Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.11.1988, Side 12

Víkurfréttir - 24.11.1988, Side 12
WKllft 12 Fimmtudagur 24. nóvember 1988 | jUtiU VERSLUM HEIMA: „Minni byggðariögin vinna á Keflavík" - segir Ingibjörg Sólmundsdóttir, sem rekur Bensínstöðina í Garði Verslun Bensínstöðvarinnar í Garði varð 10 ára sl. fimtu- dag. Afþví tilefni var opnaður jólamarkaður að Heiðartúni 2. Það er Ingibjörg Sólmudns- dóttir sem rekið hefur verslun- ina þessi tíu ár, frá því hún tók við umboði Olíufélagsins hf. í Garði, fyrst að Sunnubraut 1 í' Garði og síðan við Heiðartún. Verslun bensínstöðvarinnar hefur smám saman verið að vaxa og að bætast við nýir vöruflokkar. Nú er hægt að fá allt sælgæti, gosdrykki, gjafa- vöru og helstu nauðsynjavöru í verslun bensínstöðvarinnar. „Heildsalar skilja ekkert í mér,“ sagði Ingibjörg, „þegar hver verslunin á fætur annarri leggur upp laupana er ég að opna eina nýja hér. Fólk hefur tekið þessu mjög vel og það var troðfullt hús og stanslaus traffik allan opnunardaginn.“ -Áttu ekki von á því að það verði samdráttur í verslun í jólamánuðinum? „Það verður almennt sam- dráttur í verslun í jólamánuð- inum. Við hérna í litlu byggð- arlögunum verðum þó ekki eins mikið vör við samdráttinn eins og til dæmis verslanir í Keflavík." -Á verslun utan Keflavíkur ekki undir högg að sækja? „Við hérna í minni byggðar- lögunum eigum eftir að vinna mikið á Keflavík í verslun á næstunni.“ -Hvað um það að fólk fari til Reykjavíkur? „Fólk fer oft til Reykjavík- ur til þess að versla, þá helst fatnað, en þarf yfirleitt að snúa við vegna þess að hlutirnir fást ekki í höfuðborginni. Eg veit til dæmis um konu utan af landi sem var í Reykja- vík með þrjá syni sína fyrir jól og ætlaði sér að kaupa föt á þá. Hún hafði arkað fram og aftur um borgina og ekkert fundið. Hún kom í heimsókn til mín um kvöldið og sagði mér sög- una. Ég spurði hana hvort við ættum ekki að koma við í Öld- unni í Sandgerði og athuga hvort þar fengist eitthvað á börnin. Hún spurði mig hvort ég væri rugluð en sló samt til. Þegar í Ölduna var komið fékk hún fatnað á öll börnin auk ýmislegs annars. Suðurnesin eru að fullu samkeppnisfær við Reykjavíkurverslunina." -Að lokum, verður eitthvað framhald á þessari verslun, sem nú er jólamarkaður? „Við verðum bara að bíða og sjá. Það er aldrei að vita ef viðtökurnar verða góðar,“ sagði Ingibjörg Sólmunds- dóttir að lokum. Það var niargt að skoða hjá þessum Garðpollum í nýju versluninni, .lólasól. Ljósmyndir: hbb. lngibjörg Sólmundsdóttir hafði í miklu að snúast, þegar blaðamað- ur leit þar inn á opnunardaginn í síðustu viku. ISLENSK REVIA ERUM VIÐ SVONA? Höfundur og leikstjóri: Hulda Ólafsdóttir Sýningar á efri hæð Glóðarinnar klukkan 21. 4. sýning Föstudaginn 25. nóvember 5. sýning Laugardaginn 26. nóvember 6. sýning Sunnudaginn 27. nóvember SÍÐASTA SÝNING Vi afsláttur fyrir börn og eldri borgara, 67 ára og eldri. Hópafsláttur fyrir 10 manna hópa og stærri Miðapantanir í síma 13389 eftirkl. 17.00 fimmtudag- inn 24. nóvember og sýningardagana frá kl. 14.00. Pantið tímanlega, hvort sem þið hyggist fara bara á sýninguna eða líka í matinn. Suðumesjamenn! Söngur, glens og gaman lyftir okkur öllum, ungum sem öldnum, upp í skammdeginu. Matur og leikhús! GLÓÐIN BÝÐUR UPP Á MIÐA Á LEIKSÝN/NGUNA OG MAT Á NEÐRI HÆÐINNIÁ AÐEINS KR. 2.000.- Matseðill: , • Sveppasúpa • Innbakað lambalæri boriðfram meðostgljáðum kartöfl- um, fersku grænmeti og bernaissósu. • Sherrý rjómarönd. • Kaffi. Athugið að mæta tímanlega í matinn því leiksýningin hefst kl. 21.00 stundvíslega. LEIKFELAG KEFLfflM

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.