Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.05.1989, Qupperneq 14

Víkurfréttir - 25.05.1989, Qupperneq 14
viKun 14 Fimmtudagur 25. maí 1989 Áyúst hór Guðbergsson hefur opnað nýtt fyrirtæki á sviði tækniþjónustu í Keflavík. Hérvinnur hann að hönnun stýrishúss á bát frá norðurlandi. Ljósm.: hbb Nýtt fyrirtæki á sviði tækniþjónustu: Véla- og skipa- tækni- þjónusta opnarí Keflavík Fyrir síðustu helgi opnaði nýtt fyrirtæki á sviði tækni- þjónustu í Keflavík, Véla- og skipatækni. Það er Ágúst Þór Guðbergs- son, tæknifræðingur, sem stendur að þessu fyrirtæki, sem er nýjung á sviði véla- og skipatækniþjónustu á Suður- nesjum, eins og áður segir. Ágúst Þór sagði í samtali við blaðið að rekstur fyrirtækis síns væri aðallega þríþættur, þ.e. hönnun, ráðgjöf og eftir- lit. Meðal þess sem fyrirtækið tekur að sér er hönnun stýris- húsa, yfirbygginga, lenginga, „tískurassa" og fleira í skip. Einnig hönnun pípukerfa, t.d. hitaveitu-, frárennslis- og olíu- háþrýstikerfa, hönnun dælu- búnaðar, flutnings- og vinnslukerfa og annara vél- og málmvirkja, bæði til lands og sjós, einnig gerð kostnaðar- áætlana og útboðsgagna, svo eitthvað sé nefnt. Agúst tjáði blaðinu að liann hefði þegar sent rúmlega 500 bréf til fyrirtækja á landinu, þar sem hann kynnir fyrirtæk- ið og starfsemi þess. Fyrirtæk- ið hefur fengið góð viðbrögð og þegar eru komin verkefni víðsvegar að af landinu. Meðal verkefna hefur Véla- og skipa- tækni eftirlit með smíði nýs hafnsögubáts fyrir Lands- höfnina Keflavík-Njarðvík. Að lokum vildi Agúst benda á að húsbyggjendurgætueinn- ig leita til hans, t.d. með hita- lagnir í einbýlishús og aðrar lagnir sem þarf að hanna. Fyr- irtækið býður upp á marg- breytilega þjónustu og Ágúst er bjartsýnn á framtíðina. Þeir sem vilja nánari upplýsingar geta haft samband eða komið við hjá fyrirtækinu á annari hæð, Hafnargötu 37 í Kefla- vík, þar sem Vélstjórafélagið var áður til húsa. Rýmingarsala Verslunin Róm, Tjarnargötu 3, verður með rýmingarsölu fimmtudag, föstudag og laugardag. 10-40% afsláttur. Rýmum fyrir nýjum vörum. Opið frá 10-18. ORÐSENDING frá verkalýðsfélög- um á Suðurnesjum Eins og undanfarin ár er vinna verkafólks- óheimil frá föstudagskvöldi til mánudags- morguns, á tímabilinu 1. júní til 1. sept. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis Verkalýðs- og sjómannafélag Gerðahrepps Kafarinn býr sig undir að kafa niður og skera úr skrúfu Hiidar RE í Sandgerðishöfn á föstudag. Ljósm.: hbb Hildur með í skrúfunni Hildur RE, 9,9 tonna stál- bátur úr Reykjavík, gerður út frá Sandgerði, fékk veið- arfæri í skrúfuna sl. föstu- dag. Var báturinn að veiðum út af Sandgerði þegar óhapp- ið átti sér stað. Vað að draga Hildi RE til hafnar í Sandgerði til að skera úr skrúfunni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri. Nokkuð al- gengt virðist vera þessa dag- ana að skip fái veiðarfæri í skrúfuna. Voru tvö stór skip í Njarðvíkurslipp í síðustu viku, m.a. vegna þessa. juWi B.v. Ólafur Jónsson GK lengdur Ráðgert er að togarinn Ól- afur Jónsson GK 404 frá Sandgerði fari á næstu dög- um til Póllands tii breytinga og viðgerðar, að sögn Ólafs B. Ólafssonar, framkvæmd- astjóra Keflavíkur h.f., Keflavík, og Miðness h.f. í Sandgerði, sem eru eigendur togarans. Átti skipið að fara ytra í júlímánuði en vegna al- varlegrar spilbilunar stendur nú til að flýta för skipsins út. Varáður búiðaðsemjaum að skipið yrði ytra í þrjá múnuði frá júlí til viðhalds og breytinga. En skipiðernú orðið 12 ára og því eðlilegt að það þurli að fara í stóra klössun. Þá verður lestum togarans breytt úrkassavæð- ingu í karavæðingu til að geta tekið fiskkör. Til að það sé hægt þarf einnig að lengja skipið. Fyrir skemmstu fór spil- rafall allstór, og slíkt stykki fæst ekki á stundinni og því hefur nú verið ráðgert að skipið fari út hið fyrsta. Ólafur Jónsson er tæplega 500 tonna togari, byggður í Póllandi 1976 og var afhent- ur útgerð sinni á aðfanga- dag 1976. Hefur hann ávallt verið í eigu sömu aðila. MESSUR Keflavíkurkirkja Föstudagur 26. maí: Gídeonfélagið, sem er aðili að al- heimssamtökum kristinna versl- unarmanna og vinnur að þvi að dreifa Bibliunni, þingar í Kirkju- lundi frá föstudegi til sunnudags. Laugardagur 27. maí: Listvinafélag Hallgrímskirkju sýnir „Sjáið manninn!“, þrjá ein- þáttunga eftir dr. Jakob Jónsson frá Hrauni, í kirkjunni kl. 20:30. Allir eru velkomnir meðan hús- rúm leyfir. Miðasala verður við innganginn. Sunnudagur 28. maí: Guðsþjónusta kl. 11 árd. Harold C. Harris, gjaldkeri alþjóðastjórn- ar Gídeon, prédikar. Kór Kefia- víkurkirkju syngur. Organisti Örn Falkner. Sóknarprcstur Ytri Njarðvíkurkirkja Sameiginleg messa fyrir Ytri- og Innri Njarðvíkursóknir kl. 14. Sig- urbjörn Þorkelsson, framkvæmd- astjóri Gídeon á Islandi, prédikar. Félagar úr Gídeon-hreyfingunni lesa ritningartexta. Kór Innri Njarðvikurkirkju syngur. Organ- isti Steinar Guðntundsson. Eftir messu verður kaffisala Systrafél- ags Innri Njarðvíkurkirkju í Safn- aðarheimilinu í Innri Njarðvík. Sr. Þorvaldur Karl Hclgason

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.