Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.05.1989, Page 24

Víkurfréttir - 25.05.1989, Page 24
l'HHiHUtMfr Sima S*Banki Fimmtudagur 25. maí 1989 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Vallargötu 15 - Símar 14717, 15717. * J SÍMI 15828 Unga kynslóðin var þegar mætt til að taka út vcrkið. Ljósmyndir: hbb. Kastalasmíði við Gefnarborg Foreldrar barna á Gefnarborg í Garði ijölmenntu um síðustu helgi á leiksvæðið við dagbeimilið með tæki sín og tól og hófu byggingu kastala. sent hefur verið langþráður draumur meðal harnanna. Grafnir voru niður símastaurar og síðan kont hver spýtan á fætur annarri. Var byggingin töluvert ódýrari, en ef kastalinn Itefði verið keyptur tilbúinn. Foreldrarnir í óðaönn við byggingarvinnuna. Laxaslátrun í Vogum Undirbúningur stendur nú yfir hjá fyrirtækinu Fisk- torgi í Vogum vegna slátrun- ar fyrir iaxeldisfyrirtækið Vogalax. Mun slátrun hefj- ast nú í sumar og að sögn Omars Jónssonar, oddvita í Vatnsleysustrandarhreppi, tekur síátrunin yfir þrjá til fjóra mánuði í rekstri fyrir- tækisins. Fisktorg hefur yfir aðráða nýlegu frystihúsi og nýjum tækjum og er mjög góð að- staða til laxaslátrunar. Vogamenn hafa hugsað sér að í framtíðinni verði mikil löndun á laxi í Vogum og uppi eru áform urn mikið kvlaeldi úti fyrir ströndinni og þegar er búið að setja upp nokkrar kvíar. Tilboð í rekstur Gimlis samþykkt Bæjarstjórn Njarðvíkur hefur samþykkt að ganga að tilboði þeirra Magneu Ingu Víglundsdóttur og Hallfríð- ar Matthíasdóttur i rekstur dagheimilisins "Gimlis i Njarðvík, nú að loknum sumarleyfum. Jafnframt hefur bæjarstjóra verið falið að ganga til samninga við þær á grundvelli tilboðsins. Mun liann einnig halda fund með foreidrum barna á dagheimilinu og skýra fyrir þeim þær breytingar sem verða nú á rekstrinum. Hljóðar tilboðið upp á að rekstrargjöld fyrir 12 mán- aða tímabil verði kr. 8.470.000, en rekstrarkostn- aður heimilisins á síðasta ári nam 9,7 milljónum króna. Yrði hlutur bæjarsjóðs í rekstrinum helmingur upp- hæðarinnar en hinn helming- urinn greiddur með dagvist- unargjöldum. Skólastjórinn, Kiríkur Hermannsson, rafvirkinn, Guðmudur Jens Knúts- son, oy lögfræðingurinn, Asbjörn Jónssnn, leggja á ráðin um hvernig eigi að ganga frá öðrum enda kastalans. Þorri lagðist á hliðina Skömmu fyrir miðnætti í fyrrakvöld fékk Sandgerðis- báturinn Þorri, sem er fimm tonna þilfarsbátur úr plasti, á sig tvö brot skammt utan við innsiglinguna til Sand- gerðis. Við brotin lagðist bát- urinn nánast á hliðina en eina skipverjanum, Eyþóri Jónssyni, tókst aðsigla upp í báruna og rétta bátinn af. Við brotin flæddi sjór inn á dekkið og tók allt lauslegt fyrir borð, fiskkör, afla, björgunarhring o.fl. Sendi Eyþór þá út neyðarkall og svaraði Tilkynningarskyld- an honum. Voru bæði varð- skip og hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson þarna nálægt og tóku þau þegar stefnu að hinum nauðstadda báti. Jafnframt var björgun- arbáturinn Sæbjörg úrSand- gerði kallaður út. Fylgdi Sæbjörgin síðan Þorra til hafnar í Sandgerði, en dýptarmælir mun hafa bilað við brotin, auk þess sem band fór í stýri bátsins og mikil slagsíða var á hon- um, er hann kom að bryggju. Við nánari athugun kom í ljós að orsökin var sú að all- ur ísinn í lestinni fór út í ann- að borðið og rafgeymarnir sömuleiðis, þar sem þeir ónýttust. I samtali við blaðið sagðist Eyþór hafa sloppið við öll meiðsli en hafa verið orðinn ansi hræddur. Þá voru tveir aðrir litlir bátar, sem höfðu verið að veiðum út af Skerjum eins og Þorri, ókomnir að. En eftir að talstöðvarsamband náðist við þá fylgdist varðskipið með þeim til Sandgerðis, enda haugasjór. SPÓN PARKET TRÉ-X BYGGINGAVÖRUR IÐAVÖLLUM 7 KEFLAVÍK SÍMI 14700 Gróðurhús nánast rústað Að undanförnu hafa krakkar verið iðnir við að brjóta rúður í gróðurhúsi við Vallargötu í Keflavík. Höfðu um síðustu helgi eigi færri en níu rúður verið brotnar með grjótkasti af nærliggjandi lóðum. Er niálið nú í rannsókn hjá lögreglunni en ákveðnir unglingar eru sterklega grunaðir um verknaðinn. Hraðaakst- ur að auk- ast á ný Mönnum virðist bera sam- an um það að hraðakstur er orðinn tíðari en oft áður. Um helgina barst lögreglunni í Keflavík t.a.m. þrjár kvart- anir yftr of hröðum akstri bifreiða innan bæjarmarka Keflavíkur. Harpa seld burtu af svæðinu Útgerðarfyrirtækin Kefla- vík h.f. og Miðnes h.f. hafa selt eitt skipa sinna, Hörpu RE 342, til Eskifjarðar. Er kaupandinn fyrirtækið Esk- firðingur h.f. Hefur skipið þegar verið afhent hinum nýju eigendum. Harpa er rúnrlega 300 tonna skip, smíðað í Holl- andi 1967, og frá upphafi verið gert út frá Suðurnesj- um, að undanskildum tveim- ur árum, að það var gert út frá Þórshöfn. Hafa eigendur lengst af verið Fiskiðjan h.f. ásamt/fleirum, svo ogsystur- fyrirtækin Keflavík h.f. og Miðnes h.f. Fr ekki leikskúlinn cinmitt rétti staðurinn fvrir lögntenn og skólustjóra?

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.