Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.11.1988, Síða 1

Víkurfréttir - 24.11.1988, Síða 1
u Landsbókasal Safnahúsinu loi Reyk.jav Hin hliðin á Hafnargötunni . Það er ekki bara innbrot og læti sem tengjast ungl- ingum á Hafnargötunni, þar má líka finna hressa krakka um helgar. Sjá nánar miðopnu. Ljosm: hbb Skuld Knattspyrnuráðs Keflavíkur 10 milljónir: Stærsta ,jSlys“ í sögu IBK ELDEY HF: Mikill áhugi fyrir hlutafé Hin mikla umræða um togaramálið margumrædda hefur hleypt nýju blóði í hlutafjársöfnun Eldeyjar h.f. að sögn Braga Ragnarsson- ar, framkvæmdastjóra fyrir- tækisins. Einnig hefur útgerð þeirra tveggja skipa sem Eldey h.f. gerir út gengið vel og hefur annað þeirra átt hverja topp- söluna á fætur annarri hjá Fiskmarkaði Suðurnesja. Þetta fyrirtæki þarf ekki að kvarta yfir kvótaskorti og hefur m.a. til sölu umfram- kvóta. Þessi mál eru krufin nánar í viðtali við Braga á síðu tvö í blaðinu í dag. TVEIR BÍLflR ÚKU A HEST Tveir bílar óku á hest á Garðveginum í Leiru á þriðjudagsmorgun. Drapst hesturinn, farþegi í öðrum bílnum slasaðist lítillega og siðari bíllinn varð óökufær á eftir. Fyrst var það vörubifreið er ók á hestinn á miðjum veg- inum. Var hesturinn með lífsmarki eftir þann árekstur en lá á veginum er fólksbif- reið bar þar að og ók á hest- inn liggjandi. Kvartaði far- þegi í fólksbifreiðinni yfir eymslum í baki og var hann fluttur til læknis. Við síðari áreksturinn sprakk hesturinn og lést samstundis. Varð því að fá slökkviliðsbíl til að hreinsa götuna. SANDGERÐI: Meira borist á land Skuldir knattspyrnuráðs ÍBK urðu aðal umræðuefnið á árs- þingi ÍBK sl. laugardag. Nema þær alls um 10 milljónum króna. Ný* formaður var kjör- inn á þinginu. Ragnar Örn Pét- ursson, veitingamaður í Kefla- vík, tók við embættinu af nafna sínum Ragnari Marinóssyni, sem hefur verið formaður bandalagsins sl. fimm ár. Miklar umræður urðu um skuldir knattspyrnuráðs og skýrslu sem fráfarandi for- maður þess, Kristján Ingi Helgason, flutti. Var Kristján harðlega gagnrýndur af mörg- um fundarmönnum fyrir að „skella skuldinni á aðra“ svo og fyrir að vilja ekki skýra ýmsa liði í reikningum og skýrslu, en hann taldi ársþing ekki vettvang til þess. Var samþykkt að skipa skilanefnd sem fær það óskemmtilega verkefni að leysa vandamál og skuldir knattspyrnuráðs. Sjá nánari umfjöllun á bls. 17. „Þetta er ósköp svipaður afli í hverjum róðri“ sagði starfsmaður á hafnarvoginni í Sandgerði í samtali við blaðið. „Það er aldrei veður fyrir þessa karla að vera á sjó, annars gekk vel hjá þeim frá síðasta föstudegi til sunnudags og þannig meira borist á land en ella, þó svo að það sé svipað úr hverjum | róðri. Þeir sem áttu beitt ■ komust síðan á sjó á mánu- . daginn“ sagði starfsmaður J vigtarinnar. Einn línubátur mokfísk- I aði sl. laugardag en þá fékk | Bjarni KE tæp 4,6 tonn á 21 | bjóð meðan stærri línubátar ■ fengu um 4 tonn á 90 bjóð. j Anna María kjörin íþrótta- maður ÍBK Anna María Sveinsdóttir var kjörin íþróttamaður Kefla- víkur á ársþingi IBK sl. laugar- dag. Afhenti fráfarandi for- maður ÍBK, Ragnar Marinós- son, henni farand- og eignar- bikar sem Knattspyrnufélag Keflavíkur gaf bandalaginu fyrir þremur árum til þessarar útnefningar. Aður hafa þeir Jón Kr. Gíslason og Már Her- mannsson hlotið þessa útnefn- ingu. Anna María er mikil íþróttakona. Hún er í meist- araflokksliði ÍBK í körfu- knattleik sem hefur verið ósigrandi í tvö ár, hún leikur handknattleik með 2. deildar liði ÍBK og knattspyrnu á sumrinmeðlBKsemleikurí 1. deild. Anna María Sveinsdóttir, íþróttamaður Keflavíkur 1988, tekur við viðurkenningum sínum úr hendi Ragnars Marinóssonar. Ljósm.: pket.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.