Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.05.1989, Qupperneq 23

Víkurfréttir - 25.05.1989, Qupperneq 23
\liKurt ÍUUi* Fimmtudagur 25. maí 1989 23 r Ovæntur aukafarangur Júlíusi Baldvinssyni brá heldur betur í brún þegar hann og kona hans, Hafrún Vígiundsdóttir, sern fylgdi honum til London ásamt fríðu föruneyti blaðamanns og þriggja Sandgerðinga, opnaði ferðatöskuna sína á hótelinu í London. Bætt hafði verið i töskuna auka- farangri, sem samanstóð af 10 eintökum af dagblaðinu Tímanum í búnti, WC-rúllu og gömlu tölublaði af Mann- lífi. Júlli vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið, hélt fyrst að hann hefði fengið vitlausa tösku en seinna kom upp ákveðin grunsemd um græskulaust grín hjá kunn- ingjum getraunaspekings- ins, sem þó á eftir að kanna betur. Júlíus í hopi 100 þusund ahorfcnda a Wembley sl. laugardag. Ljósm.: pket. „Meiri háttar upplifun" - sagði Júlíus Baldvinsson, Getraunaspekingur Víkurfrétta, sem var á Wembley m&nnuterdir - Larnfsyr ,,Ég hafði imyndað mér ým- islegt, en ekki svona. Þetta var meiriháttar upplifun, stemning- in og leikurinn frábær,“ sagði Júlíus Baldvinsson, Getrauna- spekingur Víkurfrétta 1989, sem var á meðal eitt hundrað þúsund áhorfenda á Wembley, þar sem Liverpool og Everton áttust við í bikarúrslitum ensku knattspyrnunnar sl. laugardag. Júlíus hampar merkjum Liver- pool og Everton fvrir leikinn. Það voru Samvinnuferðir- Landsýn sem gáfu þessi glæsi- legu verðlaun í getraunaleik Víkurfrétta, helgarferð til London. COME m WEMBKEW Sandgerðingarnir Sigurður og Skúli Jóhannssynir fylgdu Júlíusi á Wembley, enda Skúli gallharður „púlari“: Sögulegur leikur Leikurinn á Wembley að þessu sinni var fyrir margra hluta sakir sögulegur. Lengi vel var útlit fyrir að ekkert yrði af honum vegna harmleiksins í Sheffield, en þar fórst fjöldi fólks frá Liverpool-borg, en þaðan eru bæði liðin. Vegna þessa var ákveðið að 70.000 miðar færu til félaganna, sem er mun hærri tala en venjulega, en alla jafna fá öll lið í 1. og 2. deild ákveðinn fjölda af mið- um á þennan eftirsótta leik. Það var því mikil eftirspurn eftir miðum, sérstaklega frá öðrum áhangendum en þess- ara liða, og því varð svarta- markaðsbrask mun minna að þessu sinni og lítið um ,,svarta“ miða í umferð, því enginn vildi missa af leiknum. Þá hefur eftirlit með braskinu verið stóraukið og ef það sann- ast að aðgöngumiði hafi verið seldur fyrir meira en hann kostar getur það þýtt allt að 6 mánaða fangelsi! Þeir örfáu miðar, sem fáanlegir voru, ruku því all rosalega upp í verði og heyrðust tölur eins og tífalt til fimmtánfalt nafnverð. Fjöldi manns, sem ekki fengu miða, reyndu að komast inn á leikvanginn með öðrum leið- um. Við urðum vitni að því við innganginn þegar ungir áhangendur reyndu að fara yfir rammgirta, oddhvassa girðingu en löggæsla var mjög ströng og þó þeir kæmust yfir óhugnanlega girðinguna biðu svörtu húfurnar hinum megin við. En engu að síður reyndu menn þetta og lögðu lífið nán- ast að veði. Til skammar En Suðurnesjamennirnir komust í sín sæti og fengu að sjá allt það besta sem ensk knattspyrna býður upp á. Auk blaðamanns og getraunaspek- ingsins úr Garðinum voru með í ferðinni þrír Sandgerðingar en tveir þeirra, Skúli og Sig- urður Jóhannssynir, áttu þess kost að komast á völlinn. Eins og þeir sem fylgdust með sjón- varpsútsendingunni gátu séð hafði girðing umhverfis völl- inn verið fjarlægð og því var greið leið fyrir „spennta" áhangendur að hlaupa út á völlinn og sumir stóðust ekki freistinguna, þrátt fyrir varn- aðarorð forráðamanna leiks- ins, og hlupu út til goðanna sinna þegar þeir skoruðu mörkin. Framkoma og hegð- un áhangendanna utan og inn- an vallar benti ekki til þess að þeir hefðu lært af hörmungun- um í Sheffield. Einn enskur áhorfandi sagði við okkur að framkoma enskra áhorfenda væri þjóðinni til skammar og gera þyrfti eitthvað róttækt í málinu, en eitt af því væri að fjölga sætum á völlunum, sem þegar er byrjað að gera. Ólýsanleg þögn Áður en leikurinn hófst var Vasaþjófar Júlíus varðfyriróskemmt- ilegri reynslu þegar hann var á leið inn á leikvanginn í langri röð og þröng áhorf- enda. Þá fann hann allt í einu fyrir hendi á leið í buxnavas- ann en okkar maður varekki á því að I áta ræna sig og reif í hendina á þessum enska vasaþjóf senr fór allur í ,,flækju“ en því miður var ekki staður og stund til frek- ari kærumála, svo þjófurinn slapp með skrekkinn... 'I Ruslið og em- bættismaðurinn Það fylgir mikið rusl og úr- gangur 100 þúsund manns og lítið um ruslafötur. Öl-og bjórdollur ásamt hamborg- arabréfum lenda því beint á göngum og götum. Þegar heilbrigiðiseftirlitsmaðurinn Júlíus þurfti að losa si'g við öldollu fannst honum það slæmt mál að þurfa að henda henni ,,bara eitthvað“. „Hann Magnús heilbrigðis- fulltrúi kæmist í feitt hérna,“ sagði Júlli, þegar hann henti dollunni aftur fyrir sig inn í mitt ruslhafið, af fullkomnu kærulevsi eða þannig... Allt var gert til að komast inn á leikvanginn. þögn í eina mínútu til að votta þeim virðingu, sem létust í Sheffield. Það var ólýsanleg tilfinning að vera innan um eitt hundrað þúsund áhorf- endur og geta heyrt saumnál detta. En þegar leikurinn hófst varð stemningin hreint ótrú- leg og var það mál manna að þessi bikarúrslitaleikur hefði verið einn sá besti í langan tíma pg hafi allt hjálpað til þess. Urslitin skiptu ekki öllu máli en margir voru á því að örlögin hafi ætlað Liverpool sigur í þessum leik, sem raun varð á. íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild - Keflavíkurvöllur: ÍBK - FH í kvöld, fimmtudag kl. 20. Hvað gera Keflvíkingar í kvöld gegn FH-ingum? Suðurnesjamenn, fjölmennum!

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.