Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.05.1989, Side 21

Víkurfréttir - 25.05.1989, Side 21
MiKiin Dregur ðlafur Mariane út? Miklar líkur eru nú taldar á því að Sandgerðistogarinn Ólafur Jónsson GK 404 dragi danska skipið Mari- ane Danielsson til Póllands. Gerist þetta vegna þess að mikill dráttur hefur orðið á því að Pólverjar sendi drátt- arbát til Njarðvíkur til verks- ins. Einnig er ráðgert að togar- inn fari á næstu dögum til Póllands til mikilla breyt- inga og viðhalds. En nánar er greint frá því máli annars staðar í blaðinu. Mun verða skipt um botn á Mariane í Póllandi og vélar skipsins teknar upp, en þeim hefur verið haldið á kafi í sjó frá því að skipinu var bjargað af strandstað við Grindavík á dögunum. Er skipið nú í eigu Lyng- holts s.f. í Vogum, en það fyrirtæki ráðgerir að selja skipið ytra og er vitað um a.m.k. þrjá aðila, sem hafa sýnt áhuga á að kaupa það. Þ.á.m. Finnbogi Kjeld, út- gerðarmaður, eins og áður hefur raunar komið fram. Sigurður Bjarnason í djúpið Þar kom að því að Sigurður Bjarnason GK-100 fór í undir- djúpin. Það var kl. 02:55 að- faranótt fimmtudagsins 18. maí sem skipið hvarf í djúpið, en það hafði tekið ófáar vik- urnar að reyna að koma skip- inu á förgunarstað og sprengja í loft upp. Alltaf var eitthvað að veðri þegar fara átti með Sigurð Bjarnason GK. Það voru félagar úr björg- unarsveitinni Ægi í Garði sem tóku að sér förgunina að ósk eiganda skipsins, Njáls hf. í Garði. Áður höfðu Sigurvon- armenn reynt að koma skip- inu „fyrir kattarneP', en án ár- angurs. Það var Jón Gunn- laugs GK sem dró Sigurð á förgunarstað, sem er 84 sjó- mílur frá Sandgerði. Við þetta tækifæri vilja fél- agar í Ægi koma á framfæri þakklæti til eftirtaldra aðila: Njáls hf., Garði, Miðness hf., Sandgerði, Rafns hf., Sand- gerði, Veiðibæjar, Sandgerði, Raftýrunnar, Garði, Walter Leslei, Njarðvík, að ógleymd- um Guðna Ingimundarsyni í Garði. Einnig vilja þeir þakka öllum öðrum sem sýndu mál- inu skilning og eða aðstoðuðu á einn eða annan hátt. Heildverslunin Bassi Stofnsett hefur verið í Keflavík heildverslun er ber nafnið Heildverslunin Bassi h.f. Stofnendur eru Hjálmey Einarsdóttir, Keflavík, ásamt aðilum í Garðabæ, Kópavogi og Reykjavík. Prókúruhafi er m.a. Halldór Leví Björnsson, Keflavík. Smáauglýsingar Ferðir til Kýpur Eigum nokkur sæti laus til Kýpur 1. og 8. júní. 2-3 vikur, gististaður Eden beach. Umboðsskrifstofa H.H., sími 15660. Lítil 6 mánaða læða ljósgrá og hvítröndótt með hvítar loppur, fór að heiman frá Austurgötu 19, Keflavík, síðasta fimmtudag. Þeir sem hafa séð hana hafi samband í síma 12538 eða komi á Aust- urgötu 19, Keflavík, neðri hæð. Til sölu mjög vandað stórt sófasett, stórt útskorið sófaborð og hornborð í stíl, sem nýtt. Uppl. í síma 11240. Heimilishjálp Tek að mér heimilishjálp. Uppl. í síma 14945. Atvinna óskast Tvítugur maðuróskareftirat- vinnu í Keflavík. Helst á sjó, en annað kemur til greina. Uppl. í síma 91-660683 eða 92-15635 eftir kl. 19 (Kári). Vél í Nissan Sunny 1500, árg. ’83 óskast keypt. Uppl. í síma 14725. íbúð óskast 3ja-4ra herb. íbúð óskast til leigu, helst í Njarðvík eða Keflavík. Uppl. í síma 16140. Dagmamma í Y-Njarðvík Get tekið börn í pössun allan daginn. Uppl. í síma 15195. Til leigu 3ja herb. íbúð til leigu í Njarð- vík. Uppl. í síma 11037 eftir kl. 19.00. Suðurnesjamenn Er einhver sem vill losasigvið bast-sófasett eða stóla fyrir lítið verð? Þá er pláss í Golf- skála-num, Leiru, nánartiltek- ið í kvennaklefa. Vinsamleg- ast hafíð samband við Golf- skálann, síma 12908 (Anna). Til sölu grá Simo barnakerra. Uppl. í síma 12413. Barnapössun Stór, dugleg 12 ára stelpa ósk- ar eftir að passa barn, yngra en 4raára. Uppl. ísíma 13585. Til sölu einn sá glæsilegasti, Toyota 4 Runner árg. ’88. Al- vöru jeppi með öllu. Skipti á ódýrari. Uppl. á BG-bílasöl- unni, sími 14690. Fimmtudagur 25. maí 1989 21 Keflavík Uppfyllt lóð á besta stað í Kefla- vík. Sérlega glæsi- leg teiknin g. N án- ari upplýsingar á skrifstofunni. Eignamiðlun Suðurnesja Símar 11700 og 13868 V-1 A-irffl /í./\ Laugardaginn 27. maí efnir Landsbanki íslands til árlegs Landsbankahlaups í samvinnu við Frjálsíþróttasamband (slands. Hlaupið er ætlað krökkum sem fæddir eru 1976 - 1979. Skráning fer fram í öllum útibúum og afgreiðslum og þar fást einnig nánari upplýsingar. Hlaupið hefst kl. 11. Keppendur mæti eigi síðar en kl. 10.30 ú eftirtöldum stöðum: SANDGERÐI: Við Landsbankann kl. 11. GRINDA VÍK: Við Landsbunkann kl. 11. KEFLAVÍK: Við íþróttavallarhúsið kl. 11. Landsbanki íslands !];

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.