Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.05.1989, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 25.05.1989, Qupperneq 1
mm Ragnar skipaður í stjórn ÍAV Samkvæmt áreiðanlegum heimildum eru taldar líkurá að Jón Baldvin Hannibals- son, utanríkisráðherra, til- nefni næstu daga fulltrúa ríkisins í stjórn Islenskra að- alverktaka s.f. á Keflavíkur- flugvelli. Er annar fulltrú- anna talinn verða Ragnar Halldórsson, Njarðvík. Er Ragnar skipaður sem annar fulltrúi ríkisins, þó ekki í stöðu stjórnarfor- manns, en í það sæti sest Stefán Friðfinnsson, aðstoð- armaður ráðherrans. Mjög mikil eftirvænting hefur ver- ið í kringum ákvörðun ráð- herra i máli þessu og þá sérí lagi hvort Suðurnesjamaður kæmist að. Er vitað urn marga sem vildu komast að, en nánar er fjallað urn það í Molunt í dag. Innbrot í Myllubakka- skóla Aðfaranótt fimmtudags- ins var brotist inn í Myilu- bakkaskóla í Keflavík. Eftir að innbrotsþjófarnir höfðu komist inn um glugga í milli- gangi réðust þeir til atlögu við peningaskáp. Höfðu þeir í millitíðinni farið inn á smíðastofu og náð sér í verkfæri. Tókst þeim að opna peningaskápinn og hafa á brott með sér um 60 þúsund krónur í peningum. Var hér um að ræða matar- peninga kennara og ýmsa sjóði nemenda. Reykjanes- brautin stór- hættuleg í bleytu Bílvelta varð um síðustu helgi á Reykjanesbraut við Grindavíkurveg, án þess þó að slys yrðu áfólki. Má rekja óhapp þetta til þess ástands sem brautin býður upp á í vatnsveðri. Sé blautt er brautin stór- hættuleg vegna slits, en vatn situr þá mjög í rásunt og get- ur verið mjög varasamt að lenda með bílhjól í þeim. Sjómaður hætt kominn við Sandgerði: Aldan skellti bátnum á örfáum sekúndum „Þetta var mínútuspurs- mál og því á ég ekki nægjan- lega sterk orð yfir þakklæti mitt til björgunarmanna,“ sagði Sigfús Axfjörð Sigfús- son, sjómaður úr Keflavík, í samtali við hlaðið. Sigfús bjargaðist mjög þrekaður, er trilla hans, Brynhildur KE 69, fórst í innsiglingunni að Sandgerði klukkan rúmlega 8 að morgni mánudagsins. Var Sigfús á leið til handfæra- veiða á trillu sinni, sent var um þrjú tonn að stærð. Er hann var kominn út af bauju í innsiglingunni iagðist bát- urinn skyndilega undan kviku frá broti og fylltist af sjó, er skellti bátnum þvers- unt. 15-20 sekúndum frá því að hann sá hvað verða vildi var hann kominn í sjóinn og báturinn sokkinn. Fyrir tilviljun komu skip- verjar á Stekkjarhamri GK 37 úr Njarðvik auga á Sigfús, _____-___ I M ___________________________________________________ Sjúkrabíll flutti sjómanninn kaldan og þrekaðan á sjúkrahús. Sameining Hafna og Njarðvíkur: Formlegar sam- einingaviðræður samþykktar Bæjarstjórn Njarðvíkurog hreppsnefnd Hafnahrepps hafa báðar samþykkt að hefja formlegar viðræður um sameiningu sveitarfélag- anna. Hefur verið skipuð 10 manna nefnd til viðræðn- anna, þ.e. með fimm fulltrú- um frá hvoru sveitarfélagi. Af hálfu Hafnahrepps verða í nefndinni Þórarinn St. Sigurðsson, Björgvin Lúthersson, Flallgrímur Jó- hannesson, Asbjörn Egg- ertsson og Jón Borgarsson. Af hálfu Njarðvíkurbæjar er bæjarráð, eins og það er á hverjum tíma, skipað í nefndina, bæjarstjóri og bæjarritari. I dag eru það því þeir Steindór Sigurðsson, Ragnar Halldórsson, Guð- mundur Sigurðsson, Oddur Einarsson og Stefán Jóns- son. Samkvæmt lögum mun nef'nd þessi starfa í samvinnu við félagsmálaráðuneytið. Eftir að hún skilar áliti verð- ur að ræða málið tvisvar í hvorri sveitarstjórn án at- kvæðagreiðslu. Síðan verður að kjósa um það á báðum stöðum og ráða niðurstöður þeirrar kosningar hvort sveitarfélögin sameinast. þar sem hann hélt í taug frá línubelg og fiskkar og gátu bjargað honum. Þá var hann orðinn mjög þrekaður og kaldur I miðopnu blaðsins í dag greinunt við nánar frá slysi þessu og ræðum við menn, er komu þarna við sögu. l.jósm.: cpj. Yfirstjórn dómsmála til Hafnar- fjarðar Alþingi hefur samþykkt lög um aðskilnað dómsvalds og framkvæmdavalds í hér- aði. Taka lög þessi gildi 1992. Eftir það fellur niður embætti bæjarfógeta, en em- bætti sýslumanns heldur fullu gildi. Jafnframt mun yfirstjórn dómsmála flytjast til Hafn- arfjarðar og verða stjórnað þaðan, en þó er gert ráð fyrir að dómþing fari frant hér syðra, en stjórnað frá Hafn- arfirði og ekki sem fast útibú þaðan. Einnig er búist við reglu- gerð er lýsi nánar í hverju embætti sýslumanns verður fólgið en öruggt er talið að hann verði áfram yfirmaður lögreglu. Vínveit- ingaleyfi í Stapa? Fyrir bæjarráði Njarðvík- ur liggur nú untsókn frá Gísla Haukssyni um vínveit- ingaleyfi fyrir félagsheimilið Stapa í Njarðvík. Kemur fram í umsókninni, sem stíl- uð er á dómsmálaráðuneyt- ið en er hjá bæjarráði til unt- sagnar, að miðað er við dans- leikjahald ogannaðskemmt- anahald í Stapa. Var þess vænst að málið yrði lagt fyrir fund bæjar- ráðsins nú í vikunni.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.