Víkurfréttir - 02.11.1989, Qupperneq 16
16
Fréttir
Reykjanesbraut:
Bílvelta
á nýlagðri
klæðningu
„Skulda sveitarfé-
lögunum afsökun'
- segir Jón E. Unndórsson, hjá Atvinnuþróunarfélaginu
Fólksbifreið valt á nýlagðri
klæðningu við Kúagerði að
kvöldi miðvikudagsins í síðustu
viku. Ökumaður var einn í bif-
rciðinni og slasaðist ekki alvar-
lega. Bifreiðin er hins vegar
niikið skemmd.
Undanfarið hefur verið unn-
ið að lagningu klæðningar í til-
raunaskyni á 400 m kafla
Reykjanesbrautarinnar við
Kúagerði. Þar til veltan varð
var hin nýlagða klæðning illa
merkt, þar eð merkingar lágu
allar niðri utan eins þríhyrn-
ings er táknaði vegavinnu. Eft-
ir veltuna var hins vegar bætt
úr skák og merkjum fjölgað og
komið upp blikkandi Ijósum.
Þá valt einnig bifreið á
Strandarheiði aðfaranótt
föstudagsins í snjó og hálku.
Ökumaður slapp með skrám-
ur en er hins vegar grunaður
um ölvun við akstur.
Suðurnesja-
læknar
kaupa sér frið
Nú virðast sættir vera í sjón-
máli í deilumáli lækna við
Heilsugæslustöð Suðurnesja og
Tryggingastofnunar ríkisins.
Hafa allir læknar stöðvarinnar
nema einn samþykkt að cndur-
greiða stofnuninni háar fjár-
hæðir, að því er frani kom í
Pressunni í síðustu viku. Þrátt
fyrir það er hugsanlegt að ríkis-
cndurskoðun komi málinu til
ríkissaksóknara, að því er fram
kemur i blaðinu.
Snýst deila þessi um mis-
munandi túlkun heilsugæslu-
læknanna og Tryggingastofn-
unar ríkisins á gjaldskrá þeirri
sem verið hefur í gildi undan-
farin ár. Kemur fram í um-
ræddu blaði að nánari skil-
greining sé sú að deilt sé um
það hvað teljist „viðtal" og
hvað teljist „vitjun“ á vakt-
tíma læknis, sem þó er ekki
bundinn viðveru á heilsu-
gæslustöð.
Samkvæmt upplýsinguin
Pressunnar voru kröfurnar um
endurgreiðslur á bilinu 100
þúsund og upp í eina milljón
króna á hvern hinna sex lækna
sem málið snýst um. Ekki er
þó talið að viðkomandi læknar
hafi endurgreirt alla umrædda
upphæð, heldur hafi þar náðst
samkomulag um.
Haft er eftir lækni ástöðinni
í umræddu blaði að þeir telji
sig ekki vera hér með búna að
viðurkenna á sig nein mistök
með þessu, heldur sé hér um að
ræða sátt í málinu.
Í-Kastljósi sjónvarpsins þann
21. október kom fram frá Jóni
E. Unndórssyni, framkvæmda-
stjóra Atvinnuþróunarfélags
Suðurncsja hf., hörð gagnrýni á
stefnuleysi sveitarfélaganna á
Suðurnesjum í atvinnumálum. I
tilefni af því báðu Víkurfréttir
Jón að skýra nánar ástæður
þessarar gagnrýni.
„Ég vil fyrst taka fram að ég
skulda sveitarfélögunum á
Suðurnesjum afsökun á of
harðri gagnrýni i þeirra garð.
Mér þykir það mjög miður
hvað ég lét frá mér fara í hita
leiksins en það sem vakti fyrir
mér var einungis að vekja at-
hygli á slæmu ástandi í at-
vinnumálum og jafnframt
minna á ábyrgð sveitarfélag-
anna.
Því er ekki að leyna að mér
frnnst margt gagnrýnisvert
hvernig sum sveitarfélög taka
á málum er snerta atvinnulífið.
Atburðir líðandi stundar
skipta allt of stóran sess og litil
rækt lögð við að marka stefnu í
atvinnumálum til nokkurra
ára fram í tímann. Þetta kem-
ur einnig fram í starfi atvinnu-
málanefnda sem aðeins koma
saman þegar vandamál berja
að dyrum. Með þessu er ég
ekki að ásaka atvinnumála-
nefndirnar heldur fremur að
segja að það þarf að leggja
miklu meiri áherslu á starf
þeirra og auðvitað fyrst og
fremst þarf að ákveða hvernig
þær eiga að vinna.“
-Hver er stefna Atvinnuþró-
unarfélagsins i atvinnumálum
á Suðurnesjum?
Jón E. Unndórsson
„Markmið félagsins er að
efla atvinnulífið á Suðurnesj-
um og við teljum nauðsynlegt
að fara ýmsar leiðir til að ná
settu marki.
Við teljum mjög nauðsyn-
legt að Suðurnesjamenn versli
sem mest á Suðurnesjum og
því erum við með aðgerðir til
að stuðla að því og vil ég í því
sambandi benda á SKRÁNA
sem kemur út í janúar 1990 og
einnig vil ég benda á SUÐUR-
NESJAVIKU sem verður um
miðjan maí og er kynning á at-
vinnustarfsemi fyrirtækja og
stofnana sveitarfélaga.
Við teljum nauðsynlegt að
bæta þekkingu stjórnenda á
sviði stjórnunar og rekstrar al-
mennt og bjóðum því upp á
námskeið í því sambandi. Ég
vil einnig nefna í þessu sam-
bandi að við höfum einnig
stutt sérstaklega við bakið á
konum sem eru að taka við
rekstri fyrirtækja og höfum
boðið þeim upp á sér nám-
skeið.
Við höfum lagt mikla
áherslu á að leggja okkar af
mörkum við fjármögnun fyrir-
tækja, en enn sem komið er
hefur okkar aðstoð verið fólg-
in í að útvega fjármagn frá
sjóðakerfi en við stefnum að
því að vera þess umkomnir að
geta sjálfir lagt fram hlutafé í
arðvænleg fyrirtæki á Suður-
nesjum. Það er ýmislegt í gangi
í þessu sambandi en ég kýs
frekar að greina frá því þegar
þar að kemur.
Ég vil að endingu segja það
að við erum ekki bara eitthvert
fyrirtæki úti í bæ sem ætlar að
græða peninga. Við erum at-
vinnuþróunarfélag með skýra
stefnu og markmið og við vilj-
um ná skjótum árangri.
Það var tekin sú ákvörðun
að hafa form félagsins sem
hlutafélag en það á alls ekki að
standa í veginum fyrir því að
sveitarfélögin á Suðurnesjum
eigi ekki að geta unnið með
okkur og stutt okkur til góðra
verka.
Árangur okkar byggist á því
að hafa góða starfsmenn og
nægilegt fjármagn og því fyrr
sem rekstrareining félagsins
verður sem hagkvæmust því
betra verður það fyrir alla að-
ila. Stuðningur sveitarfélag-
anna er ekkert skilyrði fyrir
góðum árangri en það óneitan-
lega flýtir fyrir honum og það
er það sem málið snýst um.
Við höfum nú þegar náð ár-
angri en við eigum langt í land
með að vera nægilega ánægðir.
Til þess þarf að gera miklu
meira eins og best sést á
ástandi atvinnumála á Suður-
nesjum í dag.“
Örtröð
á dekkja-
verk-
stæðum
Það var örtröð á dekkja-
verkstæðunum hér suður með
sjó fyrir helgina. Ástæðan er
að margir bíleigendur vökn-
uðu upp við vondan draum er
þeir litu út um gluggann. Bæði
snjór og hálka voru yfir öllu og
margir bílar enn á gömlu sum-
ardekkjunum.
Strax við opnun dekkja-
verkstæðanna höfðu myndast
miklar biðraðir og hélst
ástandið þannig fram eftir
degi. Meðfylgjandi ljósmynd
var tekin við Aðalstöðina og
lýsir hún einna best ástandi
mála.
\4kurfréttir
2. nóv. 1989
Gatnamót Reykja-
nesbrautarogGrinda-
víkurvegar:
Lada-bif-
reið stór-
skemmd
Bifreið af Lada-gerð ,var
stórskemmd þar sem hún stóð
yfirgefin viðgatnamót Reykja-
nesbrautar og Grindavíkur-
vegar á timabilinu frá föstu-
degi til laugardags. Bifreiðin,
sem er brún að lit og ber skrán-
ingarnúmerið E-2578, hafði
verið gangsett og síðan ekið
upp á stórt grjót. Þá hafði
ýmsu lauslegu úr bílnum verið
dreift um svæðið. Þá voru
einnig unnar miklar skemmdir
á lakki og „boddíi“ bílsins.
Ef einhver hefur orðið vitni
að skemmdarverkum þessum
er sá hinn sami vinsamlegast
beðinn að hafa samband við
lögregluna í Grindavík eða
rannsóknarlögregluna í Kefla-
vík. Eins ef einhver bílstjóri
hefur tekið upp mann eða
menn þarna í nágrenninu á
tímabilinu frá kl. 12 á mið-
nætti og fram til kl. tvö um
nóttina.
Grindavík:
íslendingar
ruddust inn í
herstöðina
Hermenn í fjarskiptastöð-
inni við Grindavík óskuðu að-
stoðar lögreglunnar í Grinda-
vík aðfaranótt sl. laugardags
vegna íslendinga er ruddust
inn í mannvirki herstöðvar-
innar meðlátum. Fóru Islend-
ingarnir m.a. inn í svefnálmu
og ræstu þar fólk, en yfirgáfu
síðan svæðið.
Á eftirlitsferð lögreglunnar
varð hún hins vegar vör við
mann er bar herklæði undir
höndum. Við yfirheyrslu kom
í ljós að liann hafði verið einn
þeirra er „heimsóttu" herstöð-
ina, stolið þaðan fatnaðinum
og myndavél. Málið er nú að
fullu upplýst.
Ihnbrot f bíl
við Leifsstöð
Löereglunni í Keflavík
barst um helgina tilkynning
um innbrot í bíl sem stóð við
Leifsstöð meðan eigandinn var
erlendis. Var hljómfiutnings-
tækjum stolið úr bílnum og eru
allir þeir sem upplýsingar geta
gefið um málið beðnir um að
koma þeim til lögreglunnar.