnaflugvöllum. Þjálfun
fjórmenninganna og náinni
samvinnu við fíkniefnadeildir
lögreglunnar i Reykjavík og á
Suðurnesjum er ætlað að
stuðla að markvissari aðgerð-
um gegn innflutningi fíkni-
efna.
Obreytt er frá fyrra ári, að
kostnaður við 14stöðugildi, 12
í lögreglu og 2 í tollgæslu, er
endurgreiddur af varnarliðinu
(12), verktökum (1) og frí-
höfninni (1).
Starfsmenn skiptast þannig
milli deilda embættisins:
Tollgæsla: 35, sem skiptast á
tvær deildir. Eru 8 tollverðir
við eftirlit með flutningum
varnarliðsins og verktaka
þess, tollfrjálsum l'orða-
geymslum flugfélaga og frakt-
geymslum og 27 tollverðir við
eftirlit meðferðuminnogútúr
landinu um Keflavíkurflug-
völl, þar með talið vegabréfa-
skoðun, útlendingaeftirlit,
öryggisleit við brottför, auk
venjubundinnar tollleitar hjá
ferðamönnum og flugáhöfn-
um við komu til landsins.
Hvor deild lýtur stjórn deild-
arstjóra.
Lögregla: 51, sem skiptast
þannig að 2 eru við yfirstjórn,
2 í rannsóknarlögreglu, 14 við
löggæslu í flugstöð og 33 við
almenna löggæslu.
Við flutning tollgæslu og
lögreglu í hina nýju flugstöð
hafa leigugjöld embættisins
hækkað verulega, svo og ýmis
sameiginlegur kostnaður
leigutaka af rekstri byggingar-
innar. Reikningar ársins liggja
ekki endanlega fyrir, en ætla
má að rekstrarútgjöld nemi
sem næst 160 milljónum
króna.
Innheimtar tekjur til ríkis-
sjóðs voru sem næst 320 mill-
jónir króna, eða rösklega 99 af
hundraði tekna. Veruleg lækk-
un hefur orðið á tekjum frá
fyrra ári og stafar það fyrst og
fremst af lægri álagningu opin-
berra gjalda á íslenska aðal-
verktaka.
Flugmálastjórn
Á árinu 1987 fóru samtals
,748.774 farþegar um Keflavík-
urllugvöll en 603.887 árið áð-
ur. Fjölgun milli ára er 24,0 af
hundraði. Farþegar hafa
aldrei verið fleiri í sögu Kefla-
víkurflugvallar. Skiptingin var
þannig, að úr landi fóru
263.441 eða 23,6 af hundraði
fleiri en á árinu 1986, en þá
fóru 213.056 farþegarúrlandi.
Viðkomufarþegar (transit)
voru alls 226.476 árið 1987, en
voru 179.292 árið 1986 og er
það fjölgun um 26,3 af hundr-
aðí. Arið 1987 komu til lands-
ins 258.857 farþegar, 22,4 af
hundraði fleiri en árið 1986 en
þá komu 211.539 farþegar til
landsins.
Heildartekjur flugmála-
stjórnar á Keflavíkurflugvelli
voru um 102 milljónir króna á
árinu. Þar af námu lendingar-
gjöld um 94 milljónum króna.
Rekstrargjöld voru um 78
milljónir króna, þar af launa-
kostnaður um 60 milljónir
króna. Skil til ríkissjóðs voru
20 milljónir króna.
Á árinu 1987 unnu 400 fast-
ráðnir starfsmenn við almenna
fiugstarfsemi hjá innlendum
stofnunum og fyrirtækjum.
Um háannatímann var starfs-
mannafjöldi á sjöunda hundr-
að.
Ráðningarskrifstofa
Ráðningarskrifstofa varn-
armálaskrifstofu hefur með
höndum ráðningu starfsfólks
til varnarliðsins. Ennfremurer
ráðningarskrifstofa starfsfólki
varnarliðsins til aðstoðar í
ágreiningsmálum sem varða
kaup og kjör.
Á árinu 1987 voru ráðnir
245 menn til starfa hjá varnar-
liðinu, en 240 létu af störfum.
Starfsmenn varnarliðsins
voru 1102 hinn l.janúarl988
og hafði fjölgað um 5 á árinu
1987.
Starfsmenn ráðningarskrif-
stofu eru 2.
Ráðningarskrifstofan flutti
þann 1. september 1987 í nýtt
húsnæði að Brekkustíg 39 í
Njarðvík.
birgðaaukning um 40 milljón-
ir króna, útistandandi kredit-
kort um 20 milljónir króna og
fjárfestingar um 15 milljónir
króna.
Kostnaður við
rekstur varnarliðsins
Heildarupphæð greiðslna
varnarliðsins til Islendinga
vegna reksturs varnarliðsins á
árinu 1987 nam 153,3 milljón-
um dollara, eða 5672 milljón-
um króna. Þar af nam launa-
kostnaður til íslenskra starfs-
manna varnarliðsins 38,8
milljónum dollara eða 1436
milljónum króna.
Varnarliðið greiddi á árinu
1987 um 114,5 milljónir doll-
ara, 4237 milljónir króna, til
íslenskra fyrirtækja og ein-
staklinga vegna launa, verk-
töku, vöruinnkaupa og þjón-
ustu. Áætlað er að eigin inn-
kaup varnarliðsmanna ogfjöl-
skyldna þeirra á íslenskum
landbúnaðarafurðum hafi
numið 1,1 milljón dollara eða
40,7 milljónum króna.
Steingrímur Herniannsson
Framkvæmdir á
vegum varnarliðsins
Á árlegum fundi með bygg-
ingardeild sjóhersins, sem
haldinn var í Norfolk í októ-
ber s.l., voru eftirtaldar fram-
kvæmdir ákveðnar á árinu
1988.
Ný ratsjárstöð á Miðnes-
heiði.
Ný ratsjárstöð á Stokksnesi.
Viðbætur við verkstæði og
birgðageymslu.
Æfingasvæði fyrir slökkvi-
lið Keflavíkurflugvallar.
Skrifstofuhúsnæði fyrir yfir-
stjórn varnarliðsins.
Framhaldsframkvæmdir
við gerð flughlaðs vegna fyr-
irhugaðs flugfraktsvæðis við
nýju llugstöðina og aksturs-
brautir því tengdar.
Viðbót við prófunarstöð
fyrir þotuhreyfla orustu-
flugvéla varnarliðsins.
Allar þessar framkvæmdir
var búið að samþykkja áður.
Ratsjárstöðvarnar nýju á
Miðnesheiði og á Stokksnesi
munu leysa af hólmi stöðvarn-
ar, sem þar eru. Verða nýju
stöðvarnar eins að allri gerð og
stöðvarnar, sem verið er að
reisa á Bolafjalli og Gunnólfs-
víkurfjalli.
Byggingarkostnaður stöðv-
anna verður greiddur af Atl-
antshafsbandalaginu, sem og
kostnaður við verkstæði og
birgðageymslu. Aðrarframan-
greindar framkvæmdir greiða
Fjöldi varnarliðsmanna er sem hér segir:
31.12.1986 31.12.1987
Varnarliðsmenn ...................... 3104 3171
Þarafkonur í varnarliðinu ............ 456 514
Skyldulið varnarliðsmanna ........... 2054 2030
Parafbörn............................. 1257 1113
Búseta varnarliðs-
manna utan varnarsvæða
Hinn 1. desember 1987 voru
búsettir utan varnarsvæða 68
íslenskir starfsmenn varnarliðsins skiptast þannig:
1. 1.1987 1.1.1988
Stjórnun 104 103
Verkstjórn 82 81
Slökkvilið og snjóruðningur . 122 139
Iðnaðarstörf 194 205
Skrifstofu- og verslunarstörf . 320 263
Almennt verkafólk 224 260
Verkfræðingar og tæknimenn 43 43
Símavarsla 8 8
Fríhöfnin
Heildarvelta fríhafnarinnar
á Keflavíkurflugvelli var um
800 milljónir króna árið 1987
og hafði aukist milli ára um 57
af hundraði.
Hreinn hagnaður frihafnar
var um 240 milljónir króna og
skil í ríkissjóð 165 milljónir
króna eða 20 milljónum króna
meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir.
Hagnaður ársins 1987 skipt-
ist þannig, að skil í ríkissjóð
eru 165 milljónir króna, vöru-
menn sem starfa fyrir varnar-
liðið, þar af 6 hermenn. Af
þessum 68 eiga 25 íslenska
maka. Af fyrrgreindum 62
borgaralegum starfsmönnum
eru 16 við kennslu í gagn-
fræðaskóla og barnaskóla
varnarliðsins. Aðrir erlendir
starfsmenn vinna sérhæfð
tæknistörf fyrir varnarliðið
eða eru fulltrúar bandarískra
fyrirtækja sem annast viðhald
og þjónustu á tækjabúnaði
varnarliðsins.
Bandaríkin. Auk nýfram-
kvæmdanna var samið um
ýmsar viðhaldsframkvæmdir á
eldri mannvirkjum. Áætlaður
heildarkostnaður við fram-
kvæmdir, sem Islenskir aðal-
verktakar annast, er um 8,2
milljónir bandaríkjadala, en
auk þess vinna Islenskir aðal-
vcrktakar áfram að verkefnum
sem þegar hefur verið samið
um. Er áætlað að heildar-
kostnaður við framkvæmdir á
árinu 1988 verði um 55,2 millj-
ónir bandaríkjadala, saman-
borið við 59 milljónir banda-
ríkjadala árið 1987. Endanlegt
verð ræðst af samningum verk-
takans og sjóhersins. Hefur
því dregið nokkuð úr umfangi
iramkvæmda. Hef ég meðal
annars frestað framkvæmdum
við einn áfanga olíubirgða-
stöðvar í Helguvík um sinn.
Auk þessa var á fundinum í
Norfolk gengið frá áætlun unr
viðhaldsverkefni sem Kefla-
víkurverktakar sinna, fyrir
samtals uni 9,_2 milljónir
bandarikjadala. Á árinu 1987
var til samanburðar samið um
viðhaldsverkefni fyrir rösk-
lega 9,9 milljónir bandaríkja-
dala.