Víkurfréttir - 25.05.1989, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 25. maí 1989
Kvennalistinn og
kjarasamningarnir
Nokkurs misskilnings
gætti í frctt um ófrcmdar-
ástand það sem Verkamann-
abústaðakcrfið í Keflavík
býr nú við. Var sagt að menn
ættu von á breytingum ef
húsbréfafrumvarpið yrði
samþykkt á Alþingi.
Þetta er misskiiningur.
Hið rétta er að við samninga
ASI 1. maí gaf ríkisstjórnin
vilyrði fyrir byggingu 200
slíkra íbúða á landinu. Þá
hefur Kvennaiistinn óskað
eftir loforðum um eitt
hundrað til viðbótar gegn
stuðningi við húsbréfafrum-
varpið. Vonast stjórn Verka-
mannabústaða í Keflavík því
eftir að einhverjar af um-
ræddum 300 íbúðum falli í
hlut Keflvíkinga.
Eldri borgarar
Suðurnesjum
takið eftir
Söngur, skemmtiatriði og dans verður í
Stapa laugardaginn 27. maí nk. og hefst kl.
20:00. Þrír kórar og kvartett eldri borgara
syngja. Kórarnir sem koma fram:
1. Söngvinir. Kór félags eldri borgara í
Kópavogi. Stjórnandi: Kristín Péturs-
dóttir.
2. Kór félags aldraðra í Reykjavík. Stjórn-
andi: Sigurbjörg Hólmgrímsdóttir.
3. Söngfélag F.E.B. í Reykjavík og ná-
grenni. Einnig tvöfaldur kvartett og
blandaður kór. Stjórnandi: Kristín Pét-
ursdóttir.
Verð aðgöngumiða er krónur 300.
Skemmtinefndin
Afgreiðsla - Kjötborð
Óskum að ráða starfskraft í afgreiðslu í
kjötborði. Framtíðarstarf.
Upplýsingar gefa deildarstjóri eða verslun-
arstióri.
SAMKAUP
Leigjendur
kartöflu-
garða
Þeir leigjendur garðlanda í bæjargörðum,
sem ekki hafa greitt nú þegar leigugjaldsitt,
er bent á að vegna mikillar aðsóknar í garð-
lönd verða þeir garðar leigðir öðrum sem
ógreiddir verða 31. maí.
Tekið er á móti leigugjaldinu kr. 800 á
bæjarskrifstofunum.
Njarðvíkurbær
mMwu*
Eigendur Víkurhugbúnaðar, Eggert Guðmundsson og Jón Sigurðs-
son. Ljósm.: hbb
Víkurhugbúnaður opnar
verslun í Keflavík
Víkurhugbúnaður hefur
flutt starfsemi sína frá Hafn-
argötu 90 að Hafnargötu 61 í
Keflavík. Jafnframt hefur
fyrirtækið opnað verslun,
þar sem á boðstólum verða
tölvur og rekstrarvörur fyrir
skrifstofur og fyrirtæki.
Víkurhugbúnaður hefur
tekið að sér umboð fyrir
Tæknival og mun hafa á
boðstólum allar þær vörur
er fyrirtækið býður upp á,
m.a. ljósritunarvélar og búð-
arkassa, en einnig verða til
sölu húsgögn fyrir skrifstof-
ur.
Sandgerði:
Fékk glas
í andlitið
Maður sem staddur var í
veitingahúsinu Vitanum í
Sandgerði slasaðist nokkuð
er hann fékk glas í andlitið.
Mun hann hafa hlotið ein-
hverja skurði í andlitinu, auk
brotinnar tannar.
Flutti lögreglan hann til
læknis. Lá játning strax fyrir
hjá þeim er verknaðinn
framdi. Mun þetta hafagerst
á laugardagskvöldið.
Heilbrigðiseftirlitið:
Breytingar á
starfsmanna-
haldi
Starf meindýraeyðis og
hundaeftirlit Heilbrigðiseft-
irlits Suðurnesja hefur verið
sameinað í eitt starf. Jafn-
framt hefur Júlíus Baldvins-
son, sem gegndi áður starfi
meindýraeyðis, verið gerður
að umsjónarmanni umhverf-
iseftirlits og mengunarvarna
með aðsetur í aðalstöðvum
SSS.
Sjálfstæðisflokkurinn
60 ára:
Opið hús
í kvöld
I tilefni 60 ára afmælis
Sjálfstæðisflokksins verður
opið hús hjá flokknum í húsi
Iðnsveinafélagsins, Tjarnar-
götu 7, Keflavík, í kvöld kl.
20.30. Ellert Eiríksson mun
flytja sögubrot flokksins og
þá munu félagar úr Léttsveit
Tónlistarskóians leikanokk-
ur lög.
Suðurnesjarnennimir í JC:
Magnús hafði
betur
Eitthvað hafa upplýslngar
um árangur Suðurnesja-
manna varðandi kjör í trún-
aðarstörf JC-Islands skolast
til áður en blaðið fékk þær.
Því í síðasta blaði sögðum við
frá nýlegu kjöri Halldórs
Leví í stöðu varaiandsfor-
seta samtakanna, jafnframt
sem þess var getið að þetta
væri í fyrsta sinn síðan Arni
Ragnar var kjörinn landsfor-
seti fyrir um áratug.
Þetta er ekki rétt því
Magnús Olafsson í JC-
Grindavík hefur bætt um
betur. Á þessum árum var
hann kjörinn sitt hvort árið
sem varalandsforseti og
varalandsgjaldkeri. Leiðrétt-
ist þetta því hér með og jafn-
framt biðjum við Magnús
velvirðingar á mistökum
þessum, þó þau kæmu ekki
frá okkur.
T0SKUR
ímiklu liivali
föókabúh /^eflavíkur
OAGLEGA I LEIDINNI
ífi
Iðnaðarmannafélag
Suðurnesja:
AÐALFUNDUR
Aðalfundur IS verður haldinn í hinum nýja
sal Meistarafélags byggingamanna í Hólm-
garði, miðvikudaginn 31. maí kl. 20.30.
Fundarefni: Skýrslur stjórnar, kosning
stjórnar, úrsögn IS úr Landssambandi iðn-
aðarmanna. Önnurmál. Félagar, mætiðvel
og stundvíslega.
Stjórnin
N auðungaruppboð
Að kröfu Gústafs Þórs Tryggvasonar hdl.
f.h. ísvéla hf. verður ísvél af gerðinni Is-
mark s.f. 10.000, talin eign Benedikts Jóns-
sonar, seld á nauðungaruppboði að Iðn-
görðum 8, Garði, fimm'tudaginn 25. maí
1989 kl. 15.00.
Uppboðshaldarinn í Keflavík, Njarðvík,
Grindavík og Gullbringusýslu,
Sveinn Sigurkarlsson.