Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.03.1988, Qupperneq 21

Víkurfréttir - 24.03.1988, Qupperneq 21
\>iKun juíUt Fimmtudagur 24. mars 1988 Guðmundur Vigfússon Skammdegisórar um stöðu fiskvinnslufólks Það er sennilega að bera í bakkafullan læk að nefna fisk- vinnslufólk og laun þess. Fyrir áramót byrjaði þessi venjulega leiksýning, þegar samningar eru lausir. Forystumenn VMSI komu fram í fjölmiðlum ábúðarmiklirog nánast eins og véfrétt. Nú skyldi ekkert eftir gefið, nú skyldi sko fiskvinnslufólkið ekki gleymast, nú fengju forstjórar fiskvinnslunnar fyrir ferðina, nú átti skyndilega að endurheimta starfsaldurshækkanir sem voru gefnar eftir I986, í þessum for- smánarlegu desembersamningum. Guðmundur .laki og Karvel fóru í leiðangur um landið til að stappa stáli í verkafólk og töldu sig hafa fundið mikla og þunga reiði í röðum þessa fólks sem ber uppi gjaldeyrisöflun þjóðarinnar að mestu. Eg tel að fyrst og fremst forystumenn VMSI séu sökudólg- arnir að þeim vanda sem fisk- vinnslan á við að búa - það vita all- ir sem neyðast til að starfa við fisk- vinnsluna að ef þeim byðist eitt- hvað annað starf yrði það gripið fegins hendi, slík eru Iaun þess og aðbúnaður, bæði á vinnustöðum og félagslega. Þegar samningar voru svo loks undirritaðir kom í ljós að starfs- maður í fiskvinnslu eftir 12 ára starf á sama stað skal hafa 34.020 í mánaðarlaun og I7áraunglinguri byggingarvinnu 33.318. Það var það sem kom út úr andlitsfréttum Guðmundar Jaka og Co. í sjón- varpi. Það er hinsvegar langt í frá að ég telji laun 17 ára drengsins of há, þetta sýnir bara betur en allt ann- að lygina í forystumönnum VMSÍ. Að sjálfsögðu voru þessir samn- ingar felldir allstaðar á landinu nema í Keflavíkurfélaginu og Sandgerði. Það var sjálfgefið. Það næsta marktæka var svo það að Grindvíkingar vildu lagfæra laun þeirra sem þar vinna en úlfahjörð- in í Garðastræti kom þeim á kné. Þórarinn V. Þórarinsson segir í Mogganum 11/3: „Næsta skrefið ætti því að vera að endurskoða bónuskerfið, það er virkilega dap- urlegt þcgar menn kljúfa sig út úr, en það breytir engu um afstöðu VSI, þó nokkrir saltfiskverkend- ur semji við tvö hundruð ntanns." Eg stórefast um að Þórarinn gjöri sér grein fyrir hvað Grindavík er stórt númer í gjaldeyrisöflun þjóð- arinnar. Það kemur líka fram í sama blaði að Olafur B. Olafsson, varaformaður framkvæmda- stjórnar VSI, teluróleystan vanda fólksins sem vinnur í saltfiskfram- leiðslunni og að skipuð hefur verið ein nefndin enn til að athuga þau mál. Það sem mér finnst merkilegt við þetta allt er náttúrulega það að einhver þvæla um bónus sem hægt er að hagræða á ýmsan hátt skuji vera rós í hnappagati hjá VSÍ, fremur en beint greidd laun. En það var annað sem olli þess- um hugleiðingum. I Mogganum 12/3 er á baksíðu sagt frá því að dótturfyrirtæki SH hafi hafið til- raun með frystingu og söltun á nýjum fiski frá íslandi á Humber- svæðinu í Englandi. Þærvonirsem við það eru bundnar helgast af ódýru vinnuafli, ódýrum véla- kosti og lágum vaxtakostnaði og aðbúnaður verkafólks mun lélegri en hér eru gerðar kröfur um. Þar sem minn ágæti vinnuveit- andi, Olafur B. Ólafsson, á að ég held sæti í stjórn SH vildi ég eiga með honum smáhugleiðingu um aðbúnað í fiskvinnslu hér heima, sér í lagi saltfiski og taka áður fram að ég hef aldrei til Englands komið. Getur verið að nokkur maður telji til ágætis vinnustað, þar sem allt eða flest frýs í frostum og þar sem ekki getur nema partur af starfsfólkinu sest niður í kaffi- stofu í kaffitímum til drykkju. Þar sem nánast engin aðstaða er fyrir hlífðarföt og utanyfirföt sem not- ast til að komast á vinnustað. Þar sem fólk, við að láta ís í kassa, stendur undir rennulausu þaki í öllum veðrum og liggur næst þrælabúðum að koma þeim sama ís út í kassana. Eg bara hugsa til fólksins í Eng- landi sem býr við svona miklu verra en við hér við að skapa verð- mæti. 20 ára afmælisfagnaður Félag slökkviliðsntanna á Keflavíkurflugvclii hélt nýlega það hátíðlegt að 20 áreru liðin frá stofnun fé- lagsins. Af því tilefni komu saman um 80 manns í KK-salnum í Keflavík. Þar fóru fram ræðuhöld og ýmislegt var til skemmtunar. Voru þessar myndir teknar við það tækifæri. Ljósm.: hbb. Fyrst og síðast Myllu samlokubrauð Hvað er fljótlegt, einfalt, hollt og gott? Samloka úr Myllu samlokubrauði. Myllu samlokubrauð á alls staðar við; heima, í vinnunni og í ferðalaginu. Myllu samlokubrauðin fást bæði úr hveiti og heilhveiti og eru að sjálfsögðu sykurlaus. Fáðu þér Myllu samlokubrauð í'yrst, - og síðast. BRAUÐ HF. - SÍMI 83277

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.