Víkurfréttir - 02.11.1989, Blaðsíða 8
8
mntar* ™| grín ■ gagnrýni 1*^- vangaveltur ■
I I IWICll 4 ;urrisjón:wemil páll.*»
Misheppnuð tilraun
Tilraun sú, sem lögregluyf-
irvöld stóðu að er Hafnargöt-
unni var lokað um síðustu
helgi, virðist hafa misheppn-
ast, enda eru ökumennirnir á
rúntinum ekki aðalvandamál-
ið heldur krakkarnir sem
stunda rúðubrotin. Þó verða
lögregluyfirvöld að skoða nið-
urstöðurnar vel, því ekki má
líta svo út sem bílstjórarnir
ófriðlegu hafi farið með sigur
af hólmi. Auðséð er þó að tillit
verður að taka til þeirra sem
áfram vilja hafa rúntinn.
Mætti t.d. ekki reyna einstefnu
á Hafnargötunni svo lögregla
og leigubílar eigi þar áfram
greiðan aðgang.
... eða hvað?...
Annars hélt ég að yfirvöld
hefðu verið aðgera tilraun með
að gera Hafnargötuna að
göngugötu á umræddum kafla
svo þau hefðu meira pláss og
þyrftu ekki að hanga utan í
verslunargluggunum. Þessitil-
raun tókst vel og lítið var um
rúðubrot. Það mega yfirvöld
einnig hafa í huga. Gefi þau
það hins vegar í skyn að allt
hafi mistekist er voðinn vís í
framtíðinni. Þá fá unglingarn-
ir það á heilann að með sam-
stöðu og nógu miklum látum
geti þeir brotið lögregluna
auðveldlega niður.
loks, er forystusauðurinn var
færður á lögreglustöðina,
hættu óspektirnar.
...Gróft brot
Þó ef til vill megi finnaskýr-
ingu á mótmælum ungling-
anna er það með engu verjandi
að þeyta bílflautur í nágrenni
við sjúkrahúsið og íverustaði
aldraðra. Þetta fólk á skilið
frið og ekkert annað. Fyrir
þetta eitt verða lögregluyfir-
völd að taka harkalega á um-
ræddum óspektarmönnum.
Getur bæjarstjórinn
sett yfírmönnum sínum
stólinn fyrir dyrnar?
Hún er ekki öfundsverð
staðan hjá bæjarstjóranum í
Keflavík varðandi deiluna um
greiðsluskyldu varnarliðsins
varðandi olíuuppskipun í
Helguvík. Því fyrir utan að
vera bæjarstjóri og nefndar-
maður í varnarmálanefnd,
sem er húsbóndi varnarliðsins,
er hann starfsmaður þess síð-
arnefnda, þó hann sé í launa-
lausu orlofi. Þarf hann því að
hóta þeim valdboði um leið og
hann er í fríi hjá þessum sömu
mönnum. A.m.k. er umrædd
staða all skondin svo ekki sé
meira sagt.
...Slæleg
frammistaða?...
En hvort sem tilraunin hef-
ur mistekist eður ei, er spurn-
ing hvort frammistaða lög-
reglu hafi ekki verið slæleg
þegar tugum bíla var ekið í
halarófu um bæinn, þeytandi
bílflautur. Alltof seint tóku
lögregluyfirvöld á málinu, en
Plata með
Rut væntanleg
Þegar nær dregur jólum er
væntanleg á markaðinn hljóm-
plata með fyrrum keflvískri
barnastjörnu, Rut Reginalds.
Annars er það að frétta af Rut
að hún gifti sig nýlega bakara
með pompi og pragt í Hall-
grímskirkju í Reykjavík.
ÁRSHÁTÍD
\aaáni/ MANA
verður haldin laugardaginn 4. nóvember
nk. Munið að tilkynna þátttöku í símum
12317 (Lalli), 13034 (Brynjar) og 12495
(Snorri). SKEMMTINEFND
Knattspyrnudómara-
félag Suðurnesja
Aðalfundur félagsins verður haldinn nk.
laugardag, 4. nóvember, kl. 13:30 í Glaum-
bergi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Verðlaunaafhending.
Stjórnin
Allaballar hræddir...
Sögur herma að einn af
æðstu mönnum kommanna sé
nú tíður gestur á heimili Gylfa
Guðmundssonar og bjóði
honum gull og græna skóga ef
hulduher Gylfa bjóði ekki
fram í næstu bæjarstjórnar-
kosningum í Keflavík. Verði af
framboði er boðið upp á sam-
starf sem að sjálfsögðu yrði
hvorki G- eða H-listi (óháðir)
heldur vinstra framboð. Óttast
menn að allaballar nái engum
manni inn ef hulduherinn
bjóði fram.
...bjóða öruggt sæti
Ef Gylfi verði hins vegar
góður strákur herma fregnir
að honum eða fulltrúa hans
verði boðið gott sæti á næsta
lista allaballa í þingkosning-
unum og þá undir nafni G-list-
ans.
Breyttu ímynd
Suðurnesja
Fulltrúar Sambands ís-
lenskra sparisjóða áttu ánægj-
ulega daga hér á Suðurnesjum
um síðustu helgi. Á milli fund-
arseta var þeim boðið á kvöld-
vöku í Stapanum á föstudags-
kvöld, sem hófst með kvöld-
verði undir ljúfri tónlist þeirra
félaga, Kjartans Más Kjart-
anssonar og Steinars Guð-
mundssonar. En það var að-
eins forsmekkurinn að því sem
koma skyldi, því í kjölfarið
kom Leikfélag Keflavíkur,
sem flutti atriði úr afmælis-
revíu Keflavíkur og síðar um
kvöldið þætti úr söngleiknum
Grettti, sem félagið frumsýnir
í næstu viku. Tónlistarfólkið
okkar gladdi sparisjóðsfólkið
einnig, með söng og tónlist.
Annars vegar þau Gróa
Hreinsdóttir og Guðmundur
Sigurðsson og hins vegar Hlíf
Káradóttir og Ragnheiður
Skúladóttir. Danspör úr
Innri-Njarðvík sýndu síðan
samkvæmisdansa og Léttsveit
Tónlistarskólans í Keflavík
fylgdi því eftir með nokkrum
ljúfum lögum og fékk gesti út á
gólfið, slík var stemningin.
Tveir af yngri skemmtikröfum
Suðurnesja, sprellararnir
Burkni og Ágúst, kitluðu hlát-
urtaugarnar hressilega og end-
uðu tveggja tíma dagskrá, sem
þarna var flutt undirbúnings-
laust í fyrsta skipti, en eins og
hún hefði verið flutt margoft
áður, svo vel heppnaðist hún.
Hafði einn stjórnarfulltrúinn á
orði á eftir að þessi kvöldvaka
hefði breytt ímynd Suðurnesja
í augum þessa aðkomufólks og
greinilegt að á Suðurnesjum
væri meira en hitaveita og
flugvöllur; líka blómlegt
menningarlíf...
Ætla að styrkja
menningarlífíð
Þessi vel heppnaða kvöld-
vaka varð til þess að stjórn
Sambands íslenskra spari-
sjóða ákvað á fundi sínum á
laugardeginum að styrkja
menningarlífið á Suðurnesjum
með peningaframlögum til
Leikfélags Keflavíkur og Tón-
listarskólans í Keflavík, að
upphæð krónur 200 þúsund til
hvors aðila...
Einkabílstjóri
utanríkisráðherra
Kristinn Th. Haraldsson
eða Kiddi rótari, eins og hann
var kallaður á „bítlaárunum" í
Keflavík, hefur fengist við ým-
islegt um ævina. Hann hefur
flutt inn töframenn, sjónhverf-
ingamenn og sirkusfólk og
margt fleira, fyrir utan það að
hafa verið einn kunnasti rótari
allra tíma, eða þannig. Nú er
okkur sagt að Kiddi sé orðinn
einkabílstjóri hjá Jóni Bald-
vin Hannibalssyni, utanríkis-
ráðherra, ogaltmuligmand hjá
krötum 1 Reykjavík...
Stjórnar flottasta
mötuneyti landsins
Við höfum stundum verið
að monta okkur af því í Mol-
um að Suðurnesjamenn væru
víða í fremstu röð í atvinnulíf-
inu. Meðal annars höfum við
sagt frá því að við séum með
alla helstu tónlistarmenn
landsins svo og matreiðslu- og
veitingamenn, bæði á stærstu
veitingahúsum borgarinnarog
hér á Suðurnesjum. Þessu til
viðbótar viljum við koma því á
framfæri að Keffvíkingurinn
Sigurbjörn Jónsson er for-
stöðumaður flottasta og dýr-
asta mötuneytis í Reykjavík,
sem er auðvitað í „peninga-
kassanum", sjálfu Seðla-
bankahúsinu. Svo eigum við
annan sem gefur nokkur
hundruð nemendum Iðnskól-
ans daglega að borða, en for-
stöðumaður mötuneytisins
þar er einnig Keflvíkingur og
heitir Hörður Jóhannsson og
starfaði um tíma í Glaumbergi
og Sjávargullinu...
Ungar fegurðardömur
Undirbúningur fyrir Feg-
urðarsamkeppni Suðurnesja
er nú hafinn og hefur verið
auglýst eftir ábendingum.
Stefnt er að því að ljúka vali
fyrir 1. des„ þar sem keppnin
fer fram 18. feb. að þessu sinni,
eða mun fyrr en undanfarin ár.
Ágæt viðbrögð urðu þegar
auglýst var eftir ábendingum
fyrir nokkru síðan, en einn
hængur var þar á, flestar stúlk-
urnar voru 15-16 ára en lág-
marksaldur er 18 ár. En for-
ráðamenn keppninnar geta þó
litið björtum augum til fram-
tíðarinnar, þegar allar þessar
fallegu ungu dömur verða
búnar að ná aldri til að taka
þátt í keppninni...
Verður skuldin
sett á ríkið?
Hin furðulega deila, sem
bæjaryfirvöld eiga í varðandi
gjaldtöku af olíuskipum í
Helguvík, hefur orðið til þess
að menn telja, sumir hverjir,
að nú verði eitthvað að fara að
gerast í málum. Hvort það
verður lögbann á olíuuppskip-
un eða málssókn skýrist trú-
lega á næstu dögum. Er jafn-
vel spurning hvort ríkiðsé ekki
ábyrgt fyrirgreiðslum þessum,
þar sem þáverandi utanríkis-
ráðherra gerði samninginn?
Þetta er alls ekki svo fjar-
stæðukennt að áliti fróðra
manna.
BONSAI-tré með náttúrusteinum
t.d. JASPIS, BERGKRIST-
ALL, TURKIS, TÍGRIS-
AUGA, AMETIST O.FL.
Þetta er sagt um steininn
TÍGRISAUGA:
Gefur orku og
fallegt útlit.
Vinnur gegn
astma, maga-
krampa, sleni og
augnsjúkdómum.
Vörn gegn kvefi,
skýrir hugsun og
eykur sjálfstraust.
BLÓMASTOFA GUÐRÚNAR
Hafnargötu 36 - Keflavík - Sími 11350