Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.11.1989, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 02.11.1989, Blaðsíða 10
10 Viðtalið í í RUSLI FRÁ FJÖGUR Á MORGNANA „Gömlu karlarnir ganga best frá ruslapokunum“, segir Ólafur Thordersen Viðmælandi blaðsins, Ólafur Thordersfn, ekur umm á gámabifreið Njarðtaks Nú eru 40 gántar i uinferð á Suðurnesjum ogeru vel notaðir. Ljósmyndir:hbb ■ Að vera ruslakarl hefur aldrei þótt vera neitt spennandi starf í augum fólks. Sú þjónusta sem þessir „karlar" veita er hins vegar sjálfsögð hjá öllum, þó að fólk veiti því enga sérstaka athygli þósvo fulli ruslapokinn hverfi úr tunnunni einu sinni í viku og einn tómur kemur i staðinn. Veist þú til að mynda á hvaða dögum rusiakarlarn- ir koma til þín? Hugntyndin með þcssari grein er nú ekki að fara í spurningalcik við lescndur, heldur að skyggnast örlitið inn í það starf sem rusla- karlarnir okkar vinna. Til að f ræða okkur um það varð Ólafur Thor- dersen, bílstjóri á gámaflutningabil Njarðtaks og altmuligmann, einnig þckktur sem lögregluþjónn, fyrir svörum. Vinnudagurinn „Vinnudagurinn hjá fyrsta flokknum hefst upp úr klukk- an fjögur að morgni, þegar hafist er handa við að fjarlægja sorpsekkina frá húsum fólks og nýir, tómir pokar skildir eftir í staðinn. Sorpsekkjunum er safnað saman í litlar hrúgur í hverri götu fyrir sig og þær sér næsti flokkur um að fjar- lægja skömmu seinna. Þeir starfsmenn, sem sjá um það, hefja störf upp úr klukkan fimm og yfirleitt er allri sorp- hreinsun lokið milli klukkan tvö og þrjú á daginn og þá höf- um við líka losað verslanir og fyrirtæki við sorp,“ sagði Olaf- ur, er hann var beðinn að lýsa vinnudegi ruslakarlanna í fá- um orðum. „En að sjálfsögðu getur þessi áætlun eða dagskrá okkar öll farið úr skorðum þegar veður eru vond.“ Eftirsótt starf -Nú hefur stöðuheitið „ruslakarl" ekki verið hátt skrifað hjá fólki. Hvernig hef- ur gengið að fá mannskap til starfa? „Ja, eitt er víst, að við höf- SUÐURNESJAMENN! VIÐ ERUM A SVÆÐINU ÖLL DEKKJA- ÞJÓNUSTA NÝOGSÓLUÐ DEKKAFÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM SÓUiMVGr Fitjabraut 12, Njarðvík, simi 11399 um ekki þurft að auglýsa eftir starfskröftum í langan tíma. Það virðist vera jöfn ogstöðug ásókn í þetta starf, en það virð- ast eingöngu strákar hafa áhuga á að starfa í þessu. Þetta er svolítið erfitt starf svona fyrst. Það er erfitt að venjast öllu þessu labbi, en það eru ekki mikil átök við sjálfa sorp- pokana." Góður frágangur -Hvernig er frágangurinn á sorppokunum hjá fólki? „Yfirleitt er frágangur fólks á sorpi mjög góður. Gömlu karlarnir eru mjög duglegir við að binda fyrir sorppokana og einnig er vel gengið frá rusla- kössum og tunnum. Svo eru einnig til aðrir aðilar hér á Suð- urnesjum sem eru fyrir það að troðfylla pokana,svoalltflæð- ir út um allt og þá er erfitt að eigá við það, aðxörp fjúki ekki úr hrúgunum sem strákarnir safna pokunum í.“ Þeir eru snöggir í ferðum, strákarnir hjá Njarðtaki, og þegar Ijósmyndari blaðsins keyrði um götur Keflavíkur í leit að ruslakörlunum, kom hann auga á að fólk virðist henda „öllum fjandanum", því í sumum haugunum mátti sjá t.d. gamalt barnarimla- rúm, hillur, skápa, rúm og þar fram eftir götunum. Lætur fólk ykkur henda hverju sem er? Hættuleg glerbrot „Það er óhætt að segja það. Fólk lætur einnig ótrúlegustu hluti í ruslapokana. Það er ekki langt síðan einn af strák- unum ætlaði að kippa rusla- poka upp í kerruna hjá sér, en þá kom í Ijós að í pokanum var eitt stykki bílvél. Þrátt fyrir þessa hluti, þá eru glerbrotin alltaf varasöm- ust og er raunar vítavert af fólki að láta bæði brotna og óbrotna glerhluti í sorppok- ana án þess að pakka inn í um- búðir, sem koma í veg fyrir slys. Því miður, þá er það alltaf að gerast hjá okkur að við er- um að missa menn úr vinnu vegna þess að þeir hafa skorið sig illilega á gleri og jafnvel verið frá í allt að Ijóra mán- uði,“ sagði Ólafur og undir þetta tók einn þeirra sem hirða ruslið frá húsunum, en hann er nýlega kominn til starfa aftur eftir að hafa verið frá í tvær vikur vegna skurðar í lófa sem hann hlaut af glerbroti, sem var óvarið efst í sorppoka. Sauma þurfti tiu spor en til eru dæmi um allt að 38 spor i hendi vegna glerbrots. -Það er fleira en glerbrotin sem gera ykkar mönnum lífið leitt ogjafnvel hinumalmenna borgara Iíka. Við hér á Víkur- fréttum fáum fjölmargar hringingar frá fólki, þar sem kvartað er yfir því að sorp- hrúgurnar valdi svo miklum sóðaskap. Vondur frágangur á vökvum „Fólk er svolítið gjarnt á að henda ýmsum vökvum, eins og til dæmis málningu, án þess að ganga út frá því að hún leki úr pokunum. Síðan, þegar sorpinu er safnað saman, fer vökvinn að renna af stað og lekur niður á götuna. Þá taka allir upp símann og kvarta yfir sóðaskapnum hjá okkur rusla- körlunum. Ef fólk myndi hins vegar hugsa um að ganga bet- ur frá öllu fljótandi, yrði þetta örugglega allt mikið snyrti- legra, en það verða þá líka allir að vera samstíga." Það kennir ýmissa grasa innan um annað húsasorp á Suðurncsjum. Einhvcr hcfur t.d. |>urlt að losa sig við lúið barnarimlarúm. Ruslakarlarnir Erlendur og Sigurður sctja sorppoka í hrúgu á llólagötunni i Keflavík. Ilrciðar (iuðmundsson, formaður skólancfndar, flutti Kópi ræðu. Skólancfnd og skólastjóri fylgjast tneð. Kópur kvaddur Mokið frá tunnum -Nú er vetur konungur genginn í garð. Eruð þið rusla- karlarnir með einhver skila- boð til fólksins á Suðurnesj- um? „Þegar hann fer að snjóa er nauðsynlegt að mokað sé frá öllum ruslakössum, þannig að auðvelt sé að komast að.“ Svo við snúum okkur að öðrum málum. Njarðtak tók við sorphreinsunarmálum á Suðurnesjum strax í byrjun ársins 1982. Þið hafið smám saman verið að auka við þjón- ustuna og nú eruð þið komin með sorpgáma fyrir verslanirg með sorpgáma fyrir verslanir og fyrirtæki. Gámarnir „Það var orðin þörf fyrir gámaþjónustuna og hún nýtur mikilla vinsælda. Nú eru um 40 gámar af öllum stærðum í stöðugri umferð og eru mikið notaðir. Til dæmis eru þrír gámar staðsettir við áhaldahús Keflavíkurbæjar og þarf að losa þá alla að jafnaði tvisvar í viku. Kópur Kjartansson bifreiða- stjóri, sem séð hefur um akstur skólabarna i Vatnsleysustrand- arhreppi sl. 17 ár, lét af þeim störfum á liðnu vori. Tilefnið var að gengið var til samninga við Sérleyfisbifreiðir Keflavík- ur um þcnnan akstur a.m.k. fram að áramótum. Kópur var mjög vinsæll í starfi, áreiðanlegur og stund- vís svo að af bar. Sakna hans margir. Kennarar Stóru- Vogaskóla, annað starfsfólk, skólanefnd og fulltrúar for- eldrafélags héldu Kópi hóf á dögunum. Voru honum þar færðar gjafir pg þakkarávörp voru flutt. Oskuðu menn honum velfarnaðar í framtíðinni og þökkuðu honum vel unnin störf um árabil. 11 Vikurfréttir 2. nóv. 1989 Tjarnargötu 17, sími 12061. Bjóöum nú vandaöargjafavörurí miklu úrvali frá Opið laugardaga frá 10—13. Svartir sauðir lcynast viða á svæðinu, cn þaðcru þeirsem troða rusla- pokana svo fulla, að allt fer út um nllt. Frá því Njarðtak fórað ann- ast sorphirðu á Suðurnesjum hefur verið jöfn aukning á sorpi frá ári til árs, þar til að í fyrra var minna um sorp á svæðinu en árin þar á undan. Hlutfallslega henda Suður- nesjamenn frá sér minna magni af sorpi helduren marg- ir aðrir íslendingar," sagði Ol- afur Thordersen hjá Njarðtaki að endingu. Allt það nýjasta í skrauti -eyrnalokkar, armbönd, belti og festar BEINT FRÁ ÍTALÍU OG AMSTERDAM TEK AÐ MÉR FÖRÐUN fyrjr brúðkaup, árshátíðir og mannfagnaði. Kem i | \ heimahús ef óskað er. Hringiö i sima 14409 eða 12330. SIDDÝ # l GIODIA t -..... •SNYRTIVÖRUVERSLUN - v TfLfv SAMKAUPUM - NJARÐVÍK /A b - TCr.y.-sttS'n v Seljum nokkur lítið gölluð leðursófasett með góðum afslætti ó meðan birgðir endast. Tjarnargötu 2 - Keflavík - Sími 13377 ) >

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.