Víkurfréttir - 02.11.1989, Page 9
9
Ljósastaurinn var illa útleikinn eft-
ir uml'erðaróhappið. \ið blóðprufu
á ökumanni kom i Ijós að hann var
ekki undir áhrifum áfengis, og |iá
voru farþegar í framssetum spcnntir
í öryggisbelti.
Ákeyrslan á Ijósastaur-
inn á Fitjum:
Ökumaður-
inn var ekki
ölvaður
Ökumaðurinn, sem ók bíln-
um er lcnti á Ijósastaurnum á
Fitjum fyrir tæpum þremur vik-
um, var ekki öívaður, að því er
fram kom í niðurstöðum blóð-
prufu er tekin var af honum eft-
ir slysið. Ennfremur er rétt að
geta þess að bæði hann og far-
þeginn í framsætinu voru í bíl-
bcltum er óhappið varð.
Að sögn lögreglu var mikill
áfengisþefur út úr bílnum er
komið var að honum og því
þótti rétt að taka blóðprufu af
ökumanni, enda er slíkt liður í
rannsókn á umferðaróhöpp-
um þar sem fólk slasast, en þó
enginn haft slasast alvarlega
voru ftmm manns í bílnum.
íslandslax hf.:
Kröfuhöfum
boðin 15% af
kröfum sínum
í júnímánuði fékk fvrirtækið
íslandslax, sem rekur ftskeldis-
stöð við Grindavík, greiðslu-
stöðvun til þriggja mánaða og
8. sept. sl. var hún framlengd til
8. nóv. nk. Samkvæmt bráða-
birgðauppgjöri í lok júní námu
skuldir 971 milljón króna.
Nú hefur stjóni fyrirtækis-
ins sent lánadrottnum Islands-
lax h.f. bréf, þar sem farið er
frani á niðurfellingu hluta af
kröfum í fyrirtækið. Er óskað
eftir því að eigendur veð-
tryggðra krafna falli frá vöxt-
um fyrir árið 1989 og 1990 og
að afborganir frestist, þannig
að fyrsta afborgun verði 1992.
Eigendur almennra krafna og
óveðtryggðra' forgangskrafna
eru beðnir um samþykki þess
að kröfur ásamt vöxtum verði
aðeins sem nemi 15% af fjár-
hæðinni.
Með þessu telur stjórn fyrir-
tækisins að hún sé að forða því
frá gjaldþroti.
Ferðamálanám
Hefur þú áhuga á störfum
tengdum ferðaþjónustu ?
Ablaðamannafundi sem Ferða-
málaráð hélt nýverið kom fram
að heildarvelta ferðaþjónustu þessa
árs hér á landi yrði á milli 9 og 10
milljarðar króna. Áætlaðeraðum
135 þúsund ferðamenn heimsæki
ísland í ár og miðað við aukninguna
frá 1984 munu um 300 þúsund
ferðamenn sækja ísland heim á ári
hverju um næstu aldamót.
Á blaðamannafundinum kom einnig
fram að nú eru 6 þúsund ársstörf hér
á landi tengd ferðaþjónustu og
reikna mætti með verulegri fjölgun
þeirra á næstu árum.
Með þetta í huga hefur Málaskól-
inn, í samvinnu við Viðskipta-
skólann, nú skipulagt námskeið fyrir
fólk sem hefur áhuga á að takast á
við hin margvíslegu verkefni sem
bjóðast í ferðamannaþjónustu.
Námið er undirbúið af fagmönnum
og sérfræðingum á ýmsum sviðum
ferðamála. Sérstök áhersla er lögð á
lausn raunhæfra verkefna.
Námið tekur alls 176 klst. og
stendur yfir í 11 vikur.
Kennarar á námskeiðinu hafa
allir unnið við störf tengd
ferðaþjónustu og hafa mikla
reynslu á því sviði.
Hefur pú áhuga á að starfa
að spennandi og fjölbreyttum
störfum íferðaþjónustu hér
heima eða erlendis? Vissir
þú að ferðamannaþjónusta
er í örum vexti á Islandi?
Meðal námsgreina í Kennt verður
ferðamálanáminu eru: ■ Keflavík
Starfsemi ferðaskrifstofa, tungumál, erlendir og inn- Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma
lendir ferðamannastaðir, flugmálasvið, rekstur fyrir- 91 - 62 66 55. Hringdu strax því fjöldi þátt-
tækj a í f erðamannaþj ónustu og heimsóknir í fyrirtæki. takenda verður takmarkaður.
!^r! Málaskólinn
BORGARTÚNI 2 4, SÍMI 91 - 62 66 55