Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.05.1989, Side 5

Víkurfréttir - 25.05.1989, Side 5
\>iKun futUi Fimmtudagur 5. maí 1989 5 Lónið við Fiskeldi Grindavíkur er alll að Iveggja metra djúpt og í því eru um 400 laxar. Aukning ölvunar- aksturs ískyggileg þróun hefur verið varðandi meinta ölvun við akstur bifreiða. T.d. voru sjö ökuntenn teknir af lög- reglunni í Keflavík um sið- ustu helgi fyrir grun um meinta ölvun við akstur. Það segir þó ekki alla sög- una því með þessum sjööku- mönnum höfðu fram að kvöldi sunnudagsins verið teknir 21 ökumaður fyrir að hafa Bakkus meðferðis, eða að jafnaði einn á dag, það sem af er maímánuði. Eftirlýstur þjófur gómaður í síðustu viku jiandtók lögreglan í Keflavík mann, sem eftirlýslur var af Rann- sóknarlögreglu ríkisins. m.a. vegna innbrots í ESSO-skál- ann á Hvolsvelli. Var maðurinn staðinn að því hér, að aka án réttinda og við nána'ri athugun kom í Ijós að hann var eftirlystur, auk þess sem á honum fund- ust fikniefni. Fiskeldi Grindavíkur: Býður Suð- urnesja- mönnum ódýra laxveiði „Jæja, á maður nú að standa eins og illa gerður hlutur með veiðistöng og dorga í eldiskeri, þar sem 30 tonn af laxi synda hring eftir hring?“ Þetta var sú spurning sem blaðamaður velti fyrir sér alla leið til Grindavíkur eftir að honum hafði verið boðið í lax- veiði af laxeldisfyrirtækinu Fiskeldi Grindavíkur hf. Blaðamaður hélt enn fast í þennan grun sinn, þegar rennt var í hlað við eldisstöðina, því þar sáust ekkert nema risastór eldisker. Þegar betur var að gáð kom hins vegar í Ijós stórt og mikið lón og þar spriklaði laxinn sæll og glaður, algjör- lega ómeðvitaður um það að innan tíðar ætti hann eftir að verða fórnarlamb gallharðs laxveiðiáhugamanns eða bara bráð áhugasams veiðimanns, sem tekur í stöng á fimm ára fresti. Þennan sólbjarta mánudag, þegar blaðamaður staldraði við í laxveiðinni var einungis ein stöng í gangi. Reyndar var þarna um að ræða starfsmann fiskeldisfyrirtækisins Eldis, en það fyrirtæki var sameinað Fiskeldi Grindavíkur um síð- ustu áramót. Þrátt fyrir skriklandi lax, þá var hann tregur að bíta á hjá veiðimanninum, Pálma Bragasyni. Um síðustu helgi var aftur á móti mokfiskirí í lóninu og allir þeir veiðimenn sem þá komu þarna við fóru sælir heim. Blaðamanni var tjáð að um 400 löxum hafi verið sleppt í lónið, en þeir eiga enga undan- komuleið til sjávar og því allt- af örugg bráð. Fiskurinn erað meðaltali 3 pund að stærð, en einnig eru fiskar upp í 6 pund. Hálfur dagur á stöng kostar 750 krónur og 600 krónur á hvern fisk sem veiðist. Fróðir rnenn segja að laxinn úr lóninu bragðist jafnvel bet- ur en lax úr Laxá í Aðaldal. Könnun á hitaveitu- munstri Hitaveita Suðurnesja er aðili að úttekt, sem verið er að gera um land allt á vegum Santbands íslenskra hita- veitna. Að sögn Ingólfs Að- alsteinssonar, forstjóra Hitaveitu Suðurnesja, er ver- ið að kanna með þessu notk- unarmunstur manna. Er tekið 30 húsa úrtak hér á svæðinu og fylgst nákvæm- lega með orkunotkun við- komandi aðila í ákveðinn tíma. Grindavík: Innbrot í bíl og íbúðarhús Brotist var inn í bifreið sem stóð við bifreiðaverk- stæði við höfnina í Grinda- vík sl. föstudag. Var aftur- rúða brotin í bílnum og stórri verkfæratösku með tréiðnaðarverkfærum stolið. A sunnudag var síðan brotist inn í íbúðarhúsnæði og stolið þaðan peningum. Fór þjófurinn inn um lausa- fag og rótaði til í skúffum í húsinu. Hafði hann 15.000 krónur upp úr krafsinu. Það er hrein unun að kasta fyrir lax í lóninu, og hér er það Pálmi Bragason sem mundar stöngina. Ljósm.: hbb. Eitt umslag - Engin bið » » » » » » » » » » » » » » » » » » » » i spmsjiBsm KEFLAVÍK - NJARDVÍK - GARÐIIR - GRINDAVIK Þarftu að leggja inn, greiða reikninga eða millifæra? Þá er Snarþjónusta Sparisjóðsins góð leið, ef þú vilt losna við biðröð. Komið og kynnið ykkur þessa nýju þjónustu Sparisjóðsins. » » » » » » » » » » » » »»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.